Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 37
landsverðlaun fimm ár í röð í úrvals-
liði fatlaðra í fjölgreinum.
Er stoltur af þátttöku í íþrótta-
keppni fyrir ófatlaða
Ég er ekki minna stoltur af þátt-
töku í íþróttakeppni fyrir heilbrigða
m.a. í 18 holu golfi (ekki grasvelli) þar
sem ég keppti við fólk án fötlunar. Ég
vann þá keppni og í golfi er talað um
fötlun, þannig að það var fötlun í tvö-
faldri merkingu. Ég vann fríska jafn-
aldra og besti árangur minn á 18 holu
mínígolfvelli var 21 högg. 15 í fyrstu
lotu og 3 í öðru.“
Hefur þú komið til Íslands? Mynd-
irðu vilja fara þangað ef þér yrði boðið
að koma og halda fyrirlestur þar?
„Ég hef aldrei verið á Íslandi en ég
fékk fyrirspurn um að koma sl. haust
en var lasinn þá svo ekkert varð úr
því. Ef kringumstæðurnar eru réttar
kem ég meira en gjarnan í fyrirlestr-
arferð til Íslands. Fyrirlesturinn yrði
væntanlega á ensku. Ég er alveg op-
inn fyrir því.“
Viltu segja eitthvað sérstakt við Ís-
lendinga svona í lok viðtalsins?
„Það væri þá helst að ég elska að
hitta áheyrendur. Það gefur mér svo
mikinn styrk. Sumir undrast hvaðan
ég fæ styrk minn og innblástur en
hann kemur einmitt frá fundum með
áheyrendum og kraftinum sem kemur
til baka, þegar maður stendur á svið-
inu.
Eftir hvern fyrirlestur líður mér
betur en á undan
Það hvetur mig til að halda áfram.
Ég fann það á velvildinni og hlýjunni,
sem mætti mér á hótel Clarion í
Stokkhólmi. Ég hefði viljað vera þar
lengur en það var því miður ekki
hægt. Eftir hvern fyrirlestur líður
mér betur en á undan.“
Þú ert ekki hræddur við spúandi
eldfjöll? Sumir með hendur og fætur
eru hræddir að ferðast til slíks lands.
„Já, það er satt, en eruð þið ekki
með einhverjar björgunarsveitir?
Annars hoppa ég bara um borð í ein-
hvern bátinn og sigli frá eyjunni ef
nauðsyn krefur.“
Hægt er að hafa samband við Mika-
el Andersson á heimasíðu hans, panta
bókina og fylgjast með fyrirlestra-
ferðum http://www.mikael-unlimi-
ted.se.
Kápan „Handalaus, fótalaus - en
ekki vonlaus,“ er heiti bókarinnar.
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-2
2
1
0
Mercedes-Benz CLA-Class 4MATIC
Óviðjafnanlegur
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Nú fæst Mercedes-Benz CLA-Class með 4MATIC aldrifsbúnaði. Þrátt fyrir að vera einstaklega öflugur
og skemmtilegur í akstri þá er hann bæði umhverfismildur og eyðslugrannur. Útlitshönnun og öryggis-
búnaður í sérflokki, eins og við er að búast frá Mercedes-Benz. Í einu orði sagt óviðjafnanlegur.
Hlökkum til að sjá þig á 4MATIC sýningu í Öskju á laugardaginn.
CLA 180, 7 þrepa sjálfskipting, 122 hö.
Eyðsla frá 5,1 l/100 km í blönduðum akstri.
Verð frá 5.530.000 kr.
„Þetta var rosalega stór stund og
ánægjuleg,“ segir Jón Björn Há-
konarson, forseti bæjarstjórnar í
Fjarðabyggð, en fyrsta skóflustunga
nýs átta deilda leikskóla var tekin á
Norðfirði í gær.
Nýi leikskólinn kemur til með að
leysa af hólmi leikskóla sem nú er rek-
inn í tveimur húsum í bænum. Þá mun
hann einnig hýsa þau börn sem eru
hjá dagmömmum vegna plássleysis á
gamla leikskólanum. Leikskólinn
verður tekinn í notkun hinn 1. ágúst
2016, en VHE sjá um framkvæmdirn-
ar, sem hefjast á næstu dögum.
Að sögn Jóns Björns hefur það
lengi verið á stefnuskránni að leysa
gamla húsnæðið af. „Það var sam-
þykkt tillaga árið 2005 um að hefja
þessar framkvæmdir árið 2008, en svo
kom auðvitað efnahagshrunið sem
stoppaði það,“ útskýrir hann.
Sólvellir, nafn gamla leikskólans
mun fylgja nýju húsi, sem mun hýsa
um 180 börn hverju sinni. „Það er
munaðarvandamál að vera með svona
frjótt samfélag,“ segir Jón Björn að
lokum. if@mbl.is
Nýr leikskóli mun rísa á Norðfirði
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nýr leikskóli Sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson blessaði framkvæmdirnar.
Fyrsta skóflustungan tekin í gær
Anna Kolbrún
Árnadóttir var
kjörin formaður
Landssambands
framsóknar-
kvenna á 17.
landsþingi fram-
sóknarkvenna
sem fram fór á
sunnudag.
Hún tekur við
af Sveinbjörgu
Birnu Sveinbjörnsdóttur borgar-
fulltrúa sem hefur verið formaður
frá hausti 2013.
Anna Kolbrún er menntunar-
fræðingur og doktorsnemi frá Ak-
ureyri. Hún hefur áður gegnt for-
mennsku í jafnréttisnefnd
Framsóknar og átt sæti í skipulags-
nefnd flokksins, samkvæmt því sem
segir í fréttatilkynningu.
Anna Kolbrún Árna-
dóttir nýr formaður
Anna Kolbrún
Árnadóttir.