Morgunblaðið - 15.01.2015, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-
SIF og varðskipið Týr eru um þessar
mundir við eftirlit fyrir Frontex,
Landamærastofnun EU á hafsvæð-
inu í kringum Ítalíu.
„Vegna alvarlegs ástands í Mið-
jarðarhafi og mikils flæði flóttafólks
lagði Frontex mikla áherslu á að fá
tæki Landhelgisgæslunnar til aðstoð-
ar á svæðinu,“ segir í frétt á heima-
síðu Landhelgisgæslunnar.
Varðskipið Týr hóf eftirlit 1. des-
ember sl. en flugvélin TF-SIF í jan-
úarbyrjun og kemur hún aftur til Ís-
lands um miðjan febrúar.
Landhelgisgæslan tekur þátt í Fron-
tex-verkefninu í gegnum Schengen-
samstarfið en tuttugu og fimm Evr-
ópuríki eru fullir þátttakendur þess.
Kjarni Schengen-samstarfsins felst í
annars vegar að tryggja frjálsa för
einstaklinga um innri landamæri
samstarfsríkjanna og hins vegar að
styrkja baráttuna gegn alþjóðlegri af-
brotastarfsemi, segir í fréttinni.
Landhelgisgæslan (LHG) er nú,
sem endranær, með fulltrúa í sameig-
inlegri stjórnstöð sem tekur þátt í
áætlanagerð og er milliliður við varð-
skip og flugvél LHG. Til þessa hefur
LHG verið með fulltrúa í þremur
löndum, Spáni, Ítalíu og Grikklandi.
Tveir fulltrúar samtímis
Komið hefur fyrir að LHG hafi ver-
ið með fulltrúa í tveimur stjórnstöðv-
um samtímis, t.d. þegar varðskip var
staðsett við Spán og flugvélin við Ítal-
íu. „Með þessum verkefnum hafa
starfsmenn LHG í stjórnstöðvum
Frontex öðlast mikla reynslu og
þekkingu í alþjóðlegum samskiptum
á vettvangi löggæslu, eftirlits og
björgunarmála auk skipulagningar
aðgerða,“ segir í fréttinni á heimasíðu
LHG.
Þeir starfsmenn LHG sem sendir
eru til starfa í stjórnstöðvum Frontex
eru að öllu jöfnu skipstjórnarmenn
eða aðrir starfsmenn með umtals-
verða reynslu í stjórnstöð, flugdeild,
sjómælingadeild, sprengjudeild eða á
varðskipum. Viðkomandi starfsmað-
ur er á vakt allan sólarhringinn þann
tíma sem hann er á staðnum en það
eru að jafnaði þrjár vikur. Dagleg
störf fulltrúans eru margvísleg, hann
tekur þátt í daglegum stöðufundum,
greiningu og miðlun upplýsinga, að-
stoðar við samskipti milli eininga og
stjórnstöðva Frontex og/eða strand-
gæslu/sjóhers viðkomandi ríkis.
Einnig á fulltrúinn í daglegum sam-
skiptum við Landhelgisgæsluna á Ís-
landi og fulltrúa annarra þjóða í
stjórnstöðinni.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF og varðskipið Týr við eftirlitsstörf við strendur Ítalíu
Landhelgisgæslan er með fulltrúa í sameiginlegri stjórnstöð sem tekur þátt í áætlanagerð
Sif snýr til baka í næsta mánuði
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Gæslustörf TF-Sif og varðskipið Týr eru við störf á Miðjarðarhafi.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta er orðið ofsalega þreytt,
manni hundleiðist að vera í svona
óvissu. Ég var búinn að vera handa-
laus nákvæmlega í sautján ár núna
síðastliðinn mánudag, það er komið
fínt,“ segir Guðmundur Felix Grét-
arsson sem hefur beðið eftir ág-
ræðslu handleggja í Lyon í Frakk-
landi síðan í júní árið 2013. Heimild
var til fyrir aðgerðum af þessu tagi
en sú heimild rann úr gildi við laga-
breytingar veturinn 2013-2014. Unn-
ið hefur verið að endursamningu
reglna síðan þá svo Guðmundur Fel-
ix komist í aðgerðina.
Bjartsýnn á að komast í aðgerð
„Ég er enn að bíða eftir svari frá
nefnd sem er ábyrg fyrir því að setja
rammann utan um heilbrigðiskerfið,
hversu langt má ganga og þess hátt-
ar. Hún er ótrúlega lengi að þessu,
ég á þó von á svari frá henni í jan-
úar,“ segir Guðmundur en hann
kveður sambærilega aðgerð ekki
hafa verið framkvæmda áður og að
verið sé að fá heimild fyrir því að
ganga lengra en áður.
Guðmundur missti báða hand-
leggina í vinnuslysi árið 1998. Hann
var þá að vinnu við Úlfarsfellslínu
þegar hann fékk 11.000 volta raf-
straum í gegnum sig og féll átta
metra niður á frosna jörð.
Hann slasaðist alvarlega, brotnaði
á ótal stöðum og fjarlægja þurfti
handleggi hans. Hann var í dái í sjö
vikur.
„Ég er bjartsýnn á að þetta náist í
gegn. Að því gefnu að við fáum já frá
nefndinni fer ég væntanlega aftur í
ástandsskoðun. Ég fer síðan líkleg-
ast á lista og farið verður að leita að
gjafa. Sú bið getur verið frá einum
degi upp í eitt ár,“ segir Guðmundur
Felix um framhaldið.
Beðið í tæp tvö ár
eftir handleggjum
Tafir orðið á heimild fyrir aðgerðinni
Bið Guðmundur Felix bregður á
leik í borginni Lyon í Frakklandi.
Nýr vefur rammaáætlunar hefur
verið opnaður á nýju léni,
www.ramma.is. Vefurinn leysir af
hólmi eldri vef og tekur mið af
nýjustu kröfum um útlit og not-
endavænleika.
Verkefnisstjórn rammaáætl-
unar, sem skipuð er af umhverfis-
og auðlindaráðherra, hefur um-
sjón með vefnum. Þar er lögð
áhersla á ítarlegar og aðgengileg-
ar upplýsingar um vinnu sem
stendur yfir við rammaáætlun.
„Vefurinn er helsta tæki verkefn-
isstjórnar rammaáætlunar til að
miðla upplýsingum um starf sitt
og stöðu áætlunarinnar. Sögu
rammaáætlunar eru gerð skil, svo
og þeim hugmyndum og fræðum
sem að baki liggja. Auk þess er
vefurinn einn helsti samráðsvett-
vangur verkefnisstjórnar,“ segir í
frétt á vef ráðuneytisins.
Hugsmiðjan hannaði vefinn og
nýtt einkennismerki rammaáætl-
unar.
Vefur rammaáætl-
unar hefur verið
opnaður á nýju léni
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdóms-lögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttar-lögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
HÁR
Dreifingaraðili
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á
BEAUTY
INSIDERS´CHOICE
W I N N E R
COSMETIC EXECUTIVE
WOMEN UK
2014
Rótarlitun
WOW Þekur grá hár • Lýsir dökka rót • Fljótlegt • Endist á milli þvotta • 6 litir
Skoðaðu kynningarmyndböndin
á facebooksíðu hár ehf
Sölustaðir
WOW
Kúltúra
Hjá Dúdda
Salon Veh
Papilla
Labella
Höfuðlausnir
Fagfólk
Flóki
Scala
Gott Útlit
Modus
Medúlla
Amber
Hársaga
Hjá Ernu
Stjörnusól
Hair brush
Senter
Ozio
Hársetrið
Klippart
Strípur