Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Athugasemdir voru gerðar við full- yrðingar sem settar voru fram í aug- lýsingum fyrir magnesíumsprey sem selt er hér á landi eftir að íslenskur læknir sendi kvörtun til bresku aug- lýsingaviðmiðastofnunarinnar ASA (Advertising Standards Authority). Íslenska fyrirtækið Gengur vel sem flytur spreyið inn breytti texta á vef- síðu sinni um efnið eftir að Morgun- blaðið byrjaði að grennslast fyrir um málið. Breska fyrirtækið Better You framleiðir magnesíumvörur sem eru bornar á húð, meðal annars spreyið Magnesium Sport. Fyrirtækið hélt því fram að mannslíkaminn tæki magnesíum hraðar upp í gegnum húð en með hefðbundinni inntöku og að vörur þess hefðu jákvæð áhrif á vöðva, bein og orkuframleiðslu. Efnið hefur meðal annars verið markaðs- sett hér á landi og erlendis sérstak- lega fyrir íþróttafólk. Ekki fullnægjandi rannsóknir ASA kvað hins vegar upp úrskurð í nóvember á þá leið að rannsóknir sem Better You vitnaði til væru ekki full- nægjandi til að styðja fullyrðingar í auglýsingum fyrir vöruna. Gaf stofn- unin út þau tilmæli að auglýsingarnar yrðu ekki settar fram á sama formi aftur og að fyrirtækið forðaðist að setja fram fullyrðingar sem ekki væri hægt að styðja sönnunargögnum í framtíðinni. ASA er sjálfstæð stofnun sem hef- ur eftirlit með auglýsingaiðnaðinum í Bretlandi. Hún hefur ekki lögbundið hlutverk á vegum ríkisins þannig að hún getur ekki framfylgt lögum en hún úrskurðar um kvartanir sem varða auglýsingar og fylgist með því að farið sé eftir siðareglum. Vandamálið við nýsköpun Þegar Morgunblaðið byrjaði að kanna málið voru svipaðar fullyrðing- ar um upptöku magnesíum í gegnum húð á vefsíðu Gengur vel. Sigrún Kjartansdóttir, fram- kvæmdastjóri Gengur vel, segist í skriflegu svari til Morgunblaðsins hafa frétt af úrskurði ASA í desem- ber. Í kjölfarið hafi hún haft samband við Andrew Thomas, stofnanda og framkvæmdastjóra Better You. Beð- ið sé niðurstaðna klínískra rannsókna um virkni spreysins en þangað til hafi fyrirtækið ákveðið í samráði við Bet- ter You að breyta orðalagi um virkni spreysins á vefsíðu sinni. Eftir sem áður er þó fullyrt á vefsíðu Better You að magnesíum berist hratt í gegnum húðina. Í samtali við Morgunblaðið segir Thomas að ASA hafi veitt fyrirtækinu aðlögunartíma til að breyta auglýs- ingum sínum en hann vonist til þess að komið verði á hreint hvað fyrirtæk- ið geti fullyrt í lok þessa mánaðar. At- hugasemdir ASA lytu fyrst og fremst að því hvort upptaka magnesíums væri hraðari í gegnum húð en með hefðbundnum leiðum. Því hafi fullyrð- ingum með beinum samanburði við hefðbundna inntöku verið breytt. Það er fyrst og fremst skortur á klínískum rannsóknum sem Thomas segir ástæðu þess að ASA hafi ekki talið fót fyrir fullyrðingunum um magnesíumspreyið. Sendi hann Morgunblaðinu afrit af þeim rann- sóknum sem fyrirtækið vísaði í þeim til stuðnings. Þá tók hann fram að verið væri að undirbúa nýja rannsókn á upptöku magnesíums um húð. „Því miður er þetta vandamálið við að vera í fararbroddi nýsköpunar. Enginn annar starfar á þessu sviði þannig að sannanir koma aðeins eins hratt og við getum borið þær fram,“ segir Thomas. Myndu fárveikjast við sjóböð ASA hafnaði hins vegar gildi þeirra rannsókna sem Thomas sendi Morg- unblaðinu í úrskurði sínum. Þau gögn bar blaðamaður jafnframt undir Magnús Jóhannsson, lækni og pró- fessor í lyfjafræði. Hann segir gögnin ómerkileg, augljósir gallar séu á rannsóknunum og niðurstöður þeirra hafi ekki birst í ritrýndum ritum. Ekki hafi verið sýnt fram á að magn- esíum sem borið sé á húð gagnist lík- amanum þó að ekki sé hægt að útiloka það. „Það eru eflaust