Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
BAKSVIÐ
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Á morgun, 16. janúar, verða 20 ár
síðan fjórtán manns fórust í snjóflóði
í Súðavík. Í kjölfarið þurftu íbúar að
spyrja sig áleitinna spurninga eins
og þá hvort að rétt væri að byggja
samfélagið upp að nýju, eða hvort
flytja ætti þorpið í heilu lagi á annan
stað.
Pétur Georg Markan, sveitar-
stjóri í Súðarvíkurhreppi er 33 ára
aðfluttur Reykvíkingur sem tók við
starfinu í júní á síðasta ári. „Eftir að
áfallið dundi yfir barst inn í um-
ræðuna sú spurning hvort og hvern-
ig menn ætluðu að viðhalda byggð-
inni. Í því samhengi hjálpaði það íbú-
um Súðavíkur mikið að hafa tekið þá
gegnheilu afstöðu að vera hér
áfram,“ segir Pétur.
Ákvörðunin reynst happadrjúg
Slík ákvörðun krafðist kjarks þar
sem byggja þurfti upp bæjarfélagið
upp frá grunni, innar í firðinum við
Ísafjarðardjúp þar sem engin ógn er
af snjóflóðum. „Öðru fremur er þessi
afstaða ástæða þess að hægt er að
halda uppi þessu kraftmikla sam-
félagi sem við búum að í dag,“ segir
Pétur. Eftir að ákvörðunin hafði ver-
ið tekin um að hefja uppbyggingu á
nýjum stað þurfti nýtt deiliskipulag.
„Það er fáheyrt að slíkt hafi verið
gert og eftir á að hyggja hefur þessi
ákvörðun reynst happadrjúg og góð
fyrir íbúa,“ segir Pétur.
Til þess að hægt hafi verið að
halda byggðinni gangandi þurfti að
halda atvinnustarfsemi gangandi
auk þess að huga að innviðum sam-
félagsins. „Það er nokkuð merkileg
staðreynd að Súðvíkingum fækkaði
ekki á næstu árum eftir að flóðið féll.
Svona harmleikur og áfall hafði ekki
áhrif á íbúaþróun svo merkjanlegt
væri,“ segir Pétur.
Hann segir að samfélagið hafi
staðið af sér áföll og atvinnumissi
vegna breyttra áherslna í sjávar-
útvegi. „Það hafa ekki verið nátt-
úruhamfarir á borð við snjóflóð sem
hafa haft áhrif á byggðaþróun í
Súðavík, heldur töpuð störf sem
tengjast miklum breytingum í sjáv-
arútvegi, sem er afar umhugs-
unarvert, “ segir Pétur
Stoltir af skólanum
Í Súðavík búa 212 íbúar en upp á
síðkastið hefur átt sér stað örlítil
fjölgun sem er nokkuð úr takti við að
sem er að gerast í nágrannasveit-
arfélögum á Vestfjörðum. „Það sem
er jákvætt við þessa íbúaþróun er
það að við erum að fá barna-
fjölskyldur og meðalaldurinn er að
lækka. Það eru ýmis jákvæð teikn á
lofti,“ segir Pétur.
Að sögn hans eru íbúar afar stoltir
af grunnskóla Súðavíkur þar sem 36
nemendur stunda nám en í skól-
anum eru einnig nemendur á leik-
skólaaldri. „Við leggjum mikla alúð
við þessa stofnun og ég held að á
engan sé hallað þegar ég segi að
Súðavíkurskóli sé ákveðin fyr-
irmynd fyrir aðra skóla á Vest-
fjörðum. Mikill metnaður er í starf-
inu og lagðir eru til miklir fjármunir
sem helgast af því að við vitum að
skólinn er fjöreggið í samfélaginu,“
segir Pétur
Nægar vinnandi hendur
Stærsti atvinnuveitandinn í Súða-
vík er HG Gunnvör sem sinnt hefur
þorskeldi og lifrarvinnslu. Fyr-
irtækið hefur uppi áform um að setja
á fót regnbogasilungseldi samhliða
þorskeldi. Þá hefur hreppurinn og
Íslenska kalkþörungafélagið und-
irritað viljayfirlýsingu um að setja á
fót kalkþörungaverksmiðju árið
2018.
