Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 52
52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Samkvæmt gildandi lögum nr. 63/1985 má afborganaþáttur verð- tryggðra fasteignalána einstaklinga ekki hækka milli mánaða nema sem nemur auknum kaupmætti fólksins. Það var upp- haflegur tilgangur lög- gjafans er hann batt þetta við laun lántak- ans, það segir sig sjálft. Ef það er engin kaupmátt- araukning í samfélaginu þá á afborg- unin að vera óbreytt frá seinustu af- borgun, og bankinn á sjálfur að eigin frumkvæði að leiðbeina lántakand- anum um rétt hans til að lengja í lán- inu sem nemur hækkun lánsins/ afborgunarinnar vegna verðtrygg- ingarinnar hverju sinni. Þessi frumkvæðisskylda hvílir á fjármála- fyrirtækinu, sem þýðir að bankinn á að setja hagsmuni viðskiptavinarins framar sínum eigin. Þetta hefur ein- faldlega „aldrei“ verið gert í þessu tilliti svo ég viti og er ég eldri en tvævetur. Ég velti oft fyrir mér af- leiðingum þessa „meinta“ lögbrots. Hvað skyldu nú margar fjöl- skyldur er fjárfest höfðu í framtíð- arhúsnæði, að því er þær héldu, hafa haldið eignum sínum en ekki misst þær á nauðungaruppboði ef farið hefði verið að lög- um þessum við og eftir hrun? Ef það yrði skoð- að, hver skyldi raun- verulegur skaði fólks- ins í landinu vera orðinn af hendi banka og ríkis á þeim 30 árum sem „Lög um greiðslu- jöfnun fasteignaveð- lána til einstaklinga“ nr. 63/1985 hafa gilt? En lögin voru jú sett til að vernda okkur litla fólkið fyrir afleiðingum verðtryggingarinnar svo að afborganir lánanna myndu ekki knésetja okkur, og til að bank- arnir gætu ekki hirt af okkur eign- irnar í framhaldinu vegna þess að upphaflegt greiðsluplan okkar við bankann færi úr öllum böndum vegna verðtryggingarinnar. Sönn- unarbyrðin er alfarið okkar ef sýna þarf fram á tjón, og gögn liggja ekki á lausu og lagaumhverfið sér lög- gjafinn um að „laga“ til svo fjármála- fyrirtækin lendi ekki í einhverju „óþarfa“ veseni, veseni yfir þessu að því virðist „aukaatriði“ sem skuld- arinn virðist vera hérlendis. Í frumvarpi með breytingarlög- unum 2008 reyndi sérfræðingahópur á vegum ríkisins að réttlæta aðgerð- ir stjórnvalda með all-sérkennilegri umfjöllun um eignarréttarákvæði kröfuhafa. Staðreynd málsins var hins vegar sú að eignaréttarákvæðið hafði í raun og veru litla þýðingu fyr- ir bankana á „hrunstímanum“ enda voru bankarnir þá „tækni- og lög- lega“ gjaldþrota. Hvað var verið að verja? Ekki hag almennings! Svo er víst! Auðvitað áttu bankarnir að fá að fara á hausinn en ekki vera end- urreistir með almannafé. Þú þarft að eiga eignir ef það á að svipta þig þeim, ekki satt? Sam- kvæmt mínum heimildum skuldaði íslenskt fjármálakerfi við hrun hvorki meira né minna en 20.000 milljarða sem var næstum 14 föld landsframleiðsla Íslands á árinu 2008! Og ath. að einungis var komið skikki á 6000 milljarða af þessum 20.000 milljörðum eftir hrun. En eft- ir stóðu óafgreiddir 14.000 millj- arðar og gera enn. Neyðarrétturinn var klár fyrirsláttur, enda hefði ekki skapast nein raunveruleg neyð fyrir hinn venjulega Íslending við gjald- þrot bankanna. Ísland er nefnilega að mestu sjálfbært. Nóg af