Dagrenning - 01.10.1946, Blaðsíða 15
Þá er sannað hefir verið, að drottningar-
salurinn táknar sjálft þúsund ára ríkið og
lárétti gangurinn, sem að honum liggur,
táknar feril mannkynsins, allt frá Adam til
þúsund ára ríkisins, þá er næsta skrefið að
fá vissu fyrir því, hvaða tímamælir sé not-
aður þar. Það hefur þegar verið sýnt, í Boð-
skap Pýramidans mikla, að mælikvarði venju-
legra tímarita Pýramidans er sá, að þuml-
ungur er látinn tákna ár alls staðar þar, sem
halli ganganna er Krists hornið (þ. e. 26°
18' 9,7"). Þessi almenni mælikvarði á ein-
ungis við höllu gangana, en í sambandi við
þá eru láréttir gangar, sem samsvara inn-
skots-uppdráttum. Almenni mælikvarðinn er
aldrei notaður í láréttu göngunum, og inn-
skotsmælikvarðamir ekki í höllu göngunum.
Ef gangurinn er láréttur, nægir það til þess
að sýna, að hann er innskot. Innskotin í
Pýramidanum eru alltaf til þess ætluð, að
sýna eittlivað sérstaklega mikilvægt. Það er
nauðsynlegt að fá óyggjandi vissu urn, hvaða
mælikvarði á við hvern um sig af láréttu
göngunum, ef tímaskráningin á að verða
skiljanleg.
Einn tilgangur einstakra þrepa inni í
Pýramidanum er sá, að láta í té tímatals
mæheiningar, er eiga við láréttu gangana,
sem að þeim liggja. Háa þrepið, við enda
Stallagangsins mikla og upphaf stuttu, lá-
réttu ganganna handan við hann, opinberar
með rúmfræðilegri gerð sinni, tímatalsmæli-
kvarðan, sem á við þá mikilvægu innskots-
töflu, sem þar hefst. (Sjá nánar í Pýiamid-
anum mikla og Boðskap Pýramidans mikla).
í langa, lárétta ganginum, sem liggur að
drottningarsalnum, en einnig þrep, sem er
ætlað til þess, meðal annars, að sýna einingu
tímamælis þess, sem á við þann gang og sal.
Þrep þetta er nokkru meira en átján fetum
frá enda gangsins, eins og sjá má á mynd-
inni á bls. 4. En hér eru engar flækjur af því
að hallandi og lárétt kerfi grípi hvort inn í
annað, svo sem er við liitt þrepið. Fyrir því
er mjög auðgert að finna einingu þá, sem
ætluð er til tímaákvörðunarinnar. Þrepið er
blátt áfram lóðrétt sig á láréttu gólfi, frá
hærra fleti til lægra. í sambandi við þrep
þetta þarf aðeins að gera eina mælingu, svo
að það er ómögulegt að lenda á villigötum.
Þetta eina, sem mæla þarf, er vitanlega hæð-
in á þrepinu og er það eining sú, sem á að
nota til mælingar á þessari láréttu grein (Lá-
rétta ganginn og drottningarsalinn), ef finna
skal tímatal það, sem þar er fólgið. Þrep
þetta er nú orðið mjög brotið og gólfið neð-
an við það illa leikið, vegna þess að þar hefir
verið revnt að grafa niður. Upprunalega hæð
þrepsins er auðvitað hægt að finna, með því
að mæla hæðina á lárétta ganginum áður en
konrið er að þrepinu og síðan hæðina á þeim
hluta gangsins, sem er handan við það, og
finna svo hæðarmismunin.* Allt rjáfur lá-
rétta gangsins var gert nákvæmlega í sama
hæðarfleti og 'rjáfrið við upphaf fyrsta upp-
gangsins. Þar sem lárétti gangurinn hefst,
eru 46,9 þumlungar frá gólfi hans upp til
lofts. Við innganginn í drottningarsalinn eru
67,5 þumlungar frá rjáfri niður að gólffleti.
Misnmnurinn er auðvitað hæðin á þrepinu
og það er 20,6 þumlungar, og er það nákvæm-
lega lengd almennu álnarinnar (ef aðeins
er notaður einn tugstafur). Hún er því mæli-
* Þrepið í lárétta ganginum er nú svo brotið,
að ekki er unnt að vita með vissu hæð þess, með
því að mæla það sjálft. Þótt hæðin, sem mæla þarf,
sé litil — aðeins um það bil 20 þuml. —, þá hefir
samt því nær alla mælingamenn greint á um niður-
stöðuna. Sir W. M. Flinders Petrie segir, að nú-
verandi meðalhæð þess sé 19,7 þumlungar. Dr. John
Edgar og Morton Edgar gera sér það báðir ljóst,
að vonlaust er að mæla upprunalegu liæðina svo
nákvæmlega, að víst sé að ekki skeiki broti úr þuml-
ungi; en þeir segja að hæðin sé (svo notuð séu orð
þeirra sjálfra) milli 20 og 21 þuml. Af þessu leiðir,
að nauðsynlegt er að viðhafa aðra aðferð, eins og
skýrt er frá í textanum hér að ofan, ef upprunalega
hæðin á þrepinu á að finnast hárnákvæmlega.
DAGRENN ING 13