Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050
STEINAR WAAGE KRINGLAN & SMÁRALIND
WWW.SKOR.IS
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Ecco Touch 75 B
Stærðir: 36-41
Verð áður kr. 26.995
Verð nú kr. 18.897
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Útlit er fyrir gott ferðasumar hjá
Icelandair. Landinn er orðinn dug-
legur að ferðast og sumarsalan fer
vel af stað. „Fyrstu bókanirnar fyr-
ir sumarið eru að koma inn núna.
Upp úr miðjum janúar fer sum-
arsalan venjulega í gang, en þá er
fólk búið að eiga notalegt jólafrí og
farið að huga að utanlandsferðum
um vorið og sumarið,“ segir Þor-
varður Guðlaugsson, svæðisstjóri
íslenska sölusvæðisins hjá Ice-
landair.
Að sögn Þorvarðs eru borg-
arferðirnar mjög vinsælar á vorin.
Kaupa farþegar þá í einum hag-
kvæmum pakka flug og gistingu og
dvelja yfir helgi eða í nokkra daga
í fallegri stórborg þar sem má
heimsækja leikhús og söfn eða
þræða verslunargöturnar. „Fót-
boltaferðirnar eru lika í gangi fram
á vorin og skíðaferðirnar allt fram í
mars.“
Í hjarta Englands
Tveir nýir áfangastaðir bætast
við flugáætlunina í ár, en það eru
Portland á vesturströnd Bandaríkj-
anna og Birmingham á Englandi.
Þorvarður segir þessar borgir ekki
síst hafa orðið fyrir valinu með er-
lenda ferðamenn í huga og skapi
góðar tengingar yfir Atlantshafið.
Portland og Oregon eru þó einnig
vel þess virði fyrir Íslendinga að
heimsækja. Á síðasta ári bættust
þrjár borgir við áfangastaðalistann,
Edmonton og Vancouver í Kanada
og Genf í Sviss.
„Birmingham er næstærsta borg
Bretlands og þykir hafa upp á
margt að bjóða. Þar eru fín söfn og
góðir veitingastaðir í úrvali. Þaðan
er stutt út í bresku sveitasæluna
og á slóðir Shakespeares,“ segir
Þorvarður en Birmingham er í
Bretlandi miðju og er t.d. stutt til
Wales, og ekki langt til Sheffield,
Manchester og Liverpool.
Ævintýri á vesturströndinni
„Portland þykir mjög þægileg
borg að skoða, útivistarparadís og
aðgengilegar gönguleiðir. Mat-
armenningin blómstrar þar og
verulegur kraftur í bjórmenning-
unni en Portland hefur að geyma
fjölda örsmárra brugghúsa. Fólk
ætti að skoða þann möguleika að
fljúga t.d. inn til Portland og aftur
heim frá Seattle sem er í tæplega
þriggja klukkustunda aksturs-
fjarlægð til norðurs. Seattle er æv-
intýraleg borg og litrík, þekkt m.a.
fyrir Geimnálina og veglegt safn
tileinkað flugi.“
Þorvarður segir greinilegt að Ís-
lendingar séu farnir að ferðast
meira, eftir að hafa minnkað utan-
landsferðirnar strax í kjölfar
hrunsins. Fólk taki stefnuna bæði í
vesturátt og austurátt og margir
reyni að bregða sér af landi brott
tvisvar á ári eða oftar. „Íslendingar
ferðast minna til útlanda yfir há-
sumarið og virðast vilja eyða sól-
ríkustu og heitustu dögunum
heimafyrir. En með vorinu og síðla
sumars þykir þeim gaman að fara
t.d. í eina stutta borgarferð með
makanum eða á fótboltaleik með
félögunum, og svo aðra ögn lengri
ferð með fjölskyldunni,“ segir
hann. „Eitt batamerkið er að hóp-
ferðum fer fjölgandi og eru t.d.
vinnustaðir og klúbbar farnir að
láta það oftar eftir sér að fara sam-
an til útlanda, taka sér frí frá dag-
legu amstri og halda jafnvel árshá-
tíð.“
Verðlækkun í desember
Gengisbreytingar valda því að
þetta sumarið ættu ákveðnir
áfangastaðir að vera ódýrari fyrir
Íslendinga en þeir voru fyrir ári.
Þorvarður segir samt að ekki virð-
ist sem gengisþróun ráði miklu um
hvert Íslendingar stefna. Hitt
hjálpar kannski meira til að örva
söluna að lækkandi heimsmark-
aðsverð á olíu hefur skapað svig-
rúm til verðlækkana og lækkuðu
fargjöldin 1. desember vegna lækk-
unar eldsneytis. ai@mbl.is
Lifandi Birmingham er rótgróin borg og fjölmenn, mitt í hjarta Englands og stutt í sveitasæluna.
Fyrstu sumarbókan-
irnar farnar að berast
Portland og Birmingham bætast við áfangastaði Icelandair í
sumar Landsmenn duglegir að ferðast og hópferðum fjölgar
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna „Fólk ætti að skoða þann möguleika að fljúga t.d. inn til Portland
og aftur heim frá Seattle,“ segir Þorvarður Guðlaugsson hjá Icelandair.
SUMARIÐ 2015