Ef að því verður munu skapast
tugir starfa í samfélaginu. „Til að af
þessu geti orðið þarf atfylgi og skiln-
ing hins opinbera, t.d. þarf að bæta
og efla aðgengi og dreifingu á raf-
orku á svæðinu, sem löngu er kom-
inn tími á. Fyrst og fremst þurfum
við skýra stefnu stjórnvalda í mál-
efnum landsbyggðarinnar svo hér sé
hægt að taka á móti spennandi upp-
byggingarverkefnum. Ég hef fulla
trú á að stjórnvöld komi inn af krafti
og leggist á sveifina með okkur til að
tryggja hér líf og starf í framtíð-
inni,“ segir Pétur.
Aðspurður telur hann að nægar
vinnandi hendur séu til staðar í
þorpinu til þess að sinna þeim störf-
um sem munu skapast verði af upp-
byggingaráforum. „Það er okkar
hlutverk sem rekum og sinnum
sveitarfélaginu að jákvæð íbúaþróun
haldist áfram. Við verðum með
hendur til þess að vinna þessi störf.
Þetta er ákaflega jákvætt og spenn-
andi verkefni fyrir okkur sem sinn-
um sveitarfélaginu að vinna að því
að stækka sveitarfélagið og fjölga
íbúum,“ segir Pétur.
Samstaða í skugga harmleiks
Tuttugu ár liðin frá því að snjóflóð féll á Súðavík og 14 fórust Fólk þurfti að svara því hvort bú-
andi væri í þorpinu Gerðu nýtt deiliskipulag og færðu þorpið Uppbyggingaráform framundan
Morgunblaðið/Golli
Fjöregg samfélagsins Pétur G. Markan, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, segir uppbyggingu samfélagsins hafa tek-
ist vel í kjölfar snjóflóðsins árið 1995. Meðal stofnana sveitarfélagsins er 36 nemenda leik-, tónlistar- og grunnskóli.
Sveitastjóri Pétur G. Markan, sveit-
arstjóri í Súðavík, og fjölskylda.
FJÓRTÁN manns, þar af átta
börn, fórust í snjóflóði sem féll í
Súðavík mánudagsmorguninn 16.
janúar árið 1995. Flóðið var hið
mannskæðasta á landinu frá árinu
1919 þegar átján fórust í snjóflóð-
um á Siglufirði. Þetta voru ekki
einu hörmungarnar árið 1995 því
í október sama ár fórust 20 í snjó-
flóði á Flateyri.
Snjóflóðið á Súðavík tók með
sér 15 hús í miðju þorpinu. Húsin
voru flest utan þeirra marka er
skilgreind voru sem hættusveæði
vegna snjóflóða en fyrr um nótt-
ina höfðu hús í grennd við Trað-
argil verið rýmd vegna snjóflóða-
hættu. Annað flóð féll þar að
kvöldi 16. janúar og skemmdi hús-
eignir, þar á meðal kaupfélagið,
en fólki varð ekki meint af.
Mitt í hörmungunum mátti þó
finna gleðifregnir sem voru
kraftaverki líkastar. Þannig
fannst 14 ára stúlka eftir 15 tíma í
fönninni. Þá fannst tíu ára dreng-
ur lifandi rúmlega 23 klukku-
stundum eftir að snjóflóðið féll.
Björgunaraðstæður voru mjög
erfiðar vegna ofsaveðurs sem
geisaði á þessum slóðum. Um 500
manns urðu að flýja hús sín vegna
snjóflóðahættu í mörgum þorpum
á Vestfjörðum þennan örlagaríka
dag. vidar@mbl.is
Fjórtán fórust í flóðinu
Árið 1995 var hörmungaár í sögu íslensku þjóðarinnar
Snjóflóðið tók með sér 15 hús í miðju þorpinu
Morgunblaðið/RAX
Flaggað í hálfa stöng 34 týndu lífi í snjóflóðum árið 1995.
fi p y j g p
C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
Villibráðar-paté prikmeð pa
Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró
Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ
- salat skufer
ðbo
arðameð Miðj
kjRisa-ræ
með peppadew iluS
ajónmeð japönsku m
het
Hörpuskeljar má, 3 s
Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð
Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R
ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Veitingar fyrir öll tækifæri,
stór og smá, fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það
sama, glæsilegar veitingar
og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta. �
Óttast þú ekki
því að ég frelsa
þig, ég kalla á
þig með nafni,
þú ert minn.