Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Heimild: PEWforum.org
Í löndum Evrópusambandsins og fleiri ríkjum á meginlandinu
Múslímar í Evrópu
Áætlaður fjöldi samkvæmt rannsókn hugveitunnar Pew Research Center. H
10-20%Yfir 50% 5-10% 3-5%20-50%
FRAKKLAND
4,7 milljónir
7,5% af öllum
íbúunum
BRETLAND
2,9
4,6%
HOLLAND
0,9
5,5%
BELGÍA
0,6
6,0%
ÍTALÍA
1,6
2,6%
SPÁNN
1,0
2,3%
BÚLGARÍA
1,0
13,4%
GRIKKLAND
0,5
4,7%
AUSTURRÍKI
0,5
5,7%
SVÍÞJÓÐ
0,5
4,9%
DANMÖRK
0,2
4,1%
NOREGUR
0,1
3,0%
SVISS
0,4
5,7%
ÞÝSKALAND
4,1
5,0%
Stórmúftinn í Jerúsalem,
Mohammed Hussein, sagði að for-
síðuteikning háðsritsins væri óvirðing
sem „særði tilfinningar tveggja millj-
arða múslíma úti um allan heim“.
Mörg dagblöð í Mið-Austurlöndum
gagnrýndu einnig birtingu skop-
myndarinnar.
Þolinmæði og umburðarlyndi
besta svarið
Margir trúarleiðtogar múslíma
tóku þó blendna afstöðu til forsíðu
blaðsins og reyndu að draga úr
spennunni. Forystumenn samtaka
franskra múslíma hvöttu þá til að
„halda stillingu sinni og forðast til-
finningaþrungin viðbrögð“.
Leiðtogar samtaka breskra músl-
íma tóku í sama streng. Þeir sögðu
það skiljanlegt að margir múslímar
væru sárir og reiðir vegna skop-
mynda af spámanninum en þolin-
mæði og umburðarlyndi væri besta
svarið. „Viðbrögð okkar verða að
endurspegla hið milda og miskunn-
sama eðli spámannsins,“ sögðu þeir.
„Langlundargeð, umburðarlyndi,
mildi og miskunn, í samræmi við eðli
okkar ástkæra spámanns, er besta og
beinasta leiðin til að svara þessu.“
Öfgamenn úr röðum múslíma mót-
mæltu þó nýja tölublaðinu harðlega.
Einn þeirra, Anjem Choudary, fyrr-
verandi leiðtogi öfgahreyfingar sem
var bönnuð í Bretlandi, sagði að nýja
Múhameðsteikningin væri „stríðsað-
gerð“ sem varðaði dauðarefsingu
samkvæmt íslömskum lögum.
Stuðningsmenn Charlie Hebdo
sögðu að forsíðuteikning ritsins ætti
vel við til að minnast þeirra sem biðu
bana í árás hryðjuverkamannanna og
til að árétta stuðninginn við tján-
ingarfrelsið. „Ég hef engar áhyggjur
af forsíðunni,“ sagði Renald Luzier,
sem teiknaði forsíðumyndina. „Við
treystum á greind og kímnigáfu fólks-
ins. Þeir sem gerðu þessa árás hafa
enga kímnigáfu.“
Franski forsætisráðherrann
Manuel Valls sagði í ræðu á þinginu í
París í fyrradag að guðlast væri ekki
og yrði aldrei bannað með lögum í
Frakklandi.
Í landinu eru tæpar fimm milljónir
múslíma og þeir eru um 7,5% allra
íbúanna. Mörgum þeirra er illa við
slagorðin „Ég er Charlie“, sem hafa
verið mjög áberandi í Frakklandi og
víðar í heiminum eftir hryðjuverkin.
Flestum frönskum múslímum býður
við ódæðisverkunum en marga þeirra
hryllir þó við því að þurfa verja háðs-
ritið vegna skopmyndanna af spá-
manninum.
