Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið:Mán. - föst. kl. 09-18 Lau- gardaga kl. 11-15 INNRÉTTINGAR DANSKAR Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMH- LIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM, GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐRÝMI. VIÐ HÖNNUMOG TEIKNUM FYRIR ÞIG Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. STERKAR OG GLÆSILEGAR ÞITT ER VALIÐ Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. BE TR IS TO FA N eingöngu hjá ökumanni undir áhrif- um heldur einnig hjá þeim sem þigg- ur far með honum við þær aðstæður. Ef fólk passar hvað upp á annað eins og sig sjálft þá næst enn betri árang- ur. Við erum þannig farin að tala meira um sameiginlega ábyrgð allra þátttakenda í umferðinni, ekki bara þeirra sem stýra farartækinu. Auð- vitað hafa mannvirkin stórbatnað, hafnirnar, vegirnir og tækni- framfarir hjálpa líka til. En mest snýst öryggi um mannlega þáttinn þar sem fræðsla, endurmenntun og forvarnir ná til sem flestra.“ Fræðslan og samvinnan eykur árangur Þórólfur segir skipulagða fræðslu og forvarnir sem beint hefur verið að börnum frá unga aldri hér á landi nú að skila sér í bættri umferðarmenn- ingu. „Leiðbeiningar Umferðarskól- ans til barna nýtast þeim alla ævi. Ungt fólk er meðvitaðra en áður um ábyrgð sína og þekkir betur hætt- urnar sem tillitsleysi og hraðakstur skapa.“ Yngstu ökumennirnir séu þó enn sá aldurshópur sem lendi í flest- um tjónum en með auknum lífaldri og þar með akstursreynslu fækki óhöppum. Auk þess hóps þurfi jafn- framt að huga betur að elsta hópi ökumanna. „Við höfum haldið fundi með fulltrúum Félags eldri borgara í því skyni að finna leiðir til að ná bet- ur til eldri ökumanna því þar sjáum við einnig mjög mörg óhöpp. Þar viljum við beita okkur, til dæmis með því að hvetja eldra fólk til að aka bara á daginn, leiðir sem það þekkir vel og afhenda jafnvel öku- skírteinið sitt sem gjöf til barna- barna sinna. Það getur verið mikil ákvörðun að hætta að keyra en við viljum efla vitund eldri borgara um þær hættur sem sífellt meiri um- ferðarþungi og samfélagshraði get- ur skapað þeim og öðrum.“ Gildi fræðslu og forvarna sér miklu víðar merki, til dæmis hjá sjó- mönnum sem mikil samvinna hefur verið um. Öflugt fræðslustarf með- fram öðrum framförum t.d. í tækni og stöðugleika skipa hefur skilað stórfelldum árangri eins og tölurnar sýna. „Á hverjum degi erum við að vinna áfram að auknu öryggi í sam- göngum af því það koma nýir vegfar- endur og nýjar ferðir, daglegar sam- göngur eru í raun bara eðlilegur hluti af hreyfanleika lífsins.“ Sameiginleg markmið eftirlits Meðal verkefna Samgöngustofu er ferðaþjónustutengd leyfisveiting sem unnin er í nánu samstarfi við að- ila ferðaþjónustunnar. Mælanlegur árangur í fækkun slysatíðni ferða- manna er eitt af sameiginlegum markmiðum og er skilningur ferða- þjónustunnar á vakandi eftirliti því ríkur. „Hvalaskoðun, köfun, bílaleig- ur, þyrluflug og útsýnisflug svo fátt eitt sé nefnt er eftirlitsskylt hér á landi og það er mikill vilji hjá ferða- þjónustunni að hafa þessa hluti í lagi. Öryggi ferðamanna skiptir miklu máli í markaðssetningu því hver vill heimsækja eða ferðast um land þar sem öryggið er ekki í lagi? Samgöngur í frístundum eru einn- ig áhættuþáttur sem skoða þarf miklu betur. Fólk að leik á mótor- krosshjólinu sínu eða fjórhjólinu, skemmtibátnum eða fisinu á rétt á því að hugað sé betur að öryggi þess því þar verða mörg óhöpp. Við vilj- um gæta þess að atvinnumenn sem fara eftir daglegum rútínum þegar þeir stýra bíl, flugvél eða báti hagi sér með jafn ábyrgum hætti þegar þeir eru að leika sér. Búnaðurinn er í flestum tilvikum í lagi, það er ekki endilega það sem er að klikka – held- ur mannlegi þátturinn.“ Ný ferð á hverjum degi Þórólfur segir að stóra markmiðið sé alltaf hin svokallaða núllsýn þar sem enginn slys eða manntjón verða. „Það er markmið sem hægt er að setja á hverjum degi, í hverri ferð. Samgöngur eru í eðli sínu mikil áhætta þar sem verið er að fara frá einum stað til annars oft á tíðum á þungu farartæki á töluverðum hraða. Fyrst og síðast ætla allir að komast heilir á áfangastað. Enginn vill enda sem slysatölfræði. Ferðinni er aldrei lokið – það tekur við ný ferð á morgun.“ Af þeim 170 sem slösuðust alvar- lega í umferðinni í fyrra hófu flestir endurhæfingu á Grensásdeild Land- spítalans. Alvarlega slasaður er vítt hugtak og getur þýtt marga kvilla en í einföldustu mynd er það notað yfir þá þurfa sjúkrahúsvist í kjölfar slyssins að sögn Stefáns Ingvars- sonar, yfirlæknis hjá Grensásdeild- inni. „Það er enginn alvarlega slas- aður sendur heim að lokinni skoðun. Að vera alvarlega slasaður getur þýtt svo margt.“ Á undanförnum tíu árum hafa 1.689 manns þurft endurhæfingu í kjölfar bílslyss eða rúmlega 170 manns árlega en flestallir byrja sína endurhæfingu á Grensási. „Lang- flesta sem fara illa í þessum slysum sjáum við. Samt er sundlaugin eina viðbótin við Grensásdeildina síðan 1973.“ Slasaðir hefja endur- hæfingu á Grensási 1689 MANNS HAFA SLASAST ALVARLEGA Á SÍÐASTA ÁRATUG Morgunblaðið/Þórður Slys Bílslys við Reykjanesbraut í október síðastliðinn. Ökumaðurinn slasaðist ekki alvarlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.