Dagrenning - 01.10.1946, Blaðsíða 43

Dagrenning - 01.10.1946, Blaðsíða 43
Til kaupenda DAGRENNINGAR. Um leið og þetta hefti er sent út til kaupenda, er síðasta hefti þessa árgangs sent í prentsmiðjuna. Ætlast cr til að það geti komið út fyrir jólin. Þegar DAGRENNING hóf göngu sína, í apríl- mánuði nú í vor, var því heitið, að þessi árgangur skyldi eigi verða minni en 25 arkir — þ. e. 200 blaðsíður í 4 blaða broti. — Þetta hetir teki/t að efna, því að þessi árgang- ur verður 26 arkir fyrir utan kápur, en með þeim 2BI/9 örk. Svarar það til 450 blaðsíðna bókar í venjulegu broti. Tel ég rétt að benda á þetta vegna þess, að ýmsir segja að DAGRENNING sé dýr, — en munu menn nú fá 450 blaðsíðna bók fyrir 50 krónur? — Útgáfa DAGRENNINGAR var tilraun. Su tilraun hefir tekizt það vel, að ekki vantar nú hema herzlumuninn að hún beri sig fjárliagslega. Heiti ég því á alla þá, sem unna þessu málefni eða finnst það þess vert, að því sé gaumur gefinn, að vinna af alefli að útbreiðslu Dagrenningar. DAGRENNING ntun engan biðja um auglýsingu, en ef kaup- sýslumenn, sem hafa álniga á þcim málum, sem DAGRENNING flytur, vilja styrkja það með smá auglýsingu við og við, verður á það litið sem vináttu- merki og hlýhug í hennar garð. Aðalatriðið er þó AÐ ÚTVEGA NÝJA KAUP- ENDUR, því að á þeim byggist öll framtíð þessa rits. Dómar þeir, sem borizt hafa erlendis frá um DAGRENNINGU, eru hinir ágætustu og er hún um efni og frágang talin i röð fremstu rita um þessi efni. Þó gæti hún verið miklu betri en hún ennþá er, og það verður hún þegar á næsta ári, ef vinir hennar og velunnarar, bæði í Reykjavík og úti um land, leggjast á eitt og útvega dálítið af nýjum kaupendum. Gefið DAGRENNINGU 200 nýja kaupendur í jólagjöf. Þá er framtíð hennar tryggð fjárhagslega. Með beztu kveðju.

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.