einhver skipti á saltjónum gegnum húðlögin en það er svo lítið að það gerir hvorki til eða frá. Húðin verndar okkur gegn því. Ef við soguðum upp magnesíumklóríð á þeim hraða og í því magni sem þarna er fullyrt þá myndum við verða fár- veik við sjóbað,“ segir Björn Geir Leifsson skurðlæknir sem kvartaði undan auglýsingum Better You til ASA. Auglýsi ekki ólöglega Sigrún segir að magnesíumspreyið verði auglýst með viðeigandi hætti á meðan beðið sé niðurstaðna klínískra rannsókna. Engar athugasemdir hafi borist frá íslenskum eftirlitsstofnun- um vegna vörunnar. Skv. heimildum Morgunblaðsins ætlar Neytendastofa þó að skoða málið. „Við bíðum eftir niðurstöðum rann- sóknarinnar en eigum ekki von á öðru en að hún staðfesti áðurnefnda virkni. Fyrstu niðurstöður benda til þess. […] Við munum að sjálfsögðu ekki auglýsa vörurnar okkar á ólögmætan hátt,“ segir Sigrún í skriflegu svari sínu. Fullyrðingum breytt eftir úrskurð ytra  Ekki talinn fótur fyrir fullyrðingum um magnesíumsprey sem selt er á Ísland  Gögnin sanni ekki virkni þess Morgunblaðið/Ómar Sala Efnið er m.a. selt í apótekum og kostar á fjórða þúsund krónur. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að kaupa landspildu sem er við sveitar- félagsmörk Reykjavíkur og Mos- fellsbæjar í þeim tilgangi að leysa ágreiningsmál á milli landeiganda og Reykjavíkurborgar. Bjarni Brynjólfsson, upplýsinga- stjóri Reykjavíkurborgar, segir að á sínum tíma hafi landinu verið af- salað til Mosfellsbæjar. Það liggi þvert í gegnum sumarbústaðaland og klippi það í tvennt. Reykjavíkur- borg kaupi landið til þess að geta sameinað þessa sumarbústaðalóð og gert hana að einum landskika. Gjaldið fyrir landið er rúmlega 100.000 krónur. Um er að ræða rúm- lega 200 fermetra svæði og tekur verðið ríflega mið af verði hektara lands í nýlegum viðskiptum, að sögn Bjarna. Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að selja landið. Borgin kaupir land í Úlfarsfellslandi  Um 200 fermetra svæði á 100 þúsund Morgunblaðið/ÞÖK Úlfarsfell Reykjavík nær og Mos- fellsbær fjær með fellið á milli. Samkvæmt lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þurfa fyrirtæki að geta sannað allar fullyrðingar sem koma fram í auglýs- ingum. Það má ekki veita villandi eða rangar upplýsingar. „Þetta er svolítið óljós og grár markaður. Þeir sem vinna á þessum markaði stíga stundum of langt yfir strikið en ég held að oftast sé það ekki vísvitandi,“ segir Aðalsteinn Jens Loftsson, formaður Lyfjafræð- ingafélags Íslands um markað með fæðubótarefni. Í raun og veru viti enginn hvaða efni séu til í landinu. Ekki séu gerðar sömu kröfur til þeirra og lyfja sem þarf sérstök leyfi fyrir og því geti fólk flutt inn og markaðssett ansi margt á eigin ábyrgð og áhættu. „Óljós grár markaður“ FÆÐUBÓTAREFNI 565 6000 / somi.is ÚT AÐ BORÐA MEÐ VINUNUM. Við bjóðum spennandi matseðil. Spellvirkjar skemmdu í gær minn- isvarða um hinn landsþekkta mót- mælanda Helga Hóseasson á Lang- holtsvegi. Minnisvarðinn er bekkur með áföstu skilti sem ber eitt af þekktustu slagorðum Helga og voru unnar skemmdir á skiltinu. Helgi var þekktur fyrir mótmæli sín gegn meintu órétti sem honum fannst hann hafa verið beittur af ís- lenska ríkinu. Í seinni tíð mótmælti hann einnig stuðningi ríkisins við stríð og ójöfnuð. Helgi lést 6. september 2009. Í ágúst 2010 var minnisvarðinn sett- ur upp og var þar um að ræða einkaframtak fjögurra manna sem vildu með þessu heiðra minningu Helga. Minnisvarðinn fékk því að standa óáreittur í rúm fjögur ár á Langholtsvegi þar sem Helgi stóð jafnan með mótmælaspjöld sín. Skemmdu minnisvarða Helga Hóseassonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.