Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Síða 38

Fréttatíminn - 25.09.2015, Síða 38
Hannes Friðbjarnarson hannes@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Helförin frá Vestmannaeyjum É Ég þarf að fara til Vestmannaeyja um helgina. Það er svosem ekki í frásögur færandi þar sem ég fer nokkrum sinnum á ári til Vestmannaeyja, sökum hins starfsins míns, sem er starf trommuleikara í hljómsveit sem skemmtir fólki. Það þarf að skemmta fólki um allt land. Í vikunni sáum við myndir hvar rúmlega tvítugur strákur frá Kanada fékk sér rauðvín á hóteli í Eyjum og svamlaði á nærbuxunum í íslenskum ám og lækjum. Ekkert óvenjulegt fyrir einhvern sem er rúmlega tvítugur og veit ekkert í sinn haus, en þarna var á ferðinni hann Justin Bieber sem er heimsfrægur. Ef ég mundi birta mynd af mér á nærbux- unum á lækjarbakka þá væri ég talinn fáviti. Einfalt. Ég er samt að hugsa um að fá sama rauðvín og hann þegar ég kem til Eyja. Ég gisti á sama hóteli og hann, sem er besta hótelið í Eyjum, get stað- fest það. Borða á Einsa kalda, eins og Justin, og Einsi kaldi er frábær veitingastaður. Ég og Justin getum vottað það. Ég mun svo skemmta Eyja- mönnum um kvöldið, en ég mun alls ekki vera með sama markhóp og minn maður. Á meðan íslensku yngismeyj- arnar hlupu um landið eins og í rat- leik, leitandi að Justy þá voru mæður þeirra að gera sig klárar fyrir að fara á ball í Eyjum. Það er svosem allt í lagi. Þær eru allar á aldri við mig. Ég á margar eftirminnilegar ferðir til og frá Eyjum og ekki hefur sjó- ferðin alltaf verið blíð og létt. Oftast þó. Þegar ég var 18 ára gamall fór ég á þjóðhátíð í Eyjum og skemmti mér konunglega. Það var gott veður og vin- irnir kunnu vel við að arka um dalinn með bokku í hendi. Á þessum tíma var ég að vinna yfir sumarið á Kópavogs- hæli, sem ég gerði nokkur sumur í kringum tvítugt. Ég er ekki frá því að það hafi verið sú reynsla sem kom mér að mestu til manns, en það er önnur saga. Eins og gengur þá átti ég að mæta til vinnu seinnipart mánudagsins eftir verslunarmannahelgina og til stóð að skella sér í Herjólf á mánudags- morgni, því ekki vildi maður mæta seint til vinnu. Stundvísi var mér kennd snemma og hana hef ég mér tamið. Á sunnudeginum kom svo leiðinda- veður og veðurspá var ekki góð fyrir næstu daga, sér í lagi fyrir þá sem ætl- uðu sér eitthvað út á haf. Nú voru góð ráð dýr. Ekki færi ég að hringja mig inn veikan, eldhress. Ekki færi ég að skrópa í vinnunni. Góður vinur minn er frá Vestmannaeyjum og á þessum tíma gisti ég í húsi föður hans yfir Þjóðhátíðina. Faðirinn var og er öllum hnútum kunnugur í Eyjum og hann sagði okkur þær fréttir að á eyjunni væri staddur hópur af þýskum ellilíf- eyrisþegum sem þyrftu nauðsynlega að komast til Keflavíkur á mánudeg- inum, í flug heim. Faðirinn, sem heitir Ólafur Jónsson og er saxófónleikari í Eyjum, segir mér að hann væri að fara með hópinn til Þorlákshafnar á litlum báti sem heitir P/H Víking, sem er eingöngu notaður til þess að fara í skemmtilegar og þægilegar skoðunar- siglingar á milli eyjanna fögru sem tilheyra Vestmannaeyjum. Ég hugsa með mér. Ég fer með. Ég þarf að komast til vinnu. Rekstur