Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 50
50 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 10-70% afslát tur Ármúla 24 • S: 585 2800 Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is Ég þoli ekki heyrna- lausa, ég skil þá bara ekki, ekki heldur blinda, þeir sjá ekki það sem ég sé, alz- heimer-sjúklingar eru nú ekki í sama heimi svo fátt eitt sé nefnt. Ég þoli bara ekki fólk með skerta starfsgetu. Það er samfélaginu svo dýrt af því að það á svo erfitt með að tolla á vinnumark- aði og þarf því veikinda sinna vegna á framfærslustyrk frá velferð- arkerfinu okkar að halda. Nánast öll umræða um þennan hóp, svokallaða öryrkja, hefur verið svo neikvæð að orðið er orðið mjög neikvætt og nánast að skammaryrði að við- teknum aumingjaskap – og ekkert ólíkt hreppsómögunum í gamla daga. Ég ætla aðeins að fjalla nánar um þennan hóp sem hefur þessa undarlegu ímynd og reyndar legg til að við notum orðin „skert starfs- geta“, enda eru þau meira lýsandi fyrir ástand þessa hóps en „öryrki“ Nú hefur Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, rekið upp ramakvein og vakið athygli á því að 9% fólks á vinnualdri þiggi örorkubætur, sem kosti ríkis- og lífeyrissjóði hvorki meira né minna en 55 milljarða. Við höfum hans orð fyrir því að þessi tala hafi tvöfaldast að raungildi á síðustu fimmtán árum. Honum finnst þetta hátt hlutfall og mikil byrði. Flestir fjölmiðlar hafa étið þessi orð Þorsteins upp, jafnvel bara birt eins og hverja aðra frétta- tilkynningu en enginn kannað hvað gæti verið á bak við þessa fjölgun. Niðurstaðan er einfaldlega eins og lesa má í orðum Þorsteins: Þetta er vont, ergo eins og almenningur upp- lifir þetta: það eru vondir sam- félagsþegnar sem eyða svona mikl- um peningum – og fólk með skerta starfsgetu upplifir enn meiri for- dóma enn áður. Ég er í sjálfu sér alveg sammála Þorsteini um að þetta er há tala og mikið af peningum, því peninga rík- issjóðs og lífeyrissjóða eigum við að fara sem best með. En ég vil líka minna á að greiðslur örorkulíf- eyris eru samspil Tryggingastofnunar, ríkisins og lífeyrissjóð- anna. Sumir eiga rétt í lífeyrissjóðunum og fá þá greiðslur fá báðum. Öryrki, sem áður hefur verið á vinnumarkaði, og greitt hefur í lífeyr- issjóð hefur því áunnið sér réttindi sem samsvarar því. Það er einnig staðreynd að starfsorka meirihluta í hópi öryrkja skerðist á miðjum aldri (40 ára og eldri) eða eftir það og hafa þeir þá verið lengi á vinnumarkaði. Gæti verið að breytt og hækkandi aldurssamsetn- ing þjóðarinnar hafi eitthvað með aukninguna að gera? En ef mig mis- minnir ekki eiga lífeyrissjóðirnir um 2.600 milljarða í sjóðum sínum, sem ber að ávaxta um 3,5% á árs- grundvelli. Ég held að þeir séu ekki í bráðri lífshættu vegna fólks með skerta starfsgetu. Það eru margir flóknir þættir sem koma til þegar örorkubyrði samfélags er metin og ekki hægt að telja alla upp í einni grein. Einn er vinnumarkaðurinn sjálfur. Hann hefur ekki sérlega mikið þol gagn- vart fólki með skerta starfsgetu, bæði eru hlutastörf fá, hann þolir ekki öðruvísi fólk frekar en sam- félagið og vitaskuld er óhagkvæmt rekstrarlega að vera með mikið veikt fólk í vinnu. Margt fólk sem er á örorku, t.d. margt fatlað fólk vill og getur unnið en fær þrátt fyrir það enga vinnu vegna fötlunar sinn- ar. Það þarf ekki að vera með skerta