Morgunblaðið - 15.01.2015, Page 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Slípað í slippnum Ekki var annað að sjá en að sá sem stóð vaktina á bak við logsuðuhjálminn, í slippnum við Reykjavíkurhöfn; og sauð og slípaði til skiptis hafi kunnað vel til verka.
Ómar
Stjórnarmeirihlut-
inn á þingi steig mik-
ilvægt skref til frjáls-
ari viðskiptahátta
hérlendis er almenn
vörugjöld voru af-
numin nú skömmu
fyrir jól með nið-
urfellingu laga nr. 97/
1987. Saga vörugjalda
er þó mun lengri og
teygir sig aftur til
inngöngu Íslands í Fríversl-
unarbandalag Evrópu 1970, en þá
skyldu ýmsir tollar afnumdir. Rík-
isstjórn þess tíma hugðist mæta
tekjutapi með þessum nýja skatti.
Lögin voru kölluð lög um tíma-
bundin vörugjöld og áttu að gilda í
eitt ár. Þegar til kom voru þau
framlengd um eitt ár í senn í mörg
ár þar til þau voru fest í sessi. Á
þeim bráðum 45 árum sem liðin
eru frá upphafi skattheimtunnar
hafa ótalmargar breytingar verið
gerðar og undanþágurnar orðið
æði margar, allt eftir pólitísku
áhugasviði ráðamanna hverju
sinni. Þannig hafa sjónarmið um
neyslustýringu oftar
en ekki ráðið för. Til
grundvallar vöru-
gjöldum á þvottavélar,
ísskápa og fleiri heim-
ilistæki lá til dæmis
sú skoðun að um væri
að ræða „lúxusvarn-
ing“ sem rétt væri að
skattleggja sér-
staklega. Furðuleg
sjónarmið af þessu
tagi eru sem betur fer
varla uppi lengur,
enda um að ræða tæki
sem eru sjálfsagður hluti af lág-
markslífsgæðum nútímafólks.
Vörugjöldin námu framan af á
bilinu 17 til 30%, en með lögunum
frá 1987 var kerfið að nokkru leyti
einfaldað og vörugjaldshlutfallið
aðeins eitt, eða 14%. Líkt og með
önnur skattalög tóku lögin frá
1987 fjölmörgum breytingum, alls
meira en þrjátíu, og brátt hafði
gjaldflokkunum fjölgað úr einum í
sjö. Þegar Íslendingar gerðust að-
ilar að Evrópska efnahagssvæðinu
í ársbyrjun 1994 brugðu stjórnvöld
á það ráð að breyta þeim tollum
sem fella þurfti niður í vörugjöld.
Félag íslenskra stórkaupmanna
(nú Félag atvinnurekenda) lagði í
kjölfarið fram kæru til Eftirlits-
stofnunar EFTA, en um var að
ræða fyrsta málið sem kom til
kasta stofnunarinnar. Sá er þetta
ritar starfaði á þeim tíma fyrir
umrædd félagasamtök, en að okk-
ar mati voru vörugjöld í reynd
ígildi tolla því þau voru lögð á með
mismunandi hætti eftir því hvort
um var að ræða innlenda vöru eða
innflutta. Fjármálaráðherra, sem
þá var Friðrik Sophusson, skipaði
í kjölfarið nefnd til endurskoðunar
á lögunum. Félag stórkaupmanna
átti fulltrúa í nefndinni en und-
irritaður skipaði það sæti. Ýmsar
breytingar voru gerðar á lögunum
í kjölfarið sem uppfylla áttu kröfu
eftirlitsstofnunarinnar.
Almenn vörugjöld lögðust hin
seinni ár á sælgæti, kex, öl, gos-
drykki, safa, raftæki, hljómtæki,
sjónvörp, myndbandstæki og ýms-
ar byggingavörur. Vörugjaldakerf-
ið var um margt dulin skattheimta
sem reynst gat erfitt að átta sig á
og þar rak sig margt á annars
horn. Sem dæmi má nefna að þá
voru blýantar og pennar, sem
skólabörn nota, í sama gjaldflokki
og kveikjarar og pípur. Ekki réðu
manneldismarkmið heldur för því
vörugjöld voru lögð á ávaxtasafa
en ekki sykraðar mjólkurvörur
svo dæmi sé tekið. Samlokugrill
bar 20% vörugjald en brauðristar
voru undanþegnar, eins og það
breytti einhverju hvort brauð væri
ristað lóðrétt eða lárétt! En vöru-
gjöldin voru ekki síst dulin skatt-
heimta þar sem þau lögðust á
verðmæti vara á milli sölustiga
þ.e.a.s. ekki á endanlegt söluverð
eins og við þekkjum með virð-
isaukaskattinn. Með því náðu
skattyfirvöld að fela skattlagn-
inguna og þar með sinn þátt í
verðmyndun vöru.
Í þessu sambandi er því um-
hugsunarefni að í Bandaríkjunum
er söluskattur, sem kemur í stað
virðisaukaskatts, lagður á við
kassa og kemur ekki fram í hillu-
verði. Færa má fram sterk rök
fyrir því að þetta sé mun eðlilegri
framsetning því við þessa aðferð
verður skattheimtan sýnilegri og
skýrt hver hlutur ríkisins er og
hversu mikið viðkomandi seljandi
leggur á vöruna.
Við niðurfellingu vörugjaldanna
nú lækkar verð á fjölmörgum al-
gengum neysluvörum og sannast
þar með enn og aftur að ekki er
nauðsynlegt fyrir Ísland að ganga
í Evrópusambandið til þess að
lækka hér vöruverð. Næsta skref
hlýtur svo að vera lækkun svokall-
aðra ytri tolla sem leggjast á
vörur sem upprunnar eru frá
löndum utan fríverslunarbanda-
laga og ber þar helst að nefna
Bandaríki Norður-Ameríku.
Það er ástæða til að hrósa fjár-
málaráðherra og stjórnarmeiri-
hlutanum á Alþingi og óska lands-
mönnum til hamingju með þetta
framfaraskref í átt til frjálsari við-
skiptahátta.
Eftir Stefán S.
Guðjónsson » Til grundvallar
vörugjöldum á
þvottavélar, ísskápa
og fleiri heimilistæki
lá til dæmis sú skoðun
að um væri að ræða
„lúxusvarning“
Stefán S. Guðjónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og starfaði um árabil fyrir samtök
atvinnurekenda í verslun.
Tímabundin vörugjöld í hálfa öld –
stórsigur til aukins verslunarfrelsis