Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Heimild: PEWforum.org Í löndum Evrópusambandsins og fleiri ríkjum á meginlandinu Múslímar í Evrópu Áætlaður fjöldi samkvæmt rannsókn hugveitunnar Pew Research Center. H 10-20%Yfir 50% 5-10% 3-5%20-50% FRAKKLAND 4,7 milljónir 7,5% af öllum íbúunum BRETLAND 2,9 4,6% HOLLAND 0,9 5,5% BELGÍA 0,6 6,0% ÍTALÍA 1,6 2,6% SPÁNN 1,0 2,3% BÚLGARÍA 1,0 13,4% GRIKKLAND 0,5 4,7% AUSTURRÍKI 0,5 5,7% SVÍÞJÓÐ 0,5 4,9% DANMÖRK 0,2 4,1% NOREGUR 0,1 3,0% SVISS 0,4 5,7% ÞÝSKALAND 4,1 5,0% Stórmúftinn í Jerúsalem, Mohammed Hussein, sagði að for- síðuteikning háðsritsins væri óvirðing sem „særði tilfinningar tveggja millj- arða múslíma úti um allan heim“. Mörg dagblöð í Mið-Austurlöndum gagnrýndu einnig birtingu skop- myndarinnar. Þolinmæði og umburðarlyndi besta svarið Margir trúarleiðtogar múslíma tóku þó blendna afstöðu til forsíðu blaðsins og reyndu að draga úr spennunni. Forystumenn samtaka franskra múslíma hvöttu þá til að „halda stillingu sinni og forðast til- finningaþrungin viðbrögð“. Leiðtogar samtaka breskra músl- íma tóku í sama streng. Þeir sögðu það skiljanlegt að margir múslímar væru sárir og reiðir vegna skop- mynda af spámanninum en þolin- mæði og umburðarlyndi væri besta svarið. „Viðbrögð okkar verða að endurspegla hið milda og miskunn- sama eðli spámannsins,“ sögðu þeir. „Langlundargeð, umburðarlyndi, mildi og miskunn, í samræmi við eðli okkar ástkæra spámanns, er besta og beinasta leiðin til að svara þessu.“ Öfgamenn úr röðum múslíma mót- mæltu þó nýja tölublaðinu harðlega. Einn þeirra, Anjem Choudary, fyrr- verandi leiðtogi öfgahreyfingar sem var bönnuð í Bretlandi, sagði að nýja Múhameðsteikningin væri „stríðsað- gerð“ sem varðaði dauðarefsingu samkvæmt íslömskum lögum. Stuðningsmenn Charlie Hebdo sögðu að forsíðuteikning ritsins ætti vel við til að minnast þeirra sem biðu bana í árás hryðjuverkamannanna og til að árétta stuðninginn við tján- ingarfrelsið. „Ég hef engar áhyggjur af forsíðunni,“ sagði Renald Luzier, sem teiknaði forsíðumyndina. „Við treystum á greind og kímnigáfu fólks- ins. Þeir sem gerðu þessa árás hafa enga kímnigáfu.“ Franski forsætisráðherrann Manuel Valls sagði í ræðu á þinginu í París í fyrradag að guðlast væri ekki og yrði aldrei bannað með lögum í Frakklandi. Í landinu eru tæpar fimm milljónir múslíma og þeir eru um 7,5% allra íbúanna. Mörgum þeirra er illa við slagorðin „Ég er Charlie“, sem hafa verið mjög áberandi í Frakklandi og víðar í heiminum eftir hryðjuverkin. Flestum frönskum múslímum býður við ódæðisverkunum en marga þeirra hryllir þó við því að þurfa verja háðs- ritið vegna skopmyndanna af spá- manninum. Vefsíðum lokað Tyrkneska dagblaðið Cumhuriyet birti í gær skopmyndir og greinar úr nýjasta tölublaði Charlie Hebdo, þó aðeins litla mynd af Múhameðsteikn- ingunni á forsíðunni umdeildu. Önnur dagblöð í Tyrklandi birtu ekki myndir úr háðsritinu. Cumhuriyet hefur ver- ið mjög gagnrýnið á Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, og rit- sjóri blaðsins sagði