starfsgetu. Samfélagið vill bara einfaldlega ekki fá það í vinnu. Sveigjanleiki vinnumarkaðarins er lítill. Fólk neyðist því til að fara á örörkubætur – og það er mikilvægt að það komi fram að það hefur til þess heilsufarslegar ástæður metn- ar af læknum. Ég hef sjálf góða reynslu af vinnumarkaði, hef verið þar í 30 ár og unnið við allt frá fiskvinnlu, ræst- ingum, verslunarstörfum, kennslu og blaðamennsku á ferlinum. En ég man eftir atvinnurekanda sem var afskaplega þreyttur á mér og hrein- lega dæsti þegar ég fékk flogaköst og mér hefur verið sagt upp af sömu ástæðum. Það skiptir engu þótt ég sé góður starfskraftur. Lífið á vinnumarkaði er enginn dans á rós- um og hann hefur einmitt orðið harðari á þessum 15 árum. Það hef- ur því reynst mér best, eftir að ég var úrskurðuð með 75% skerta starfsgetu, að vinna sjálfstætt. Í fer- ilskrám er farið að skima eftir göt- um. Svona er vinnumarkaðurinn í dag, Þorsteinn. Svona er vinnu- markaðurinn fyrir þá sem eru heilsulausir, þeir eiga engan séns, enda eru fyrirtæki ekki rekin sem góðgerðarsamtök. Þess vegna stofn- uðum við velferðarsamfélagið. Að endingu, þá þoli ég það ekki þegar þú, Þorsteinn, formaður Sam- taka atvinnulífsins, þessara stóru heildarsamtaka, pungar út fullyrð- ingu eins og ofangreindri í garð minnihlutahóps eins og hún sé veigamikil staðreynd – án útskýr- inga og þróunar. Þá finnst mér einnig að Öryrkjabandalag Íslands eigi að vera mun sýnilegra í um- ræðunni – og vinna ekki síst að því að bæta ímynd fólks með skerta starfsgetu og þvo af því aum- ingjastimpilinn sem virðist vera að festast við það. Af því sem ég þekki er það flest þrælduglegt fólk, sem reynir að spjara sig við erfiðar að- stæður og eru engir vælugosar. Vinnum saman í réttindabaráttunni en breytum tóninum. Og ég er meira en til í að fá þig með, Þor- steinn, með eða án aðstoðar starfs- endurhæfingar, til að opna vinnu- markaðinn fyrir fólk með skerta starfsgetu. Elskum öryrkja. Ég þoli ekki fólk með skerta starfsgetu Eftir Unni H. Jóhannsdóttur » Samfélagið vill bara einfaldlega ekki fá það í vinnu. Sveigj- anleiki vinnumarkaðar- ins er lítill. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og diplóma í fötlunarfræði. Þau gleðitíðindi hafa borist að rík- isstjórn Íslands hefur veitt 12 milljónir til ÚTÓN vegna Euroso- nic Noorderslag-- tónlistarráðstefn- unnar í Groningen í Hollandi sem fram fer nú í þessari viku. Þar verður íslensk tónlist í sérstökum brennidepli undir merkinu „Iceland Erupts“ og fara hvorki meira né minna en 19 ís- lenskar hljómsveitir og listamenn til hátíðarinnar, sem telja má þá stærstu sinnar tegundar í álfunni. Þar koma saman fulltrúar helstu tónlistarhátíða og bókunarskrifstofa Evrópu og Ameríku í þrjá daga og nætur, þar sem fundað er á daginn og nýjabrumið í tónlist skoðað á kvöldin og fram á nótt með það fyr- ir augum að bæta nýjum atriðum í dagskrá ársins, og er til mikils að vinna fyrir íslenska tónlistarmenn að tónleikar þeirra séu bókaðir á stærstu tónlistarhátíðum heims út allt árið. ÚTÓN hefur staðið fyrir átaki til þess að mæta breyttum aðstæðum í tónlistarheimum með það að leið- arljósi að gera tónlistarmönnum betur kleift að fara með sína tónlist á markað utan Íslands, og er brennidepill Íslands á Eurosonic Noorderslag-ráðstefnunni stórt skref í þá átt að efla listgreinina