Dagrenning - 01.10.1946, Page 35

Dagrenning - 01.10.1946, Page 35
Tímatal guðlegu aldanna DROTTNI sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur“. Þess vegna byrjar fyrsti 1000 ára dagurinn, eftir að maðurinn er skapaður á jörðinni, samtímis því sem hinn mikli sjötti dagur sköpunarinnar endar, en það er nokkru eftir að maðurinn kemur til jarðar, því að maðurinn var skapaður á hin- urn sjötta langa degi, og þó tiltölulega nærri kveldi hans, þar sem hann var síðasta jarð- neska sköpunin á þeim degi. Þess verður vitanlega að gæta, að þessir löngu „dagar“ sköpunarinnar eru margfalt lengri en 1000 ára „dagamir“. Þessi atriði láta oss i té undursamlegan prófstein, til þess að reyna með nákvæmni alls tímatals mannanna um aldaraðirnar. Vér höfum fært sönnur á, að þúsund ára ríkið er áttundi þúsund ára dagurinn, og er þá auðvelt reikningsdæmi að finna ártölin á liinum þúsund ára dögunum allt til fyrsta dagsins. Vér vitum, að dögun fyrsta 1000 ára dagsins er við lok annars miklu lengri dags guðlegrar jarðsköpunar, og hún er nokkru eftir að Adanr var skapaður, af því leiðir, að frá sköpun Adams eru eitthvað meira en átta þúsund ár til upphafs þúsund ára ríkis- ins. Staðfesta ártölin, sem vér höfum til- greint í tímatali voru, þetta? Ef svo er, þá fáum vér þar samfellda sannanakeðju fyrir því, að tímatalið er hárétt. Vér komumst að því að sköpunarár Adams er 5394 f. K. og þúsund ára ríkið endar 2994 e. K. Tíma- bilið milli þessara træggja ártala er 8387 ár (5394+2994—1 = 8387) og staðfestir það nákvæmi tímatalsins. Áttunda 1000 ára deg- inum lýkur 2994 e. K. Fyrsti 1000 ára dag- urinn hefst þess vegna nákvæmlega 8000 ár- um áður eða 5007 f. K. (8000 — 2994+1 = 5007). Adam er þá skapaður 387 árum áður en hinum mikla sjötta degi sköpunarinnar lýkur. (5394—5007=387). Er vér gætum þess, að hinn mikli sjötti dagur sköpunar- innar er óralangt tímabil árþúsunda margra, þá eru 387 smámunir einir í samanburði við það. Adam er því skapaður, þegar hinn mikli sjötti dagur er að kveldi kominn, svo sem segir í upphafi fyrstu bókar Móse. Sjá mynd- ina hér að ofan. DAGRENNING 33

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.