Dagrenning - 01.10.1946, Qupperneq 12
bridge Ancient Ilistory segir svo um þetta á
bls. 233 í VI. bindi: „Evðileggingin átti sér
sennilega enga hliðstæðu í sögu Grikklands,"
og ennfremur að Filippus hafi haldið sigur-
hátíð rnikla og „fagnað sigurvinningum sín-
um með skemmtunum, sjónleikjum og ríku-
legunr veizluhöldum", og fáum máuuðum
síðar livatti ísokrates Filippus til þess að ráð-
ast á Persa. (Historians Histor)' of the World,
2. bindi bls. 563). Ef talin eru nú 2300 ár
frá því að hinir tröllauknu landvinningar
Filippusar hófust, árið 348, þá ber það að
árinu 1953 e. K. (2300 — 348+1 = 1953) og
þá á hreinsun helgidómsins að hefjast. Einn-
ig hcr ber Pýramidanum mikla og Biblíunni
nákvæmlega saman, því að 1953 er einmitt
lokaártalið, sem opinberað er með konungs-
salnum. Þar eð tímatalstakmarkið á kon-
ungssalnum er 1953, bendir það til þess, að
þá verði hin guðdómlega ráðstöfun fullgerð
og albúin til þess að hreinsa helgidóminn og
rétta hlut ísraels í samræmi við hið guðlega
lögmál.
Hve lengi verður verið að hreinsa? Spá-
dómur Daníels sýnir oss, að 2300 árin eru
talin frá valdatímum Grikkja. Gríska veldið
tók að vaxa árið 348 f. K., svo sem sýnt hefir
verið, og það stóð í blóma nokkuð yfir 40 ár,
eða allt til 307 f. K., en þá tók það að liðast
sundur. Það ár héldu þeir feðgar, Demetrius
og Antigonus faðir hans, sigurinnreið sína
í Aþenu, og voru hylltir sem konungar, en
árið eftir fékk Antigonus konungdóm í Sýr-
landi, og áður en næsta ár var á enda runn-
ið, var búið að hluta allt gríska keisaraveldið
sundur, og laut hver hluti sérstökum kon-
ungi, en konungsætt Alexanders var aldauða.
Hreinsun helgidómsins á því að vera lokið
2300 árum eftir 307 f. K., þ. e. 1994 e. K.
Að ártal þetta sé rétt, er staðfest með því,
að fagnaðar-útreiknigarnir sýna, að á árinu
1994 e- K. hefst fagnaðarhátíðin mikla,
„endurreisnartími allra hluta", þ. e. þúsund
ára ríkið í allri sinni dýrð.* Vel fer á því
að svo sem lokaártal konungssalarins er
1953, svo er og hinsta ártal blinda loka-
gangsins, og þar með alls niðurhallandi kerf-
isins, 1994. Sýnir þetta að fyrirkomulag
gönrlu skipanarinnar verður þá að fullu horf-
ið, og þar af leiðandi, að þúsund ára ríkið
verður þá að fullu rnyndað. Hreinsun helgi-
dómsins stendur því yfir full 40 ár; frá árs-
lokum 1953 og fram á árið 1994, og er það
vígslutími þúsund ára ríkisins. Með öðrum
orðurn: Á þeim tíma verður ísrael að fullu
skírður og búinn undir guðdómlegar skyld-
ur þær, sem honurn cru ætlaðar í þúsund
ára ríkinu. Helgidómurinn mun og verða
hreinsaður í öðrum skilningi. Falstrúarkenn-
ingum og röngum vísindalegum skoðunum,
sem stríða gegn orði Guðs og sönnum vís-
indalegum staðreyndum, verður útrýmt, og
sannleikurinn opinberast. Við þennan tíma
er átt í 20. kap. Opinberunarbókarinnar, þar
sem talað er um að binda Satan.
Það ætti og að hafa hugfast, að þúsund
ára ríkið er háð lögmálum og tímamörkum
cins og öll önnur löng spádómstímabil.
Vígslutími þúsund ára rikisins er frá 1953
e. K. til 1994 e. K., og þúsund árum síðar
er samsvarandi takmarka tímabil, nákvæm-
lega jafnlangt, eða frá 2953—2994, og í
Biblíunni er það nefnt „stutta tímabilið",
* Hjá ísraelsmönnum fornu var fagnaðarárið
alltaf næst á eftir hvíldarári. Sögulegar hcimildir eru
fvrir því, að árin 164—163 f. K., 38—37 f. K. og
68—69 e. K. voru hvíldarár. Væru hvíldarárstíma-
hil þessi enn við liði, myndi árið 1993—1994 vera
hvíldarár, og er þá vcl við hæfi, að árið eftir, 1994
—1995, sé fyrsta ár fagnaðartímabilsins mikla, þús-
und ára ríkisins. Tímabilið milli núverandi árs
(1945) og upphafs þúsund ára fagnaðarins rnikla, er
nákvæmlega eitt fagnaðartimabil, 49 ár. Þetta ártal,
1945, er og áberandi þáttaskipta tímabil í hinum
13 3 5 dögum í spádómi Daníels: „Sæll er sá, sem
þolugur þreyr og nær eitt þúsund þrjú hundruð
þrjátíu og fimm dögum“.
10 DAGRENNING