sem starfsgrein. Verður umfjöllun um íslenska tónlist með tveimur pallborðum inni á ráðstefnunni, annað um tónlistar- tengda ferðamennsku og þróun Ice- land Airwaves-tónlistarhátíðarinar, sem þykir orðið ein af eftirtektar- verðari hátíðum í Evrópu, og hitt um sögu íslenskrar tónlistar frá „Rokk í Reykjavík“ eða upphafi ní- unda áratugarins. Einnig verður íslensk móttaka í Statschouwburg-tónleikasalnum fimmtudaginn 15. janúar fyrir vel- unnara íslenskrar tónlistar og for- svarsmenn evrópskra og banda- rískra tónlistarhátíða. Þar mun Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, flytja inn- gang og verður m.a. frumflutt myndband um þann fjársjóð ís- lenskra sönglaga sem leynist í kist- um íslenskra höfunda hjá STEF. Íslensk tónlistarfyr- irtæki verða með sölu á íslenskri tónlist í Pop up-plötubúð í miðbæ Groningen meðan á há- tíðinni stendur og þar verða einnig sýndar heimildarmyndir um ís- lenska tónlist fyrr og síðar. Ríkisstjórnin hefur tekið þá ákvörðun að veita sérstakan styrk til verkefnisins þar sem upphaflega var ekki áætlað að svo margir hljómlist- armenn myndu koma fram, en að mati skipuleggjenda í Hollandi þyk- ir óvenjumikið af frambærilegri tónlist koma frá Íslandi um þessar mundir. Einnig hefur verið lögð mikil vinna og kostnaður í kynning- arvinnu á þeim listamönnum sem þarna verða að flytja sína tónlist en á nýafstaðna Iceland Airwaves- hátíð kom fjöldi fjölmiðlafólks sem hefur verið að vinna efni um ís- lensku þátttakendurna sem nú er að birtast í fjölmiðlum víða um heim í aðdraganda Eurosonic. Hluta af framlagi ríkisstjórn- arinnar verður einnig varið til víð- tækrar kynningar á íslenskri tónlist sem kemur til með að nýtast á mjög breiðum grundvelli og ná til fleiri íslenskra listamanna en þeirra sem koma fram á hátíðinni. Aðrir aðilar sem taka þátt í átaki þessu eru Reykjavíkurborg, Ís- landsstofa, ráðuneyti mennta og menningar, utanríkis, atvinnu og nýsköpunar, Átak til atvinnusköp- unar, STEF, Iceland Airwaves og Icelandair. Umræddur ríkisstjórnarstyrkur markar á vissan hátt vatnaskil í sókn íslenskrar tónlistar á erlenda markaði og er vonandi vísbending um auknar fjárfestingar í listgrein- inni sem atvinnugrein á komandi árum. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Íslensk tónlist í brenni- depli á Eurosonic Noorderslag 2015 Eftir Sigtrygg Baldursson Sigtryggur Baldursson » Þar koma saman fulltrúar helstu tón- listarhátíða og bók- unarskrifstofa Evrópu og Ameríku Höfundur er framvæmdastjóri ÚTÓN. Hingað til hefur DV verið í ætt við svokallaða gulu pressu, sem þykja nú ekki par merkilegir miðlar, en þá er það spurning eftir umfjöllun RÚV um fjarveru forsætisráðherra frá mótmælunum í París á dögunum, hvort sá miðill ætlar að fara að haga sér líkt og gula pressan. DV og RÚV flæmdu Hönnu Birnu úr stól innan- ríkisráðherra með umfjöllun sinni um málefni hælisleitanda í fyrra með ótrúlegu einelti og dómhörku, og linntu ekki látum, fyrr en hún hætti. Á nú forsætisráðherra og flokkur hans að verða næsta bitbein þessara miðla, eða hvað á þessi framkoma að þýða? Spyr sú, sem þykir nóg komið af þessum látum og leiðist svona málflutningur í DV og RÚV. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Gula pressan Hvað er í fréttum? Róleg stund með blað og kaffi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.