Vefsíðum lokað
Tyrkneska dagblaðið Cumhuriyet
birti í gær skopmyndir og greinar úr
nýjasta tölublaði Charlie Hebdo, þó
aðeins litla mynd af Múhameðsteikn-
ingunni á forsíðunni umdeildu. Önnur
dagblöð í Tyrklandi birtu ekki myndir
úr háðsritinu. Cumhuriyet hefur ver-
ið mjög gagnrýnið á Recep Tayyip
Erdogan, forseta Tyrklands, og rit-
sjóri blaðsins sagði að markmiðið með
birtingu skopmyndanna væri að láta í
ljósi stuðning við Charlie Hebdo og
tjáningarfrelsið.
Tyrkneskur dómstóll ákvað í gær
að loka vefsíðum sem sýna forsíðu
nýjasta tölublaðs háðsritsins vegna
teikningarinnar af Múhameð spá-
manni.
Vekur umræðu um tjáningar
Múslímar mótmæla teikningu af Múhameð spámanni á forsíðu háðsritsins Charlie Hebdo í Frakklandi
ingin leiði til enn meira ofbeldis Leiðtogar samtaka múslíma hvetja þá til að halda stillingu sinni og sýna
AFP
Mótmæli Teikningu af Múhameð spámanni mótmælt í Túnisborg í gær.
Dagblöð í löndum múslíma hafa gagnrýnt teikninguna og lýst henni sem
ögrun við múslíma sem líta á skopmyndir af spámanninum sem guðlast.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Langar biðraðir mynduðust við blað-
sölustaði í Frakklandi í gær þegar
sala hófst á nýju tölublaði háðsritsins
Charlie Hebdo. Forsíða blaðsins vakti
umræðu um tjáningarfrelsið vegna
nýrrar teikningar af Múhameð spá-
manni.
Háðsritið er yfirleitt gefið út í
30.000-60.000 eintaka en í fyrstu var
ákveðið að stækka upplagið í þrjár
milljónir til minningar um þá sem
biðu bana í árás hryðjuverkamanna
úr röðum íslamista í vikunni sem leið.
Blaðið seldist upp á nokkrum klukku-
stundum í gærmorgun og ákveðið var
því að prenta það í alls fimm millj-
ónum eintaka. Tölublaðið verður
einnig gefið út á ensku, spænsku,
ítölsku, arabísku og tyrknesku.
Margir Frakkar keyptu blaðið til
að láta í ljósi stuðning við tjáningar-
frelsið, en einnig vegna þess að ágóð-
inn rennur til fjölskyldna þeirra sem
létu lífið.
Talið er að árásin á skrifstofu
Charlie Hebdo hafi verið gerð vegna
teikninga sem blaðið hafði birt af Mú-
hameð spámanni. Á forsíðu nýjasta
tölublaðsins er teikning af Múhameð
sem grætur og heldur á spjaldi með
áletruninni „Ég er Charlie“. Yfir-
skrift teikningarinnar er „Allt er
fyrirgefið“.
Ekki eru fleiri teikningar af spá-
manninum í nýja tölublaðinu en inni í
því eru skopmyndir af nokkrum ísl-
ömskum öfgamönnum.
„Guðlasti“ mótmælt
Flestir múslímar líta á birtingu
mynda af Múhameð spámanni sem
guðlast. Alþjóðleg samtök íslamskra
fræðimanna gagnrýndu birtingu
teikningarinnar á forsíðu háðsritsins í
gær og sögðu hana líklega til að
„vekja hatur“. „Það er hvorki skyn-
samlegt, né rökrétt eða viturlegt að
birta teikningar og myndir sem eru
móðgun eða árás á spámann íslams,“
sagði í yfirlýsingu frá samtökunum
sem eru með höfuðstöðvar í Katar.
Yfir 50 dómsmál
» Dómsmálaráðuneyti Frakk-
lands sagði í gær að yfir 50
dómsmál hefðu verið höfðuð
yfir mönnum, sem hafa lýst yf-
ir stuðningi við hryðjuverka-
starfsemi, frá árásunum í París
í vikunni sem leið.
» Á meðal þeirra sem hafa
verið saksóttir er umdeildur
grínisti, Dieudonne Mbala
Mbala. Hann var handtekinn
eftir að hann skrifaði „mér líð-
ur eins og Charlie Coulibaly“ á
Facebook með skírskotun til
slagorðsins „Ég er Charlie“ og
nafns eins af hryðjuverka-
mönnunum þremur í París.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup,Viðir, N ttó og Fríhöfnin.