Dagrenning - 01.10.1946, Page 9

Dagrenning - 01.10.1946, Page 9
]\TÝ opinberun hefir gerzt, og leysir hún ^ að fullu gátuna um alinina í Pýramidan- um mikla í Egyptalandi. Hún jafnar alveg fullkomlega þá langvarandi deilu, sem verið hefir milli Egyptalandsfræðinga og pýramida- fræðinga. Hún nemur og úr vegi hindranir þær, sem þeir urðu við að etja, er samræma vildu nýjustu uppgötvanir fornfræðinganna og tímatal það, sem fram er sett í 1. bók Móse. Árangurinn er fullkomið samræmi í pýramídafræði, egyptalandsfræði, fornfræði og tímatali Biblíunnar, í þeim torræðu gát- um, sem allt til þessa hafa valdið miklum þrætum og ruglingi. Þessi „álna barátta“ milli egvptalands- fræðinganna og pýramídafræðinganna er orðin meira en 60 ára. Hófst hún að fullu með því, að W. M. Flinders Petrie, prófess- or, réðist heiftarlega á kenninguna um 25 þumlungá alin pýramídans mikla. Árás þess- ari svaraði C. Piazzi Smyth, prófessor og konunglegur stjömufræðingur í Skotlandi, í bók sinni „New Measuies of the Great Pyiamid by a New Measures". (Ný mæling á Pýramídanum mikla, eftir nýjan mælinga- mann.) Bæði Smyth prófessor og Petrie pró- fessor (síðar sir W. Finders Petrie) sást, því miður, yfir það, að almenna egypzka alin- in (20,629 brezkir þuml.) var leidd af hinni og álnirnar tvær voru þess vegna í beinum tengslum, þótt pýramídafræðingar hafi alltaf talið, og telji enn, og geti nú áþreifan- lega sannað, að helga alinin (með skiptingu sinni í smærri eininguna, þumlunginn) opin- bcri tímatal aldanna, þá hafa þeir eigi að síður, fyrir löngu, viðurkennt, að mæliein- ing sú, er notuð var við sjálfa smíði mann- virkisins, var almenna egypzka alinin. En allt til þessa hefir pýramídafræðinga aldrei grunað, að mikilvægt tímatal og andleg opinberun væri dulið bak við almennu egypzku alinina — til viðbótar því, sem þegar var opinberað með 25 þumlunga alin- inni. í raun og veru er sögu og spádóms- tímabil það, sem sýnt er með almennu egypzku alininni, miklu lengra en hitt, sem táknað er rn'eð lengdareiningu þeirri, er vér hingað til höfum nefnt pýramídaalin, og skiftingu hennar, pýramídaþumlunginum, og nær yfir milli 8000 og 9000 ára bil. Það dásamlega við þetta er, að þessi nýja opin- berun er í engu ósamræmi við það, sem áður hefir verið ráðið af helgu alininni. Fer því svo fjarri, að einmitt þetta tvennt staðfestir livað annað eins vel og bezt má verða. \7egna þessa þarf engu orði, engri tölu og cngri dagsetningu að breyta í fyrra riti voru: „Boðskapur Pýiamídans mikla. En nýja op- inberunin, sem fólgin er bak við almennu alinina, hefir lokið upp fyrir oss dyrum að nýjum heimi og opnað nýjan sjónhring í pýramídafræðinni. í þessari litlu bók getum vér, eigi að síður, aðeins rætt um fyrstu upp- götvunina, sem gerð hefir verið samkvæmt þessari nýju opinberun. Var hún gerð í sam- bandi við drottningarsalinn og lárétta gang- iun, sem liggur að honum. Það er óhjákvæmilegt að byrja á því að DAGRENNiNG 7

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.