Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Síða 37

Fréttatíminn - 25.09.2015, Síða 37
RISA LAGERSALA LÍN DESIGN LAUGARDAG OG SUNNUDAG LAUGAVEGI | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS Barnaföt Rúmföt Eldhúsvörur Dúkar Handklæði Barnavörur Púðar Smávörur Komdu og taktu þátt í lukkuleik Lín Design, allt að 50.000 kr vinningur. AKUREYRI OG REYKJAVÍK LAUGAVEGI 178 | LAUGARDAG 11-17 | SUNNUDAG 11-17 GLERÁRTORGI | LAUGARDAG 10-17 | SUNNUDAG 13-17 ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR Í 2 DAGA RÚMFÖT FRÁ 2.990 BARNAFÖT 70% Ég hélt einu sinni erindi á kvennaráð- stefnu á Bifröst þar sem ég bar saman feril virks alkóhólista á niðurleið og virkjun Íslendinga á fallvötnum til raf- magnsnotkunar.“ Ef það væri skoðað hvernig ég lýsi uppvextinum til dæmis þá er ég mikið að gagnrýna þjóðfélagið. Þetta þjóðfélag sem er einmitt á þeim árum að græðgisvæðast. Maður sér hvernig allt hefur marg- faldast. Ég hélt einu sinni erindi á kvennaráðstefnu á Bifröst þar sem ég bar saman feril virks alkóhólista á niðurleið og virkjun Íslendinga á fallvötnum til rafmagnsnotkunar. Línan í þessu tvennu leit eins út. Ég drakk í þrjátíu ár og ég talaði um það að fyrsti hringurinn sem ég fór, fyrstu tíu árin, getur alveg talist alveg allt í lagi. Næstu tíu ár tvöfaldast allt og í þriðja hringnum verða margföldunaráhrif í öðru veldi á skaðanum sem maður veldur sjálfum sér og öðrum. Mér finnst orkuframleiðslan og stóriðju- stefnan hafa þróast á sama hátt síð- ustu þrjátíu ár. Frá Búrfellsvirkjun til Kárahnjúka.“ Horfum bara á afleiðingarnar Linda hætti að drekka fyrir fimm- tán árum og hefur beitt sér í þeim málum, er meðal annars ein af stofnmeðlimum Rótarinnar, félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Finnst henni konur sem eru alkóhólistar þurfa öðruvísi úrræði en karlarnir? „Það er alltaf öðruvísi að vera kona. Það sem Rótin er að segja er að það þarf að taka miklu heildrænna á málum í áfengismeðferð. Ef þú ætlar í alvöru að ná árangri þarf að taka á öllum áföllum sem flestar konur sem hafa verið lengi í áfengisneyslu verða fyrir.“ Er ekki hægt að heimfæra þá aðferð upp á þjóðfélagið líka? Erum við ekki alltaf að takast á við afleið- ingarnar en ekki orsökina? „Jú, við horfum bara á afleiðingarnar. Eftir hverja verslunarmannahelgi erum við æpandi yfir afleiðingum ofdrykkjunnar, hvort sem það eru nauðganir eða annað ofbeldi, en það er aldrei spurt hvort það sé eðlilegt að halda svona drykkjuhá- tíðir. Hvers konar samfélag er það sem finnst það vera eðlilegt að bæjarfélög fjármagni sig og auglýsi sig með drykkjuhátíðum?“ Kemur úr öðrum reynsluheimi En er hægt að hafa pólitísk áhrif með ljóðum? „Ég held maður hafi áhrif með öllu sem maður gerir. Mér hefur oft fundist ég hafa áhrif á Facebook, maður getur vakið at- hygli á málum og komið af stað um- ræðu með því. Mér finnst líka að ef ég er að skrifa þá verði ég að hafa eitthvað að segja. Hafa eitthvað fram að færa, sem mér finnst ég hafa. Mér finnst ég til dæmis koma úr öðrum reynsluheimi en margir íslenskir rithöfundar. Ég er alin upp á sjómannsheimili, mamma vann lengi í fiski og pabbi var sjómaður. Síðan er ég sjúkraliði, vann við það inni á spítölunum í tuttugu ár og kynntist lífinu þar og fólki á sínum viðkvæmustu tímabilum. Svo er ég alkóhólisti og svo er ég kona, þannig að mér finnst ég hafa frá öðru að segja en margir aðrir. Mér voru gefnir þessir hæfileikar og ég vil nýta þá í eitthvað sem mér finnst þess virði.“ Hver er frjáls? Frelsi og misbeiting þess er stórt yrkisefni, var ekkert erfitt að takast á við það? „Jú, þegar maður er kom- inn út í svona ragnarakaskáldskap er mjög erfitt að forðast predikun- artóninn. Það þurfti ég að forðast allan tímann. Þar eru pyttirnir eins og á vondum íslenskum malarvegi. Það var eitt af því sem gerði mér erfitt fyrir en ég held mér hafi tekist að forðast það. Svo er stóra spurningin hver er frjáls og hver er ekki frjáls? Og hvað gerum við við þetta frelsi? Það er grunnþemað í þessari bók.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is viðtal 37 Helgin 25.-27. september 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.