mjólk, kjöti, grænmeti og vatni í þessu landi. Tímabundin kreppa á inn- flutningi lúxusvara hefði lítið þvælst fyrir hinum almenna borgara. Og bara verið grín miðað við það sem hann þarf að þola í dag! Stjórnvöld gerðu hins vegar allt sem þau gátu til að telja okkur trú um að allt væri að fara til „andskot- ans“ og að það yrði að bjarga bönk- unum. Fyrirtækin og allt færi á hausinn hérlendis við fall bankanna og því myndi almenningur verða fyr- ir miklum skakkaföllum. Þvílík þvæla. Það er svo auðvelt fyrir ráðamenn að hafa áhrif á, og hræða granda- lausan almenning þegar þeir hafa jafn greiðan aðgang að því að „markaðssetja“ áform sín fyrir til- stuðlan fjórða valdsins sem fjöl- miðlar eru. En sannleikurinn er hins vegar sá að „neyðin“ hefði einungis komið niður á fjármagnseigend- unum sjálfum, ekki hinum almenna borgara. Það er ljóst. Það er stjórnvalda að sjá til þess að farið sé að lögum. En hvernig er hægt að treysta því ef þau ganga sjálf fram með slæmu fordæmi? Hvert stefnir þá þetta kornunga 71 árs gamla lýðræðisríki eiginlega? Að mínu mati ekki á góðan stað! Hvernig væri nú að hið „óspillta“ „háa“ Alþingi/„löggjafarvaldið“ sem stjórnað er af sama fólki og rekur „framkvæmdavaldið“ og skipar dómara í þriðju stoðina sem er „dómsvaldið“ taki sig nú á og hvetji eftirlitsstofnanir sínar til að vinna í því að uppræta þann fjárstuld sem fjármálafyrirtækin eru í raun og veru að komast upp með trekk í trekk? Og hafa komist upp með þrátt fyrir gild lög um annað í 30 ár! Eða vilja þessir átta ráðherrar sem stjórna í raun öllum stoðum lýð- ræðisins einir og alráðir (og það þó hver stoð eigi að vera óháð hinni og veita hver annarri aðhald) opinskátt og algerlega skammlaust engu breyta? Og ætlum við fólkið í land- inu í alvöru að sætta okkur við það? Ég segi nei, ég sætti mig ekki við þetta. Þess vegna kýs ég að nýta rétt minn og tjá mig um þetta mál- efnalega. Hér með lýk ég umfjöllun minni um það hvernig lög um greiðslujöfn- un „verðtryggðra" fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985" hafa ver- ið sniðgengin í 30 ár af stjórnvöldum og fjármálastofnunum með mis- miklum afleiðingum fyrir skuldara þessa lands. Virða stjórnvöld hagsmuni bankanna umfram hagsmuni almennings? Eftir Jakob Inga Jakobsson »En lögin voru jú sett til að vernda okkur litla fólkið fyrir afleið- ingum verðtrygging- arinnar svo að afborg- anir lánanna myndu ekki knésetja okkur. Jakob Ingi Jakobsson Höfundur er lögfræðingur. ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf. Gegnsæi, ekki bara eftir pöntun Pírata, og ég er ósátt við að góð- um stjórnmálamanni sé bolað burt og því spyr ég: hvaðan kom allur annar leki í leka- málinu? Eru einhver heilindi í málinu, og verða heilindi þessara aðila líka rannsökuð? Til dæmis umboðs- manns Alþingis, sem ég treysti lítt, stjórnarandstöðu, lögreglustjórans Stefáns, lögfræð- ings Tonys, blaðamanna sem ekki eru traustvekjandi, hver lak til þeirra upplýsingum? Dómskerfi landsins, hversu miklu stjórnar það málum í landinu og hverju geta þau öfl komið af stað, hugnist þeim ekki dómsmálaráðherrann, sé hann óþekkur við þau? Ég trúi að í krafti valds síns gætu þau