Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 8
Minjar rausnarleg gjöf Þórhalls Matthíassonar
Listilega uppgerðar vélar sem margar eru gangfærar. Skrá yfir sögu bátavélanna verður
aðgengileg á sýningu.
f armur tveggja bíla með flutninga-vagna sem kom til Reykhóla í liðinni viku var óvenjulegur, um það bil 150
gamlar bátavélar og búnaður tengdur þeim.
Um var að ræða gjöf Þórhalls Matthías-
sonar á Akureyri til Bátasafns Breiðafjarð-
ar á Reykhólum, en hann hefur safnað báta-
vélum og gert upp í tugi ára, að því er fram
kemur á Reykhólavefnum, en þar er vitnað
í vef Félags áhugamanna um Bátasafn
Breiðafjarðar, þar sem segir: „Að undan-
förnu hefur Þórhallur verið að leita að fram-
tíðarstað fyrir safn sitt. Fyrir stuttu komust
á viðræður forsvarsmanna Bátasafns
Breiðafjarðar og Þórhalls hvort möguleiki
væri á að safn hans myndi geta átt sér fram-
tíðarstað á Reykhólum. Eftir að við höfðum
ráðfært okkur við félaga okkar hjá Báta-
og hlunnindasýningunni var ákveðið að
þiggja þessa rausnarlegu gjöf Þórhalls og
búa henni veglegan stað í kjallara húsnæðis
Báta- og hlunnindasýningarinnar.“
Á vef félagsins segir enn fremur: „Vetur-
inn verður notaður til að undirbúa húsnæð-
ið, leggja í gólf, mála og koma rafmagni og
öðru í gott horf. Næsta vor verður sýningin
svo sett upp í samvinnu við Þórhall og
verður hún með hans nafni. Þórhallur hefur
haldið skrá yfir alla munina og er saga
þeirra flestra einnig aðgengileg. Það má því
segja að næsta vor samanstandi Báta- og
hlunnindasýningin í raun af þremur sýn-
ingum; bátasafni (súðbyrðingar), hlunn-
indasafni og vélasafni.“
Af hálfu Félags áhugamanna um Báta-
safn Breiðafjarðar á Reykhólum tóku
Hafliði Aðalsteinsson og Eggert Björnsson
á móti gjöfinni og komu vélunum fyrir til
bráðabirgða.
Á bátavef Hjalta Hafþórssonar á Reyk-
hólum segir m.a., að því er fram kemur á
Reykhólavefnum: „Vélarnar eru listilega
vel gerðar upp og þarna eru tegundir sem
ég hef aldrei heyrt nefndar og aðrar sem
algengastar voru. Vélasafnið er sennilega
það stærsta í einkaeigu á landinu og mikill
fengur fyrir okkur hérna á svæðinu. Safnið
kemur til með að gera þá sýningu sem fyrir
er enn skemmtilegri og fróðlegri fyrir þá
gesti sem sækja okkur heim.“
Þórhallur Matthíasson er Vestfirðingur
að uppruna, alinn upp í Skötufirði í Ísafjarð-
ardjúpi, en búsettur á Akureyri. Hann hefur
safnað bátavélum í áratugi og gert þær upp.
Margar þeirra eru gangfærar.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Um 150 bátavélar
í safn á Reykhólum
Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum bárust á dögunum um 150 gamlar bátavélar, gjöf Þórhalls Matthíassonar sem safnað
hefur vélunum í áratugi og gert þær upp. Mynd/Ása Fossdal
Biblíusýning í
Bókhlöðunni
Sýning á íslenskum biblíuútgáfum verður
opnuð á morgun, laugardag klukkan 13, í
Þjóðarbókhlöðu. Sýningin er samstarfs-
verkefni Landsbókasafns Íslands-Háskóla-
bókasafns og Hins íslenska biblíufélags.
Hið íslenska biblíufélag er elsta starfandi
félag á landinu og fagnar 200 ára afmæli
í ár.
Atvinnuleysi 3,8% í
ágúst
Atvinnuleysi í ágúst síðastliðnum var 3,8%,
að því er Hagstofa Íslands greinir frá.
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hag-
stofunnar voru að jafnaði 197.300 manns á
aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í ágúst
2015, sem jafngildir 84,3% atvinnuþátt-
töku. Af þeim voru 189.800 starfandi og
7.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall
starfandi af mannfjölda var 81,1% og hlut-
fall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%.
Samanburður mælinga fyrir ágúst 2014
og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um
1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks
af mannfjölda gerði það einnig eða um 2
stig. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman
um 0,9 prósentustig frá því í ágúst 2014, úr
4,7% í 3,8%.
Ansi ánægðir
Íslendingar
Íslendingar virðast vera ansi lukkulegir
ef marka má nýja könnun MMR á ánægju
þeirra með lífið og tilveruna. Um 90%
sögðust vera ánægð með vinnuna sína og
nágranna. Um 88% sögðust vera ánægð
með sumarfríið sitt. Fleiri sögðust vera
ánægðari með vinnuna sína frá því í fyrra
en færri sögðust þó vera ánægðari með
sumarfríið sitt og nágranna sína miðað
við árið 2014. Könnunin var framkvæmd
dagana 31. ágúst til 3. september og var
heildarfjöldi svarenda 1023 einstaklingar,
18 ára og eldri.
... þarna
eru
tegundir
sem ég
hef aldrei
heyrt
nefndar og
aðrar sem
algengast-
ar voru.
Fjórar sýningar að eigin vali
á besta verðinu.
Áskriftarkort
Borgarleikhússins
Vertu með
í vetur!
Miðasala
borgarleikhus.is
568 8000
8 fréttir Helgin 25.-27. september 2015