Morgunblaðið - 15.01.2015, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
6
6
5
5
Síminn er stoltur bakhjarl
Reykjavík International Games
Upplifðu Reykjavík International Games með
Símanum, fangaðu öll ótrúlegu augnablikin og
deildu þeim jafnóðum. Síminn fylgir þér alla leið.
Þú getur meira með Símanum
RIG í vasanum
með m.rig.is
Á farsímavefnum
finnurðu dagskrá
leikanna, mynda-
straum, fréttir og
allar upplýsingar.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þeir sem innrituðu sig í lok síðasta
árs geta átt von á því að bíða í þrjá
mánuði eftir að komast í áfengis- og
vímuefnameðferð,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi.
„10. janúar síðastliðinn voru
hundrað og fimmtíu einstaklingar á
biðlista hjá SÁÁ. Ég á von á því að
biðlistinn lengist og verði kominn í
þrjú hundruð einstaklinga í lok
mánaðarins. Það er oft mjög margt
fólk sem leitar sér meðferðar í
fyrsta skiptið á fyrstu mánuðum
ársins,“ segir hann.
Þarfnast meira fjármagns
„Það fer þó eftir því hvernig
ástatt er fyrir hverjum og einum
hversu löng biðin er. Það eru
ákveðnar vinnureglur um það
hvernig tekið er af þessum biðlist-
um og þá eiga þeir til að mynda for-
gang sem hafa ekki verið í meðferð
áður. Svo metum við líka hversu
veikt fólk er,“ segir Þórarinn og
bendir á að fólk geti leitað sér
stuðnings á göngudeildum á Akur-
eyri og í Reykjavík meðan á biðinni
stendur.
„Heilbrigðisráðuneytið, sem
leggur til fjármuni í okkar starf-
semi, treystir sér ekki til þess að
kaupa meira en sextán hundruð
innritanir. Við fáum fjármagn frá
almenningi og það hefur hjálpað
okkur gríðarlega mikið. Það brúar
þó ekki bilið, við þurfum fjármagn
frá heilbrigðisráðuneytinu til þess
að laga ástandið,“ segir hann.
Morgunblaðið/Heiddi
Meðferð Biðin eftir að komast í áfengis- og vímuefnameðferð hjá SÁÁ er löng.
Allt að 3 mánaða
bið hjá SÁÁ
Býst við um þrjú hundruð á biðlista
Hvorki gengur né rekur í kjaradeilu
Norðuráls á Grundartanga og fimm
stéttarfélaga starfsmanna álversins
um nýjan kjarasamning. Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness
(VLFA), segir
djúpa á gjá á milli
viðsemjenda eftir
seinasta fund sem
haldinn var hjá
Ríkissáttasemj-
ara sl. þriðjudag.
Þetta var sjötti
fundurinn í deil-
unni en boðað er
til næsta fundar í
næstu viku.
Tekist er á um launakröfur og
breytt vaktafyrirkomulag en félögin
vilja hverfa frá 12 tíma vaktakerfi og
taka upp 8 tíma kerfi eins og tíðkist
hjá Elkem Ísland og Alcan í
Straumsvík. Vilhjálmur segir slíkt
kerfi fjölskylduvænna og m.a. gera
konum betur kleift að sækja um
störf í álverinu. Í umfjöllun um stöð-
una á heimasíðu VLFA segir að
starfsmenn og stéttarfélög muni
sækja fram leiðréttingar á kjörum
starfsmanna af fullum þunga. Í
næstu viku boðar VLFA til fundar í
Bíóhöllinni á Akranesi þar sem gera
á starfsmönnum grein fyrir gangi
viðræðna og til hvaða ráðstafana
verði hægt að grípa.
Samkvæmt kjarasamningnum
opnast verkfallsréttur ekki fyrr en
eftir þrjá mánuði og síðan líða
nokkrir mánuðir þar til hann fer að
virka að sögn Vilhjálms. Sérstök
ákvæði eru í samningnum um lengri
aðdraganda að mögulegum verk-
fallsaðgerðum en almennt gildir til
að koma í veg fyrir tjón á tækjabún-
aði álversins og verður ekki boðað til
verkfalls nema með minnst þriggja
mánaða fyrirvara og tæki verkfall þá
gildi í stigvaxandi skrefum. Stéttar-
félögin könnuðu að ósk trúnaðarráðs
starfsmanna möguleika á að kjósa
um yfirvinnubann en Vilhjálmur
segir að yfirvinnubann flokkist undir
verkföll skv. lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur og því gæti það ekki
tekið gildi strax. Hins vegar geti sér-
hver starfsmaður hafnað vinnu um-
fram vinnuskyldu en stéttarfélögin
megi ekki efna til skipulagðra kosn-
inga um slíkt.
„Við erum hér að tala um útflutn-
ingsfyrirtæki sem hefur ætíð gengið
vel sem betur fer og er eitt af burð-
arstólpum fyrirtækja á Íslandi og við
viljum bara fá meiri hlutdeild,“ segir
Vilhjálmur. Hann segir að ef ekki
verði stefnubreyting af hálfu for-
svarsmanna Norðuráls á næsta
fundi sé ekki um annað að ræða en að
slíta viðræðunum. omfr@mbl.is
Gjá í deilu stéttar-
félaga og Norðuráls
Formaður VLFA segir viðræðum slitið verði ekki breyting
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álver Sex árangurslausir fundir hafa farið fram milli Norðuráls og 5 stétt-
arfélaga. Félögin krefjast launahækkana og breytinga á vaktakerfi.
Vilhjálmur
Birgisson