Ægir - 01.01.2015, Page 25
25
Gústaf segir fyrirtækið vel búið
tækjum, bæði til reykingar og
pökkunar, sem og vinnslu á lax-
inum en hann kemur beint úr
slátrun frá Fjarðalaxi á Patreks-
firði.
„Við fáum ferskan og heilan
lax hingað í hús tvisvar í viku,
flökum, reykjum, pökkum og
frystum. Það er mjög mikilvægt
að vera með gott hráefni og
hafa á einni hendi allan vinnslu-
ferilinn. Fyrir nokkrum árum
áttu vinnslufyrirtæki á reyktum
laxi í vandræðum með að fá
góðan fisk en á því er orðin
mjög mikil breyting allra síð-
ustu ár. Fiskeldi á Íslandi er á
uppleið og mikil gæði á fiskin-
um sem hjálpar okkur að fram-
leiða góðar afurðir fyrir okkar
viðskiptavini,“ segir Gústaf.
Reykt siglfirsk síld frá Egils hefur verið í verslunum hér á landi í tugi ára og þykir góð. Enda hefur fyrirtækið að baki sér tæplega 100 ára reynslu í
reykingu á síld.
Egils sjávarafurðir hafa fengið viðurkenningar fyrir reykta laxinn.