Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Side 68

Fréttatíminn - 25.09.2015, Side 68
 Í takt við tÍmann nanna ElÍsa snædal Jakobsdóttir Dansa meira eftir að ég hætti að drekka Staðalbúnaður Það er pínu kómískt hversu ósamstæðan fatastíl ég hef. Þegar ég fer í vinnu er ég bara „Nanna normcore“ í einhverju þægi- legu og nenni ekki að mála mig. Svo get ég verið ótrúlega uppstríluð og fín ef ég er að fara á einhvern fund. Ætli stíllinn minn sé ekki kannski að vera svolítið ófyrirsjá- anleg. Ég er reyndar núna að reyna að haga mér í samræmi við aldur og ganga með fína skartgripi. Ég er að henda þessu H&M-dóti sem skilur eftir sig brúnan hring á manni. Ég fékk nýjan hring frá Aurum í afmælisgjöf og set nú stefnuna á að ganga með íslenska skartgripi. Hugbúnaður Mér finnst ótrúlega gaman að fylgjast með fólki og samfélaginu, hvernig allt virkar. Það er kannski ástæðan fyrir því að ég fór í lög- fræði og svo í blaðamennsku. Ég er vakin og sofin yfir því hvernig ég get fengið nemend- ur í háskólum á Íslandi að láta í sér heyra um námið og aðbúnað í skólum svo við getum haft áhrif á stefnumótun í skólakerf- inu. En þegar ég er ekki að reyna að breyta heiminum finnst mér gaman að fara út að dansa á Kiki og Húrra. Í sumar ákvað ég að gera tilraun með að hætta að drekka áfengi. Eftir það hef ég djamm- að og dansað miklu meira og skemmt mér betur svo tilraunin er smám saman að breytast í nýjan lífsstíl, alla vega eitthvað út árið. Bestu stundir vikunnar eru þegar ég fæ mér kaffi á morgnana með vinkonum og vinum á Reykjavík Roasters. Ég fer alveg í ræktina en það er líka líkams- rækt að drekka kaffi með þeim því ég hlæ svo mikið. Ég uppgötvaði Amy Schumer svolítið seint en síðustu mánuði hef ég verið að drekka í mig allt sem ég get fundið frá Ljósmynd/Hari henni. Það er ótrúlegt hvað hún hefur breytt hugarfari margra með beittu glensi. Vélbúnaður Ég hef stundum áhyggjur af því að iPhone- inn minn límist við hendurnar á mér. Ég nota hann mjög mikið og er mjög virk á öllum samfélagsmiðlum. Facebook er orðið að vinnutæki og það hræðir mig pínu hvað ég nota það mikið. Mér finnst líka geggjað að nota Snapchat og það er skemmtilegt hvernig hver og ein manneskja getur orðið að sketsahöfundi með snjallsímann sinn. Sjálf reyni ég að gera mitt besta til að vera skemmtileg, mikilvægast er að taka sjálfan sig ekki of alvarlega. Aukabúnaður Ég er fræg fyrir brokkólípítsuna mína og hef snúið mörgum pítsuelskendum yfir á hana. Þegar ég fer út að borða finnst mér gott að fara á Gló en annars er ég líka dugleg að borða bara maískökur með hnetusmjöri og sultu. Ég lifi bíllausum lífsstíl, svona innan gæsalappa. Ég reyni að labba og taka strætó en hef samt aðgang að bílnum hans pabba og nota hann óspart. Í sumar gekk ég Strútsstíg með Auði vinkonu minni. Við vorum í fimm daga án samfélagsmiðla, internets og rafmagns og þetta var kynngi- magnað. Ótrúleg lífsreynsla sem var bæði róandi og gaf manni mikinn kraft. Næsta vor stefni ég á að fara á Interrail-ferðalag um Austur-Evrópu. Uppáhalds staðurinn minn er samt alltaf sumarhúsið hennar ömmu í Danmörku. Amma og afi keyptu sér hús í Dragør á Sjálandi fyrir mörgum árum, ótrúlega heillandi gult hús með arni. Þarna er alltaf gott veður og góð lykt. Nanna Elísa Snædal Jakobsdóttir er 25 ára Reykvíkingur með smá slettu af Jökuldal, eins og hún orðar það sjálf. Hún lauk BA-prófi í lögfræði síðasta vor og stefnir á nám í alþjóðasam- skiptum erlendis á næstunni. Fram að því er hún að vinna á Vísi, situr í há- skólaráði HÍ og er formaður landssam- taka íslenskra stúdenta. Nanna borðar á Gló og býr til frábæra brokkólípítsu. Hljómsveitin Retro Stefson er meðal þeirra sem fram koma á skyrhátíðinni í Finn- landi um helgina.  matarmEnning Finnar sólgnir Í ÍslEnskt skyr Íslenskir tónlistarmenn á finnskri skyrhátíð Sérstök skyrhátíð fer fram í Finn- landi um helgina þar sem íslenska skyrinu, íslenskri tónlist og ís- lenskri matarmenningu verður gert hátt undir höfði. Að hátíðinni standa finnskir söluaðilar skyrs- ins, Skyr Finland, en viðburður- inn er liður í því að fagna góðu gengi skyrs þar í landi. Yfirskrift hátíðarinnar er á þá leið að Ísland sé komið til Finnlands en hátíðin fer fram á lítilli eyju rétt fyrir utan Helsinki og er nafni hennar af þessu tilefni tímabundið breytt í Ísland. Hugmyndin er að sam- eina tvær þjóðir yfir eina helgi og verður öllu til tjaldað til að gera hátíðina sem fjölbreyttasta og skemmtilegasta. Meðal þeirra sem fram koma eru plötusnúður- inn DJ Margeir og hljómsveit- irnar Retro Stefson, Sísí Ey og Vio, en sú síðastnefnda stóð uppi sem sigurvegari Músíktilrauna á síðasta ári. Annie Mist Þórisdóttir, afreks- kona í Crossfit og tvöfaldur heims- meistari í greininni verður með í för sem og kraftajötuninn Hafþór Júlíus. Stöðug aukning hefur verið á skyrsölu í Finnlandi og er eftir- spurnin mun meiri en framboðið þar sem framleiðslugetan annar vart eftirspurn, að því er fram kemur hjá Mjólkursamsölunni. Skyrið fyrir finnska markaðinn er bæði framleitt hér á Íslandi og hjá Thise-mjólkurbúinu í Danmörku, með sérleyfi frá MS. Skyrævintýrið í Finnlandi hófst með ferðalagi ungs manns að nafni Miikka Eskola til Íslands fyrir tæpum fimm árum. Hann kolféll fyrir íslenska skyrinu og í framhaldinu náðist samkomulag við MS um samstarf og útflutning á skyrinu þangað. 68 dægurmál Helgin 25.-27. september 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.