Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 49
49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Slípað í slippnum Ekki var annað að sjá en að sá sem stóð vaktina á bak við logsuðuhjálminn, í slippnum við Reykjavíkurhöfn; og sauð og slípaði til skiptis hafi kunnað vel til verka. Ómar Stjórnarmeirihlut- inn á þingi steig mik- ilvægt skref til frjáls- ari viðskiptahátta hérlendis er almenn vörugjöld voru af- numin nú skömmu fyrir jól með nið- urfellingu laga nr. 97/ 1987. Saga vörugjalda er þó mun lengri og teygir sig aftur til inngöngu Íslands í Fríversl- unarbandalag Evrópu 1970, en þá skyldu ýmsir tollar afnumdir. Rík- isstjórn þess tíma hugðist mæta tekjutapi með þessum nýja skatti. Lögin voru kölluð lög um tíma- bundin vörugjöld og áttu að gilda í eitt ár. Þegar til kom voru þau framlengd um eitt ár í senn í mörg ár þar til þau voru fest í sessi. Á þeim bráðum 45 árum sem liðin eru frá upphafi skattheimtunnar hafa ótalmargar breytingar verið gerðar og undanþágurnar orðið æði margar, allt eftir pólitísku áhugasviði ráðamanna hverju sinni. Þannig hafa sjónarmið um neyslustýringu oftar en ekki ráðið för. Til grundvallar vöru- gjöldum á þvottavélar, ísskápa og fleiri heim- ilistæki lá til dæmis sú skoðun að um væri að ræða „lúxusvarn- ing“ sem rétt væri að skattleggja sér- staklega. Furðuleg sjónarmið af þessu tagi eru sem betur fer varla uppi lengur, enda um að ræða tæki sem eru sjálfsagður hluti af lág- markslífsgæðum nútímafólks. Vörugjöldin námu framan af á bilinu 17 til 30%, en með lögunum frá 1987 var kerfið að nokkru leyti einfaldað og vörugjaldshlutfallið aðeins eitt, eða 14%. Líkt og með önnur skattalög tóku lögin frá 1987 fjölmörgum breytingum, alls meira en þrjátíu, og brátt hafði gjaldflokkunum fjölgað úr einum í sjö. Þegar Íslendingar gerðust að- ilar að Evrópska efnahagssvæðinu í ársbyrjun 1994 brugðu stjórnvöld á það ráð að breyta þeim tollum sem fella þurfti niður í vörugjöld. Félag íslenskra stórkaupmanna (nú Félag atvinnurekenda) lagði í kjölfarið fram kæru til Eftirlits- stofnunar EFTA, en um var að ræða fyrsta málið sem kom til kasta stofnunarinnar. Sá er þetta ritar starfaði á þeim tíma fyrir umrædd félagasamtök, en að okk- ar mati voru vörugjöld í reynd ígildi tolla því þau voru lögð á með mismunandi hætti eftir því hvort um var að ræða innlenda vöru eða innflutta. Fjármálaráðherra, sem þá var Friðrik Sophusson, skipaði í kjölfarið nefnd til endurskoðunar á lögunum. Félag stórkaupmanna átti fulltrúa í nefndinni en und- irritaður skipaði það sæti. Ýmsar breytingar voru gerðar á lögunum í kjölfarið sem uppfylla áttu kröfu eftirlitsstofnunarinnar. Almenn vörugjöld lögðust hin seinni ár á sælgæti, kex, öl, gos- drykki, safa, raftæki, hljómtæki, sjónvörp, myndbandstæki og ýms- ar byggingavörur. Vörugjaldakerf- ið var um margt dulin skattheimta sem reynst gat erfitt að átta sig á og þar rak sig margt á annars horn. Sem dæmi má nefna að þá voru blýantar og pennar, sem skólabörn nota, í sama gjaldflokki og kveikjarar og pípur. Ekki réðu manneldismarkmið heldur för því vörugjöld voru lögð á ávaxtasafa en ekki sykraðar mjólkurvörur svo dæmi sé tekið. Samlokugrill bar 20% vörugjald en brauðristar voru undanþegnar, eins og það breytti einhverju hvort brauð væri ristað lóðrétt eða lárétt! En vöru- gjöldin voru ekki síst dulin skatt- heimta þar sem þau lögðust á verðmæti vara á milli sölustiga þ.e.a.s. ekki á endanlegt söluverð eins og við þekkjum með virð- isaukaskattinn. Með því náðu skattyfirvöld að fela skattlagn- inguna og þar með sinn þátt í verðmyndun vöru. Í þessu sambandi er því um- hugsunarefni að í Bandaríkjunum er söluskattur, sem kemur í stað virðisaukaskatts, lagður á við kassa og kemur ekki fram í hillu- verði. Færa má fram sterk rök fyrir því að þetta sé mun eðlilegri framsetning því við þessa aðferð verður skattheimtan sýnilegri og skýrt hver hlutur ríkisins er og hversu mikið viðkomandi seljandi leggur á vöruna. Við niðurfellingu vörugjaldanna nú lækkar verð á fjölmörgum al- gengum neysluvörum og sannast þar með enn og aftur að ekki er nauðsynlegt fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið til þess að lækka hér vöruverð. Næsta skref hlýtur svo að vera lækkun svokall- aðra ytri tolla sem leggjast á vörur sem upprunnar eru frá löndum utan fríverslunarbanda- laga og ber þar helst að nefna Bandaríki Norður-Ameríku. Það er ástæða til að hrósa fjár- málaráðherra og stjórnarmeiri- hlutanum á Alþingi og óska lands- mönnum til hamingju með þetta framfaraskref í átt til frjálsari við- skiptahátta. Eftir Stefán S. Guðjónsson » Til grundvallar vörugjöldum á þvottavélar, ísskápa og fleiri heimilistæki lá til dæmis sú skoðun að um væri að ræða „lúxusvarning“ Stefán S. Guðjónsson Höfundur er viðskiptafræðingur og starfaði um árabil fyrir samtök atvinnurekenda í verslun. Tímabundin vörugjöld í hálfa öld – stórsigur til aukins verslunarfrelsis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.