að markmiðið með birtingu skopmyndanna væri að láta í ljósi stuðning við Charlie Hebdo og tjáningarfrelsið. Tyrkneskur dómstóll ákvað í gær að loka vefsíðum sem sýna forsíðu nýjasta tölublaðs háðsritsins vegna teikningarinnar af Múhameð spá- manni. Vekur umræðu um tjáningar  Múslímar mótmæla teikningu af Múhameð spámanni á forsíðu háðsritsins Charlie Hebdo í Frakklandi  ingin leiði til enn meira ofbeldis  Leiðtogar samtaka múslíma hvetja þá til að halda stillingu sinni og sýna AFP Mótmæli Teikningu af Múhameð spámanni mótmælt í Túnisborg í gær. Dagblöð í löndum múslíma hafa gagnrýnt teikninguna og lýst henni sem ögrun við múslíma sem líta á skopmyndir af spámanninum sem guðlast. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Langar biðraðir mynduðust við blað- sölustaði í Frakklandi í gær þegar sala hófst á nýju tölublaði háðsritsins Charlie Hebdo. Forsíða blaðsins vakti umræðu um tjáningarfrelsið vegna nýrrar teikningar af Múhameð spá- manni. Háðsritið er yfirleitt gefið út í 30.000-60.000 eintaka en í fyrstu var ákveðið að stækka upplagið í þrjár milljónir til minningar um þá sem biðu bana í árás hryðjuverkamanna úr röðum íslamista í vikunni sem leið. Blaðið seldist upp á nokkrum klukku- stundum í gærmorgun og ákveðið var því að prenta það í alls fimm millj- ónum eintaka. Tölublaðið verður einnig gefið út á ensku, spænsku, ítölsku, arabísku og tyrknesku. Margir Frakkar keyptu blaðið til að láta í ljósi stuðning við tjáningar- frelsið, en einnig vegna þess að ágóð- inn rennur til fjölskyldna þeirra sem létu lífið. Talið er að árásin á skrifstofu Charlie Hebdo hafi verið gerð vegna teikninga sem blaðið hafði birt af Mú- hameð spámanni. Á forsíðu nýjasta tölublaðsins er teikning af Múhameð sem grætur og heldur á spjaldi með áletruninni „Ég er Charlie“. Yfir- skrift teikningarinnar er „Allt er fyrirgefið“. Ekki eru fleiri teikningar af spá- manninum í nýja tölublaðinu en inni í því eru skopmyndir af nokkrum ísl- ömskum öfgamönnum. „Guðlasti“ mótmælt Flestir múslímar líta á birtingu mynda af Múhameð spámanni sem guðlast. Alþjóðleg samtök íslamskra fræðimanna gagnrýndu birtingu teikningarinnar á forsíðu háðsritsins í gær og sögðu hana líklega til að „vekja hatur“. „Það er hvorki skyn- samlegt, né rökrétt eða viturlegt að birta teikningar og myndir sem eru móðgun eða árás á spámann íslams,“ sagði í yfirlýsingu frá samtökunum sem eru með höfuðstöðvar í Katar. Yfir 50 dómsmál » Dómsmálaráðuneyti Frakk- lands sagði í gær að yfir 50 dómsmál hefðu verið höfðuð yfir mönnum, sem hafa lýst yf- ir stuðningi við hryðjuverka- starfsemi, frá árásunum í París í vikunni sem leið. » Á meðal þeirra sem hafa verið saksóttir er umdeildur grínisti, Dieudonne Mbala Mbala. Hann var handtekinn eftir að hann skrifaði „mér líð- ur eins og Charlie Coulibaly“ á Facebook með skírskotun til slagorðsins „Ég er Charlie“ og nafns eins af hryðjuverka- mönnunum þremur í París. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup,Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.