Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 12
Björk Vilhelmsdóttir O rðið sem oftast skýtur upp kollinum í samtölum við þá sem þekkja Björk er stjórnsöm og er þá sama hvort rætt er við fjölskyldumeðlimi, vini eða pólitíska andstæðinga. Annað sem allir nefna sem einkenni í hennar fari er hjartahlýja. „Hún er alltaf með opin faðminn,“ segir einn viðmælandinn. „Mikill vinur vina sinna og óskaplega trygg- lynd.“ Björk er mjög upptekin kona sem kann illa að slaka á en gefur sér þrátt fyrir það tíma til sinna vinum sínum, heimsækja fjöl- skyldumeðlimi, bæði nána og fjarskylda, halda stór matarboð, prjóna lopapeysur á alla fjölskyld- una og rækta sinn eigin matjurta- garð. Uppáhaldshlutverk hennar þessa dagana mun þó vera ömmu- hlutverkið og drífur hún gjarnan ömmubörnin með sér út í garð þar sem hún ræktar matjurtir sem hún notar í matarboðunum víðfrægu. Fjölskyldan er mjög náin og samhent, öll börnin fimm koma í foreldrahús um jólin auk fyrrver- andi konu Sveins, og það er mikið rætt, sungið og borðað. Björk hefur orð á sér fyrir að vera svolítið herská en sumir and- stæðingar hennar telja að það sé að hluta til óöryggi. „Hún er dálítil bredda,“ segir einn. „Og á það til að stíga á tær annarra án þess að ætla sér það. Hún er alþýðustúlka og ég held hún sé ekkert of örugg í hlutverki sínu sem stjórnmálamað- ur. Það er oft erfitt að vinna með henni, en hvað sem manni finnst um hana sem stjórnmálamann þá er hún bráðskemmtileg manneskja og enginn hefur jafn smitandi hlátur.“ Annað sem fólk nefnir er hversu viðutan Björk sé og mikill klaufi en hún hafi húmor fyrir sjálfri sér og hlæi bara þegar hún hefur Stjórnsöm bredda með hjartað á réttum stað Björk Vilhelmsdóttir kvaddi borgarstjórn með hvelli sem ekki sér fyrir endann á eftir að hafa sett samfélagið á annan endann með krass- andi fullyrðingum í viðtali í Fréttablaðinu. Hún hverfur nú af vettvangi íslenskra stjórnmála – í bili allavega – en hver er þessi kona sem allir virðast hafa skoðanir á? Fædd 2. október 1963. Björk er fædd í Reykjavík og uppalin þar og á Blönduósi, dóttir Vilhelms Heiðars Lúðvíkssonar og Kristínar Pálsdóttur. Maki: Sveinn Rúnar Hauksson. Börn: Kristín og Guðfinnur Stjúpbörn: Gerður, Haukur og Inga Námsferill Stúdentspróf af heilbrigðissviði frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti 1983 Starfsréttindanám í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 1990 BA próf í uppeldisfræði frá Háskóla Íslands 1990 Starfsferill Kokkur á Lyngey SF 61, janúar til maí 1984 Vann við umönnun aldraðra og fatlaðra á Héraðshæli Austur-Húnvetninga, á Borgarspítalanum og í heimaþjón- ustu hjá Félagsþjónustu Reykja- víkur með námi og í námsleyfum 1979–1984 Fangavörður í Hegningarhúsinu Skólavörðustíg 9 sumrin 1985, 1986 og 1987 Félagsráðgjafi hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar sumarið 1988 og árið 1989 Félagsráðgjafi á Stígamótum – sam- tökum kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi 1990-1991 Framkvæmdastýra hjá kvennaráð- gjöfinni 1992–1997 Félagsráðgjafi á Kvennadeild Land- spítalans 1992–1997 Blindrafélagið 1997–2002 Pólitískur ferill Formaður Félags vinstrimanna í HÍ 1985–1987 