Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2015, Page 35

Ægir - 01.01.2015, Page 35
35 þessar breytingar eru gerðar í mjög góðri sátt aðila,“ segir Geir. Tækifæri í auknu fiskeldi Eins og áður segir framleiðir Polyform bæði netabaujur og fríholt úr mjúku plasti en auk þess stórar baujur úr hörðu plasti fyrir fiskeldiskvíar en á því sviði hefur það lykilstöðu á norskum markaði. Þá framleiðir Polyform einnig flot fyrir hring- nætur og er að hefja markaðs- setningu á nýjum flotum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir veiðar í Norður-Atlantshafi. „Markaðir okkar eru um all- an heim en stærsti markaður- inn fyrir fríholtin og vörur úr mjúku plasti séu skemmtibát- arnir, það er alþjóðlegur mark- aður. Við seljum rúmlega 40% af heildarframleiðslu Polyform í Noregi og eru það fyrst og fremst vörur fyrir sjávarútveg- inn og vörur fyrir fiskeldi, sem er stór atvinnugrein í Noregi. Hér á landi eru vörur Polyform vel þekktar í sjávarútvegi en við sjáum tækifæri í sölu á vörum til vaxandi fiskeldis hér heima og einnig í sölu á nýju nótaflotun- um okkar,“ segir Geir. Polyform er að setja á markað ný nótaflot sem sérstaklega eru hönnuð fyrir veiðar í Norður-Atlantshafi. Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum. Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf meira í dag en í gær. Rannsóknir í þágu sjávarútvegs Gildi Matís  Frumkvæði  Sköpunarkraftur  Metnaður  Heilindi www.matis.is Stefna Matís er að  ... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins  ... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi  ... hafa hæft og ánægt starfsfólk Hlutverk Matís er að  ... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs  ... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu  ... bæta lýðheilsu

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.