Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Þremur verslunum Nóatúns verður á næstu mán-
uðum breytt í Krónuverslanir; í Grafarholti,
Hamraborg og Nóatúni, en eftir mun standa að-
eins ein Nóatúnsverslun, þ.e. í Austurveri. Nýlega
var Nóatúni í JL-húsinu lokað. Með breytingunni
fjölgar Krónubúðum í 16 og haft var eftir Kristni
Skúlasyni, rekstarstjóra Krónunnar, á mbl.is í
gær að þeim yrði fjölgað þar sem neytendur gerðu
kröfu um lágverðsverslanir frekar en þjónustu-
verslanir á borð við Nóatún.
Miklar breytingar urðu á eignarhaldi þessara
verslana í mars á síðasta ári þegar félagið Festi hf.
keypti fimm fyrirtæki af Norvik ásamt fasteign-
um. Með kaupunum tók Festi yfir rekstur
Kaupáss, sem rekið hefur verslanir Krónunnar,
Nóatúns, Kjarvals, ELKO og Intersport, auglýs-
ingastofunnar EXPO og vöruhótelsins Bakkans.
Stækkun í Hamraborg
Festi er í eigu félagsins SF V slhf. þar sem hlut-
hafar eru um 30 talsins, þar af eru nokkrir lífeyr-
issjóðir með um þriðjungshlut en aðrir eigendur
eru meðal annars einkafjárfestar, tryggingafélög
og Arion banki.
Jón Björnsson, forstjóri Festar, segir vonir
standa til að ljúka breytingum á verslunum Krón-
unnar og Nóatúns á vormánuðum. Fyrst verður
ráðist í breytingar í Grafarholti en að sögn Jóns
þarf að gera talsverðar breytingar í þessum þrem-
ur verslunum, auk þess sem verslunin í Hamra-
borg verður stækkuð.
„Þessar verslanir verða byggðar upp í anda
Krónunnar. Krónan hefur verið í góðum rekstri og
viðskiptavinir eru ánægðir með hvernig verslan-
irnar eru byggðar upp. Við höfum ekki verið í
þessum hverfum með Krónuna og viljum koma til
móts við neytandann,“ segir Jón.
Nóatún í Austurveri mun að hans sögn einnig
taka breytingum með meira vöruúrvali og þjón-
ustu. Þar verður áfram lögð áhersla á kjötborðið,
ferskvöru, heitan mat og veisluþjónustu.
Jón segir uppsagnir óhjákvæmilegar þegar
þessum verslunum Nóatúns verður lokað en
starfsfólkinu boðin störf í öðrum verslunum á veg-
um Kaupáss.
„Við erum með hátt í 1.000 starfsmenn í okkar
verslunum samanlagt og munum reyna að bjóða
öllu starfsfólki Nóatúns vinnu hjá okkur,“ segir
Jón.
Meðal starfsmanna Nóatúns hafa verið kjötiðn-
aðarmenn og segir Jón að þeim verði einnig boðin
sambærileg störf hjá Krónunni, enda séu kjötiðn-
aðarmenn þar einnig starfandi í tíu verslunum af
þrettán í dag.
Nóatúni breytt í Krónuna
Þrjár verslanir Nóatúns verða Krónuverslanir Nóatún áfram í Austurveri
Morgunblaðið/Eggert
Nóatún Þjónustuverslunum fer fækkandi er
þremur Nóatúnsverslunum verður lokað.
Nokkur tímamót verða þegar
Nóatún í Nóatúni hættir en þar
var fyrsta verslunin undir því
nafni opnuð árið 1965 af Jóni
Júlíussyni kaupmanni, eða fyr-
ir um hálfri öld.
Krónan verður opnuð þarna
á næstu mánuðum og ljóst að
framundan er samkeppni á
þessu svæði borgarinnar milli
Krónunnar og Bónuss, sem
hyggst opna verslun þarna
skammt frá á þessu ári, eða í
Skipholti.