Í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1986–1988 Á framboðslista Alþýðubandalagsins í borgarstjórnarkosningunum 1986 Jafnréttisnefnd Reykjavíkur 1986–1988 Kosin í borgarstjórn 2002 REYKJAVIK CITY, RESTAURANTS & SHOPPING Þetta nýja Reykjavík City APP veitir upplýsingar á lifandi og skemmtilegan hátt um verslanir, veitingahús, söfn, gallerí og áhugaverðustu staðina í Reykjavík, hvort sem þú ert „Online eða Offline“. Með þessu smáforriti geturðu einnig skoðað nákvæmt kort og fundið staðsetningu og vegvísun. Einnig er hægt að deila upplýsingum með fjölskyldu og vinum. Ég sannfærður um að það skili mér ekki síðri árangri en það APP sem fyrir var. Gunnar Guðjónsson Profile-Optic, Laugavegi 24 Þetta APP hefur virkað vel fyrir mig hingað til og ekki nokkur vafi að þessi nýja útgáfa muni gera enn betur. Lárus Guðmundsson Rossopomodoro, Laugavegi 40a Ég er ekki í vafa að þetta APP á eftir að senda til mín fjölmarga viðskiptavini, auk þess hef ég góða reynslu að vinna með þessum útgefendum. Stefán Bogi Stefánsson gull- og silfursmiður Metal Design, Skólavörðustíg 2 Það besta sem ég hef gert í markaðsmálum! Ragnar Símonarson, framkvæmdastjóri Jón Sigmundsson skartgripaverslun, Laugavegi 5 Today Publication ehf. Laugavegi 170 105 Reykjavík Sími 577-1818 today@today.is Google Playstore Reykjavik restaurants & stores Appstore Reykjavik city restaurants & shopping gert sig að fífli með flumbrugangi. Hlátur er þriðja orðið sem hver einasti viðmælandi nefnir sem ein- kennandi fyrir Björk. „Hún hefur góðan en dálítið sérstæðan húmor og fær oft hlátursköst á mjög óviðeigandi stöðum,“ segir dóttir hennar. „Það var til dæmis oft erfitt að fara í bíó með henni þegar maður var yngri því maður vissi ekki hvort maður átti að skamm- ast sín fyrir hvað hún hló á fárán- legum stöðum eða hlæja bara með henni.“ Björk hefur oft strokið fólki öf- ugt og skiptar skoðanir eru á fram- göngu hennar í velferðarráði. „Ég held hún sé ekkert sérstaklega greind,“ segir einn samstarfsaðili. „Allavega mætti hún oft hugsa meira áður en hún tjáir sig.“ Annar segir að hún sé frábær skipuleggj- andi og dugleg að útdeila verkefn- um til annarra. Öllum, sama hvað þeim finnst um störf hennar sem stjórnmálamanns, ber saman um að hún sé skemmtileg og hlýleg og að það sé nánast ómögulegt að vera illa við hana. „Það er aldrei leiðinlegt að vera nálægt Björk, hún er ótrúlega lifandi, skemmtileg og kærleiks- rík,“ segir náinn ættingi. „Heimili þeirra Sveins er eitt það skemmti- legasta sem maður kemur á og þótt það sé greinilegt að hún stjórni þá er ekki hægt að finna annað en að þau séu bæði sátt við það, enda bæði sterkir leiðtogar.“ Hlýtt viðmót Bjarkar er við- mælendum ofarlega í huga. „Hún hefur ótrúlegan áhuga á fólki og er alltaf tilbúin að taka öllum eins og þeir eru. Auk þess er hún sérlega minnug og man nánast allt um það fólk sem hún hittir. Og þrátt fyrir allt annríkið gefur hún sér alltaf tíma til að spjalla og spyrja um hagi viðkomandi. Ég held að allir hljóti að vera sammála um að hún sé í grunninn virkilega góð mann- eskja.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is 12 nærmynd Helgin 25.-27. september 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.