Dagrenning - 01.10.1946, Síða 18

Dagrenning - 01.10.1946, Síða 18
um tímatal. Innri gerð Pýramidans er upp- dráttur húsameistara. Húsameistarinn er hinn almáttugi sjálfur. Uppdrátturinn er hinn guðlegi uppdráttur af öldunum. Guð vill að vér treystum sér skilyrðislaust og við- urkennum Pýramidan hans nákvæmlega eins og hann lét reisa hann.Guð mun engarþakk- ir gjalda oss fyrir að bæta kænlegu skrauti voru við teikningu hans, teikningu, sem þeg- ar er fullkomin og allt í senn:: blátt áfram, flækjulaus og óbrotin, og eigi að síður ótví- ræð, tignarleg og mikilfengleg, — einmitt svo senr vér getum búizt við af opinberun Guðs til barna hans. Það er skylda vor að láta hinn guðinn- blásna Pýramida fræða oss á þann hátt, að vér skiljum hann samkvæmt því, hvernig hann er gerður, án þess að bæta þar heima- gerðum rúmfræðilegum aukum vorurn fram- an við upphaf og aftan við lok ganganna og salanna til þess að fá út ártöl, sem eru sam- hljóða kennisetningum vorum um tímatal, sem vér æskjurn eftir að setja á Pýramida Guðs. Það er auðsætt, um mælikvarða þá, sem ætlaðir eru til tímaákvörðunar, að sama mælikvarða verður alltaf að nota alls staðar í þeirn hluta, sem hann á við. Það er alger- lega samhengislaust, ef breytt er að vild um mælikvarða í miðjum gangi eða sal. í þessari litlu bók ræðum vér einkum um þá grein- ina, sem mynduð er af lárétta ganginum og drottningarsalnum, og við mælingu á henni hefir einn flokkur alkunnra pýramidaskýr- enda gerzt svo djarfur að breyta um tíma- mælikvarðann í miðjum drottningarsalnum; með öðrum orðum, frá innganginum og miðja vegu yfir gólfið er einn mælikvarði notaður, en frá rniðju gólfi og yfir að veggn- um andspænis er notaður annar gerólíkur mælikvarði! Þess háttar aðferðir hefðu aldrei átt að fá byr í seglin. Auk þessa er það kenn- ing þessara sömu pýramidaskýrenda, að þús- und ára ríkið, dýrðlegasta tímabilið í allri liinni guðlegu áætlun, sé alls ekki táknað í Pýramidanum, með nokkru af göngum hans og sölum, og spádómar Pýramidans nái ekki lengra en til ársins 2001 e. K. (aðeins 56 ár fram i tímann). Sagt er að ár þetta sé hið hinsta í 6000 ára löngu tímabili og upphafs- ár nýrrar aldar í hinni guðlegu áætlun, og ætti því að vera mjög áberandi bent til þess í mannvirkinu, með upphafi eða enda gangs eða salar, en jafnvel því er svo farið, að eina sönnunin, sem fram er borin, til þess að fá þctta fyrirfram ákveðna ártal til að koma í Ijós í göngum eða sölum Pýramidans, er hugsuð lína, sem dregin sé gegnurn miðju tveggja hellusteina (granit-laufsins) i forsaln- um, og til þess að fá þetta þráða ártal, 2001, á sérstaka þumlungs-mánuðar innskots mæli- kvarðann, hefir samtímis verið gripið til þess úrræðis, að sjóða sarnan ímyndaðar rúm- fræðimvndir, sem ná inn í fastan múrinn 48 fet inn fyrir konungssalinn, þar sem alls engir gangar eru til! Þessar ímynduðu rúm- fræðimyndir ná meira en 7 fetum aftur fyrir lóðréttan flöt á allra innstu takmörk alls gangakerfis Pýramidans, blinda lokaganginn handan við neðanjarðarhellinn! Þetta fyrir- fram ákvarðaða ártal, 2001, var fundið með því að trúa því, að Adarn hefði verið skap- aður 4000 árum f. K. og bæta síðan við, samkvæmt gamalli erfðavenju, 6000 árum til þess að finna lokaár görnlu skipanarinnar og upphaf þúsund ára ríkisins. Sannleikur- inn er sá, að 4000 f. K. og 2001 e. K. eru hvort tveggja ártöl, sem alls ekki eru rnörkuð í Pýramidanum; þess vegna hefir verið grip- ið til þess að finna upp ósannar, rúmfræði- legar myndir, sem fara langt úr fyrir tak- mörk ganganna og salanna í báðar áttir, til þess að reyna að setja þar inn þessi fyrirfram ákveðnu ártöl. Til þess að finna árið 4000 f. K., ern þessar ímynduðu rúmfræðimyndir látnar ná út fyrir grundvöll Pýramidans, og því nær 60 fet út í eyðimörkina umhverfis 16 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.