Kópavogs- hælis stendur og fellur með mér. Þetta fólk þarf aðhlynningu öskra ég út í vindinn. Nei ég gerði það að vísu ekki, en mér leið þannig. Gott og vel. Ég kem mér fyrir í bátnum, ásamt ellilífeyrisþegunum frá München og báturinn fer af stað. Skipstjórinn hristir hausinn og Óli Jóns stendur með pípuna og er hugsi. Við erum varla farin frá bryggju þegar Víkingurinn byrjar að vagga meira en maður hefur nokkurntímann upplifað. Ég heyri hvernig þýsku konurnar signa sig og fara með bænirnar. Skip- stjórinn horfir beint út á hafið á meðan hann spænir í sig Pralín-brjóstykur. Báturinn veltist á alla kanta. Upp og niður, til hægri og vinstri. Nein, Nein, Nein, Mein Got Im Himmeln, heyri ég öskrað aftast í bátnum og nú er fólk farið að kasta upp. Þar sem enginn mátti fara út á dekk í þessum djöful- skap þá gekk Óli Jóns með svartan ruslapoka á milli manna þar sem þeir losuðu sig reglulega við allt sem vall um innra með þeim. Á milli uppkasta fór svo Óli með pokann út og losaði hann í sjóinn þar sem það var bara einn poki um borð í Víkingnum. Óli gerði þetta samt mjög fagmannlega og alltaf púaði hann pípuna á meðan. Ferðin tók rúmar fimm klukku- stundir og á meðan ég sat í rútu frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur þá hugs- aði ég um Óla og skipstjórann. Þeir áttu eftir að fara til baka. Í dag er Óli enn í Eyjum og sonur hans er skip- stjóri á Herjólfi. Eftir þessa ferð þykir mér oftast bara notalegt að leggjast í koju í skipinu og njóta ferðarinnar. Þjóðverjarnir eru þó örugglega enn í andlegu áfalli, ef þeir hafa lifað ferðina heim það er að segja. Ég mætti til vinnu þennan dag, frekar illa fyrir- kallaður. Í dag skil ég ekki af hverju ég hringdi ekki bara í yfirmanninn og sagði honum að það væri ófært, sem var raunin. Samviskusemin var að drepa mig, og gerði það næstum því. Ég fékk samt engin verðlaun, en sagan er góð. Á mínu heimili eru börn og ung- lingar sem stundum segjast ekki geta farið í skólann af því að þau „halda“ að þau séu með hausverk. Ég hef aldrei haldið að ég sé með hausverk. Ég hef annað hvort verið með hausverk eða ekki. Atvinnurekendur framtíðarinnar munu upplifa svo áhugaverða tíma. „Ég kemst ekki í dag, ég held ég sé að sofa yfir mig.“ Te ik ni ng /H ar i Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda MEÐ VIRÐINGU OG KÆRLEIK Í 66 ÁR Útfarar- og lögfræðiþjónusta www.útför.is Ert þú í söluhugleiðingum? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Jóhanna Gustavsdóttir Sölufulltrúi / BA atvinnufélagsfræði. 698 9470 johanna@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Traust og góð þjónusta Frítt verðmat Sjónvarpsþátturinn Heilsutíminn verður sýndur á mánudagskvöldum klukkan átta á Hringbraut í vetur. Heilsutíminn er í Fréttatímanum sem kemur út á föstudögum. Sjónvarpsþátturinn verður frumsýndur á mánudagskvöldum klukkan 20 og endursýndur nokkrum sinnum í vikunni. Teitur Guðmundsson læknir er með fasta pistla í Heilsutímanum. Umsjónarmaður með Heilsutímanum er Gígja Þórðardóttir sjúkraþjálfari. Í Fréttatímanum, á netinu og í sjónvarpi 38 viðhorf Helgin 25.-27. september 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.