Dagrenning - 01.10.1946, Blaðsíða 19
hann og þar langt í jörð niður! Það er vafa-
laust mjög gáfulegt að raða niður ferhyrn-
ingum, hringum, þríhyrningum og öðru þess
háttar, með öllum þess stærðfræðilegu fylgi-
fiskum, og búa þannig til tímamælikvarða,
sem sýnir ártol þau, sem óskað er eftir, og
setja svo alla snilldina á myndir af Pýramid-
anum og umhverfi hans og láta líta svo
út, að það sé hluti af honum. Venjulegum
almúgamanni, sem kynni að leika liugur á
að fræðast um Pýramidann, rnyndi finnast
þessi mikli auðsæi lærdómur sér ofvaxinn,
og hugsa sem svo, að þótt sér væri ekki veitt
sú hámenntun, sem nauðsynleg væri til
skilnings á honum, þá væri eigi að síður í
sannleika undursamlegt, að hann skyldi kom-
ast að þeim dásamlegu niðurstöðum, sem
látnar væru í ljós! Sannarlega er það mjög
dásamlegt fóstur mannlegrar skarpskyggni;
en sem aðferð til þess að komast að réttu
tímatali í Guðs innblásna Pýramida er það
beinlínis skiípaleikur. En samt virðast hinir
snjöllu uppfinningamenn þessara kennisetn-
inga ekki gera sér það ljóst. En er það hins
vegar nokkur furða, þótt allmargir þeirra
manna, sem hugsa gaumgæfilega, hafi orðið
þreyttir á þessum ruglingslegu pýramidaskýr-
ingum og misst áhugann fvrir málefninu,
þegar notuð er þessi rúmfræðilega leikfimi,
ásamt ýmsum áðumefndum, samhengislaus-
um skýringaraðferðum, í því skyni að ná í
ártöl þau, sem óskað er eftir. Ef pýramida-
fræðin á að dafna, eins og hún ætti að gera,
og hin dásamlegu sannindi Pýramidans eiga
að ná viðurkenningu í öllum mikilleika sín-
um og tign, þá verður að hætta við allt þess-
arar tegundar, og við það verður áreiðanlega
hætt, þegar fólkinu er orðið ljóst hið raun-
verulega ástand.
Vér höfum komizt að því, eins og sýnt
er hér að framan, að upphaf lárétta gangsins
táknar sköpun Adams, og sá staður merkir
5394 f. K. Þetta höfum vér fundið með því
að mæla lárétta ganginn og drottningarsal-
inn, nákvæmlega eins og þeir voru gerðir,
og nota mælikvarðann, sem opinberaður var,
óslitið allt frá upphafi gangsins og yfir
drottningarsalinn út að vegg og láta skeika
að sköpuðu, hver niðurstaðan yrði. Svo sem
fram hefir verið tekið, er þetta hins vegar
annað ártal en venjulega er talið, og allt
annað en það, sem vér myndum áður hafa
búizt við. En gangakerfið inni í Pýramid-
anum er mælikvarði, sem markaður er á
harðan stein, og oss þýðir ekki við það að
etja. Ártalinu verður því ekki breytt. Hvert
ei þá næsta skrefið til þess að ráða gátuna?
Rökfræðilega rétta áfranihaldið er að rann-
saka tímatal Biblíunnar eins vandlega og
unnt er, til þess að finna nákvæmlega sköp-
unarár Adams. í riti voru, „Vísindaleg sann-
pióíun á tímatali Hebrea“, höfurn vér beitt
leitandi gagmýni að öllum atriðum í tíma-
tali Hebrea, allt til tíma Abrahams, og not
að þar, svo sem föng voru til, prófanir á
samtíðar atburðum, tímatals„brýr“, rann-
sökuð tímabil og fornfræðistaðreyndir. í riti
þessu er tímatalskráin sjálf 200 síður og
greinir öll einstök atriði, allt til komu ísra-
elsmanna inn í fyrirheitna landið, en í text-
anum er gagnrýnandi grein gerð á tímatal-
inu aftur til Abrahams. Fyrir þann tíma og
einkum fyrir flóðið er ekki þægilegt að tala
um tímatal Hebrea, því að það var engin
þjóð til með því nafni og í raun og sann-
leika voru engir Hebrear til á fyrri tímum
fornu ættfeðranna. Fyrir því gerðum vér, á
síðustu blaðsíðum bókar vorrar, aðeins stutt-
lega grein fyrir æfiskeiðum ættfeðranna, sem
uppi voru fyrir tíma Abrahams, á sama hátt
og gert er í ensku Biblíunni, án sams konar
rannsóknar eða gagnrýnandi skoðunar, eins
og vér beittum við alla sögu Hebrea frá tím-
urn Abrahams og eftir það. í riti þessu kom-
umst vér að raun um, að Abraham kom til
Kanaanslands um vorið 1923 f. K. Þar eð
DAGRENNING 17