Fyrsta verslunin
fyrir 50 árum
NÓATÚN Í NÓATÚNI
VERÐUR AÐ KRÓNUNNI
Nóatún Kjötborðið er aðalsmerkið.
Fjárhagslegur ávinningur af sam-
einingu Hafrannsóknastofnunar og
Veiðimálastofnunar er ekki mikill,
hvorki til langs né stutts tíma litið,
að mati Hafrannsóknastofnunar.
Þetta kemur fram í nýrri umsögn
stofnunarinnar um frumvarp sjávar-
útvegs- og landsbúnaðarráðherra,
sem gerir ráð fyrir sameiningu þess-
ara tveggja stofnana í eina stofnun
sem beri nafnið Haf- og vatnarann-
sóknir.
Í umsögn Hafrannsóknastofnunar
segir að sú leið sem hér sé valin hafi
nokkra hættu í för með sér sem geti
leitt til veikingar starfseminnar ef
ekki sé sérstaklega hugað að því.
„Niðurlagning beggja stofnana og
tilkoma Haf- og vatnarannsókna
skapar biðlaunarétt margra starfs-
manna beggja stofnana, sem gera
þarf ráð fyrir og myndi samkvæmt
greinargerð í frumvarpi hæglega
geta kostað á annað hundrað millj-
ónir króna,“ segir í umsögninni.
„Svo ekki skapist enn meiri fjár-
hagsvandi en nú er, þarf að tryggja
sérfjárveitingu til að mæta þessum
kostnaði. Það sem í þessu sambandi
er líka sérstakt áhyggjuefni er að
þetta fyrirkomulag gæti ýtt undir að
eldri starfsmenn með mikla þekk-
ingu og starfsreynslu gætu kosið að
láta af störfum vegna biðlauna-
réttar. Þetta gæti aukið á vanda sem
skapast hefur síðustu ár þegar ný-
ráðningar hafa verið í lágmarki og
aldursdreifing er nú með þeim hætti
að á næstu 10 árum munu 4 af hverj-
um 10 sérfræðingum Hafrann-
sóknastofnunar láta af stöfum fyrir
aldurs sakir (25 af alls 57 sérfræð-
ingum),“ segir þar einnig.
Því sé vert að kanna sameiningu
stofnananna án þess að farin verði
sú leið að leggja þær báðar niður og
virkja þannig biðlaunarétt fjölda
starfsmanna. omfr@mbl.is
Lítill fjárhagsleg-
ur ávinningur
Morgunblaðið/Kristinn
Hafró Sérfræðingar Hafrann-
sóknastofnunar skoða síldarsýni.
Hafró telur að
sameining geti veikt
starfsemina
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
• Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn
velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra
• Platinumlínan okkar er mjög sterk og
þolir uppþvottavél
Spiegelau er ekki bara glas
heldur upplifun
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin
tækifærisgjöf eða í matarboðið.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | progastro.is
Opið alla virka daga frá 09:00 – 17:00.
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Allt fyrir eldhúsið
Verð frá
2.490 kr.
Læknandi meðferð
við gláku ekki til
Í umfjöllun um glákurannsóknir
Gauta Jóhannessonar frá því á laug-
ardaginn segir að helmingur 82
milljóna króna rannsóknarstyrks
hans fari til launa en hið rétta er að
hluti styrksins fer til launa Gauta.
Þá má skilja umfjöllun sem svo að
lyf við glákusjúkdómi hafi ekki virk-
að. Nákvæmara er að segja að ekki
sé til læknandi meðferð en öll með-
ferð snýr að því að hægja á fram-
vindu sjúkdómsins með minnkun
augnþrýstings, m.a. með lyfjagjöf.
Þá segir að rannsókn Gauta snúist
um að kanna orsök gláku, en rétt er
að hún snýr að því að kanna orsök og
framvindu gláku. Það er gert með
því að skoða efnaskipti og blóðflæði í
sjónbrautum í heilanum, ekki sjón-
taugum eins og missagt var í
blaðinu.
LEIÐRÉTT
mbl.is