Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef verið að teikna fráþví ég var lítil stelpa. Égvar mjög ung þegar égfór að teikna myndir þar
sem ég notaði myndirnar á hlustrum
Disney-teiknimynda sem fyrir-
myndir. Tímon og Pumba voru þeir
fyrstu sem ég tókst á við þar,“ segir
Jenný Rut Arnþórsdóttir en hún
hefur nóg að gera við að teikna and-
litsmyndir af fólki eftir ljósmyndum.
Allra fyrsta portrettmyndina gerði
Jenný þegar hún var sautján ára,
svo hún hefur fengið góða æfingu í
meira en áratug.
„Þetta spurðist fljótt út og sí-
fellt fleiri leituðu til mín. Ég fór því
að sérhæfa mig í andlistmyndum og
í fyrstu notaði ég blýanta og þær
myndir voru svarthvítar, en núna
geri ég flestar myndirnar í lit og
nota tréliti, enda finnst mér það
miklu skemmtilegra.“
Hún segir mesta eftirspurn
vera eftir myndum af börnum. „En
ég hef líka gert myndir af fullorðnu
fólki, ég teiknaði til dæmis mynd af
konu sem henni var gefin í fimm-
tugsafmælisgjöf og ég teiknaði
mynd af ömmu minni og afa sem ég
gaf þeim í brúðkaupsafmælisgjöf.“
Þrívíð teikning spennandi
En Jenný fæst ekki einvörð-
ungu við að teikna andlitsmyndir,
hún málar líka með olíulitum og eins
hefur hún náð góðum árangri í að
teikna þrívíðar myndir.
„Mér finnst þrívíð teikning af-
skaplega spennandi og frumraun
mín í því var köngulló sem ég er
harla ánægð með. Þetta liggur allt í
skuggunum, ef maður setur þá á
réttan stað verður þetta ótrúlega
raunverulegt. Mig langar að færa
mig aðeins meira inn á þrívíða sviðið
og ég er að æfa mig. Ég hef líka að-
eins verið að færa mig yfir í olíu-
málverk en ég er enn að þróa stílinn
þar.“
Margmiðlunarfræðingur
Jenný útskrifaðist á sínum tíma
frá á listnámsbraut í Borgarholts-
skóla og bætti síðan við sig til að
taka stúdentinn. Auk þess útskrif-
aðist hún sem margmiðlunarfræð-
ingur frá Margmiðlunarskólanum.
„Ég er í fæðingarorlofi núna en
því lýkur í næsta mánuði og þá von-
ast ég til að fá vinnu sem hæfir minni
menntun.“
Jenný setur myndirnar sínar
inn á Facebook-síðuna: galleri.j-
enny, og þeir sem vilja láta teikna
fyrir sig mynd geta haft samband
við hana með því að senda henni
tölvupóst á netfangið:
jenny.arnthors@gmail.com
Hefur sérhæft
sig í andlits-
myndum
Morgunblaðið/Ómar
Listakona Jenný við stórt olímálverk af hesti sem hún málaði, en hana langar að mála meira í olíu.
Hún var ekki nema sautján ára þegar hún teiknaði
sína fyrstu portrettmynd. Sífellt fleiri leita til hennar
og biðja um að hún teikni andlit eftir ljósmyndum.
Spenntur Þessi reisir sig upp.
Blýantsteikning Brosmildir eru þeirog kankvísir þessir piltar.
Könguló Þrívíð teikning Jennýar.
Bros Ungt bláeygt barn á teppi.
Stúlka Fyrsta mynd Jennýar í lit.
Fjarðarkaup
Gildir 15. jan. – 17. jan. verð nú áður mælie. verð
Lambainnralæri úr kjötborði ............................. 2.398 3.598 2.398 kr. kg
Svínahnakki úrb. úr kjötborði............................ 1.245 1.598 1.245 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði.................................... 1.498 2.398 1.498 kr. kg
Nautahakk 1.fl ................................................ 1.398 1.766 1.398 kr. kg
Hamborgarar 2 x 115 g m/brauði..................... 506 562 506 kr. pk.
KF lambalæri frosið sérverkað........................... 1.279 1.498 1.279 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Eyþór