Ægir - 01.01.2015, Side 35
35
þessar breytingar eru gerðar í
mjög góðri sátt aðila,“ segir
Geir.
Tækifæri í auknu fiskeldi
Eins og áður segir framleiðir
Polyform bæði netabaujur og
fríholt úr mjúku plasti en auk
þess stórar baujur úr hörðu
plasti fyrir fiskeldiskvíar en á því
sviði hefur það lykilstöðu á
norskum markaði. Þá framleiðir
Polyform einnig flot fyrir hring-
nætur og er að hefja markaðs-
setningu á nýjum flotum sem
sérstaklega eru hönnuð fyrir
veiðar í Norður-Atlantshafi.
„Markaðir okkar eru um all-
an heim en stærsti markaður-
inn fyrir fríholtin og vörur úr
mjúku plasti séu skemmtibát-
arnir, það er alþjóðlegur mark-
aður. Við seljum rúmlega 40%
af heildarframleiðslu Polyform í
Noregi og eru það fyrst og
fremst vörur fyrir sjávarútveg-
inn og vörur fyrir fiskeldi, sem
er stór atvinnugrein í Noregi.
Hér á landi eru vörur Polyform
vel þekktar í sjávarútvegi en við
sjáum tækifæri í sölu á vörum til
vaxandi fiskeldis hér heima og
einnig í sölu á nýju nótaflotun-
um okkar,“ segir Geir.
Polyform er að setja á markað ný nótaflot sem sérstaklega eru hönnuð
fyrir veiðar í Norður-Atlantshafi.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu