Ægir - 01.01.2015, Side 16
16
F
isk
isk
ip
FISK Seafood hf. á Sauðárkróki
keypti frystiskipið Málmey SK
sumarið 1995 en það hét þá
Sjóli HF 1. Togarinn var smíðað-
ur sem frystitogari í Noregi árið
1987. Hann hefur því alla tíð
verið gerður út á frystingu en í
september síðastliðnum var
hafist handa við að taka allan
búnað af vinnsluþilfari og því
næst var skipinu siglt til Pól-
lands þar sem vinnsluþilfarið
var allt endurnýjað og klætt
upp á nýtt, lestarlúga færð og
lagfæringar gerðar í lest, eld-
hús og borðsalur endurnýjað og
skipt um stóran hluta togþil-
fars. Skipið var sandblásið hátt
og lágt, málað og því næst siglt
til Akraness og kom þangað í
desember. Þar var vinnslu- og
kælingarbúnaður frá Skagan-
um hf. og 3X Technology settur
um borð. Lokafrágangur fór
síðan fram á Sauðárkróki nú
undir lok janúarmánaðar.
Auk áðurnefndra fyrirtækja
komu komu að breytingum
Kælismiðjan Frost, sem hefur
með höndum allan kælibúnað í
skipinu, iTUB keraleiga á Dalvík
sem leigir rösklega 600 fiskiker í
lest og Vélaverkstæðið Þór í
Vestmannaeyjum sem fram-
leiddi tvö snúningsbönd fyrir
lest skipsins.
Auk áðurnefndra breytinga
á skipinu var toggálgi hækkað-
ur og færður aftar, ísgálgar voru
fjarlægðir og síður hækkaðar að
aftan til að fá meira skjól á
vinnusvæði við skutrennu.
Skipstjórar á Málmey SK 1
eru Björn Jónasson og Ágúst
Ómarsson, fyrsti stýrmaður er
Sæmundur Hafsteinsson og yf-
irvélstjóri Gunnar Sigurðsson.
Hjartað í kerfinu er myndgreiningarbúnaður sem bæði greinir tegundir og metur þyngd á hverjum einasta fiski sem fer í vinnsluna. Þessar upplýs-
ingar eru síðan nýttar til að stýra aflanum rétta leið, velja saman tegundir, stærðir og skammtastærðir í kerfinu.
Markmiðið að
fá hráefni í
hæsta gæða-
flokki í land
- segir Gylfi Guðjónsson,
útgerðarstjóri FISK Seafood
Þeir Albert Högnason, þróunarstjóri 3X Technology og Skagans, (t.v.)
og Gylfi Guðjónsson, útgerðarstjóri FISK Seafood, voru bæði bjartsýnir
og spenntir þegar uppsetningu kerfisins í Málmey var að ljúka og
reynsluveiðiferð að hefjast.