Morgunblaðið - 15.01.2015, Page 40
MOSFELLSBÆR
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mosfellsbær er staður hesta-
mennskunnar. Í tímans rás hefur
verið nokkuð um að fólk flytjist í
bæinn gagngert í því skyni að geta
stundað þar íþrótt sína, sem Mos-
fellingar búa vel að. Í dag eru um
800 manns í Hestmannafélaginu
Herði og nýtir það fólk sér aðstöð-
una á Varmárbökkum, en upp-
bygging þar hófst í kringum 1970.
Í dag er Harðarsvæðið fullbyggt
og því er nú lögð áhersla á að fá
skipulagt svæði undir fleiri hest-
hús, að sögn Jónu Dísar Braga-
dóttur, formanns Harðar og vara-
formanns Landssambands
hestamanna.
Eigum knapa í fremstu röð
„Margt þarf að fara saman
svo starf hestamannafélags og að-
staða sé í samræmi við kröfur
dagsins í dag. Okkur hefur að
minni hyggju tekist ágætlega að
koma þar til móts við fólk,“ segir
Jóna Dís. Hún telur mikilvægt að
góðir og vel tengdir reiðvegir liggi
frá hesthúsahverfum og í þeim
þurfi að vera góð reiðgerði, reið-
höll, félagsheimili og keppnisvellir.
Jafnframt þurfi hvert félag að
vera með fræðslustarf og reið-
námskeið fyrir börn, unglinga og
fullorðið fólk. Allt þetta sé til stað-
ar í Mosfellsbæ.
„Við höfum verið útnefnd sem
fyrirmyndarfélag innan Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands og
erum stolt af því. Hjá okkur starfa
vel menntaðir reiðkennarar og
höfum við verið í fararbroddi í
reiðþjálfun fatlaðra og hlotið
margar viðurkenningar fyrir.
Fremstar í þeirri þjálfun eru þær
Berglind Inga Árnadóttir og
Hólmfríður Halldórsdóttir,“ segir
Jóna Dís. Hún segir sömuleiðis vel
staðið að æskulýðsstarfinu og
unga fólkið hafi staðið sig vel á
keppnisbrautinni. Þá var Reynir
Örn Pálmason Harðarfélagi til-
efndur í tveimur flokkum á
uppskeruhátíð hestamanna á dög-
unum og jafnframt valinn íþrótta-
knapi ársins 2014.
„Nú í haust var svo stofnaður
hjá Herði, hestaíþróttaklúbbur en
hann hefur það að markmiði að
gera hestamennskuna að heils-
ársíþrótt og erum við frumkvöðlar
í því að leyfa krökkum að stunda
Formaður Starf og aðstaða sé í samræmi við kröfur dagsins, segir Jóna Dís.
800 hestamenn eru
Hestamannabær
og góð aðstaða á
Varmárbökkum
Öflugt starf leiðir
af sér auknar kröfur
Mosfellsbær er sjöunda stærsta
bæjarfélag á Íslandi með rúmlega
9.000 íbúa. Sveitarfélagið er land-
mikið og spannar um 220 ferkíló-
metra. Byggðarþróunin hefur verið
ör síðustu árin og sífellt fleiri hafa
sótt í þá góðu blöndu borgarsam-
félags og sveitar sem þar er að
finna. Skipulag tekur mið af fjöl-
breyttri og fallegri náttúru bæj-
arfélagsins. Þar eru víðáttumikil
náttúruleg svæði og einstakir úti-
vistarmöguleikar í skjóli fella,
heiða, vatna og strandlengju.
Mosfellingar kunna vel að meta
umhverfi sitt og eru almennt mikið
útivistarfólk. Hestamennska er
áberandi þáttur í daglegu lífi bæj-
arbúa, enda liggja reiðleiðir til
allra átta. Gönguleiðir eru góðar
allt frá fjöru til fjalla og óvíða er að-
staða til íþróttaiðkana betri. At-
vinnusaga bæjarins er á margan
hátt sérstök og má þar nefna viða-
mikla ullarvinnslu og kjúklinga-
rækt sem starfsrækt hefur verið í
bænum um langt skeið. Þá hefur
menning um langt árabil skipað
stóran sess í bæjarlífinnu.
(Heimild: mosfellsbaer.is).
Mosfellsbær er eftirsótt
blanda af sveit og borg
Sjöunda stærsta bæjarfélagið á Íslandi
Mannvirki sem minnir einna helst
á geimskip vekur athygli þegar
farið er úr Grafarholtinu í
Reykjavík og þaðan að fjallabaki
niður að Reykjum í Mosfellsbæ.
Þarna er jarðstöðin Skyggnir, þar
sem eru stórir skermar og annar
búnaður sem nemur sendingar ut-
an úr himingeimnum. Stærsti
skermurinn var tekinn niður fyrir
nokkrum árum, enda hefur hlut-
verk stöðvarinnar breyst með
nýrri tækni.
Skyggnisstöðin, sem nú er í
eigu Mílu ehf., þótti mikið undra-
verk á sínum tíma. Hún var reist í
kringum 1979, en þá var síma-
samband Íslendinga við útlönd
nær eingöngu í gegnum gervi-
hnetti. Nú er tenging þessi hins
vegar að mestu í gegnum sæ-
strengina Farice og Cantat. Eigi
að síður hefur Skyggnir enn
nokkurt hlutverk, en þar eru út-
sendingar erlendra sjónvarps-
stöðva mótteknar, til dæmis BBC,
Sky, CNN og fleiri. Merki þeirra
er svo aftur miðlað áfram um
stafræna gagnavegi landsins til
sjónvarpsáhorfenda.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skyggnir Jarðstöðin tilkomumikla stendur austan við Úlfarsfellshlíðar.
Geimskipið við fjallið
Sjónvarpssendingar af himnum ofan