gert ýmislegt. Hversu stór er hópur sið- blindra innan dóms- kerfisins? Ég spyr, því ég treysti þeim ekki. Eru vinatengsl milli Bjargar Thorarensen, en hennar ektamaður ku vera í forsæti Hæstaréttar, og svo umboðsmanns Alþing- is? Þetta væri jú svo íslenskt. Björg þessi var fljót til svara um að ráðherra ætti að segja af sér. Væri nú þessum spurningum svarað af heiðarleika, nema auðvitað að merking heið- arleikans hafi breyst með nýrri kynslóð, þá fengjum við kannski rétt svör um það hver vildi ráð- herrann úr starfi. Það mun koma í ljós síðar, hversu ljótt þetta mál er frá hendi þeirra, er að því stóðu. Er lögfræðingur Tonys alltaf á launum frá okkur við að verja hann? Lög- fræðingarnir Vala og Katrín, munu þær nokkurn tíma þurfa að axla ábyrgð á því hverja þær verja inn í landið? Auðvitað ekki, það væri svo óíslenskt. Það er brotið daglega á stórum hópi fólks, fólki sem enginn vill vita af. Eru lætin í þessu leka- máli frá „góða fólkinu“ (innan gæsa- lappa) af því að viðkomandi er út- lendingur? Þetta „góða fólk“ gasprar um frelsi, en án ábyrgðar og tekur ekki eftir því að hinir sið- blindu misnota þetta frelsi, nema að þau séu svona meðvirk og sjálfhverf sjálf. Það eru ekki allir flóttamenn, sumir eru social-landtökumenn og skylda þeirra sem með þessi mál fara að greina þarna á milli. Lofið fjölmenningu að blómstra án af- skipta stjórnmála, hún þarfnast ekki ykkar stjórnar. Borgarstjórn Reykjavíkur, haldið bara áfram að leika ykkur, þið hafið ekki getuna til að stjórna. Sjálf- hverfa ykkar kemur í veg fyrir rök- hyggjuna. Á svo síðan að kjósa for- seta, sem heldur leiknum og vitleysunni áfram? Það er svo flott að sækja um vinnu sem þú hefur ekkert vit á og segja frá því, viðtal við Jón Gnarr í Kastljósi og Sigmar lofar þessa eiginleika. Hættulegt er hvað bjánagangurinn er í tísku. Svo heldur komandi kynslóð að völdin og landið verði alltaf hennar, en það er bara ekki svo, því að vegna bjánagangs ykkar gætuð þið misst tökin til sterkari afla, sem hafa ekki leiki, vitleysu og og misnotkun á frelsinu í forgangi. Konur á Alþingi búnar að breyta þinginu í sveitarstjórnarskrifstofu, þar sem þær rífast og þrasa um hver eigi að fá hvaða peninga. Til Sigríðar Ingibjargar: Hvar eru vitsmunir þínir sem þing- manns? Að reyna að fá þjóðina til að fella löglega kjörna stjórn, margt misviturt hefur komið frá þér, en núna toppaðir þú þig. Ertu á laun- um við niðurrif? Sannast nú skrif mín um niðurrif Samfylkingar. Ef Björt framtíð, VG og Samfylkingin komast að í stjórn, tel Pírata ekki með því að þeirra er stjórnleysið, komist þetta lið til valda, þá fara þau með þjóðina í gjaldþrot, það er á hreinu. Erum við orðin félags- málastofnun fyrir aðrar þjóðir? Sé svo og síðan helmingur vinnandi fólks á ríkislaunum, hvar ætlið þið að fá það fé sem þið heimtið? Þið hafið kannski ekki tekið eftir því að stórútgerðin fjarlægist land og þjóð. Heilindi og fleira Eftir Stefaníu Jónasdóttur » Lögfræðingarnir Vala og Katrín, munu þær nokkurn tíma þurfa að axla ábyrgð á því hverja þær verja inn í landið? Stefanía Jónasdóttir Höfundur býr á Sauðárkróki. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.