Morgunblaðið - 15.01.2015, Blaðsíða 66
Morgunblaðið/Ómar
Heimsborg Lissabon hefur heillað margan Íslendinginn sem þangað hefur komið og hér má sjá hið tilkomumikla tákn borgarinnar, Torre de Belém, virki reist út í sjó árið 1515.
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Mallorca er komin inn hjá okkur
aftur af krafti,“ segir Guðrún Sig-
urgeirsdóttir, framleiðslustjóri hjá
ferðaskrifstofunni Vita, en hennar
starf felst í því að búa til og skipu-
leggja draumafríið fyrir landann.
„Mallorca er áfangastaður sem datt
svolítið út af kortinu í kjölfarið á
hruninu en verður sífellt vinsælli og
mikil hamingja með það,“ bætir hún
við. „Fólk kann alltaf að meta þann
kost að þurfa
ekki að fljúga allt
of langt. Spánn
tilheyrir hálfpart-
inn nærumhverf-
inu og fólk er
ekki að fljúga til
sumarleyfis-
staðar sem er
hinum megin á
hnettinum heldur
upplifir það þvert
á móti ákveðið öryggi að vera hér í
Evrópu.“ Þá er kunnara en frá þurfi
að segja að þúsundir – ef ekki tug-
þúsundir – Íslendinga hafa farið til
Mallorca síðustu 40 árin eða svo.
Það hlýtur því að vera í lagi með
staðinn. Guðrún tekur undir þetta.
„Það eru bara svo margir sem eiga
góðar minningar frá þessari gull-
fallegu eyju og þess vegna er það
svo að við erum ítrekað að upplifa
að fólk sem fór þangað sem krakkar
með foreldrum sínum er að fara
með sínum börnum um þessar
mundir, og afi og amma jafnvel
með. Það er mikil nostalgía sem um-
lykur Mallorca enda rík ástæða til.“
Aðspurð segir Guðrún að Vita
ferðir bjóði upp á þrjá mismunandi
áfangastaði á Mallorca, með það
fyrir augum að allir finni einmitt
það sem þeir leita að. „Við erum til
að byrja með á Playa De Palma.“
Nafnið eitt framkallar sólbakaðar
sumarleyfisminningar hjá fjölda Ís-
lendinga. „Palma er alveg dásamleg
borg þar sem indælt er að ganga
um, rápa milli dásamlegra búða eða
bara slaka á og fá sér tapas og virða
fyrir sér mannlífið. Þarna er maður
að fá borgina og ströndina í einu.
Svo erum við einnig á Alcudia og
þar erum við með hótel sérstaklega
hugsað fyrir börnin. Þar er að finna
heilt sjóræningjaskip í sundlauginni
og vatnsrennibrautir í hótelgarð-
inum sem sjá til þess að engum leið-
ist. Loks erum við líka í norð-
austurhorni eyjarinnar í bænum Sa
Coma. Það sem hann hefur við sig
sérstaklega er að þetta er lítill og
notalegur bær með ákaflega fallegri
sandströnd í huggulegri vík og and-
inn er heimilislegur og notalegur.
Þarna eru vegalengdir mjög stuttar
og allt er við höndina. Lengi vel var
boðið upp á ferðir til Sa Coma og
þangað höldum við í sumar, og
skynjum mikinn áhuga. Það má því
segja að við leggjum undir okkur
eyjuna til að finna rétta sumarleyf-
isstaðinn fyrir sem flesta. Ekkert
vesen!“ segir Guðrún í léttum tón.
Portúgal heillar og hrífur
Þessu næst beinist talið að Portú-
gal, landi sem Guðrún hefur sjálf
miklar mætur á.„Portúgal er ein-
faldlega dásamlegur staður og svo-
lítið mitt uppáhald,“ segir hún. „Þar
erum við að bjóða upp á ferðir til
Albufeira, en þangað fóru heilu
farmarnir af íslenskum ferðalöngum
um langt árabil. Þar erum við með
þessar dæmigerðu, ómótstæðilegu
portúgölsku strendur; litlar fallegar
víkur með mjúkum sandi og klettar
á milli. Þá má ekki gleyma að minn-
ast á fiskinn sem er einn sá besti í
heimi. Mér finnst persónulega
geggjað að borða í Portúgal. Svo er-
um við líka með annan stað sem
nefnist Salgados og er 12 kílómetra
fyrir utan Albufeira og þar erum við
að bjóða upp á stórar lúxusíbúðag-
istingar. Þetta byggðist upp rétt í
kringum hrunið og er því svo gott
sem nýtt og alveg svakalega vel
búnar íbúðir. Þarna ertu með
þvottavél, uppþvottavél, stóran ís-
skáp, stórar svalir – eiginlega ertu
með allt við höndina. Fyrir fjögurra
til fimm manna fjölskyldur sem
hugnast ekki að troða sér saman í
hefðbundið hótelherbergi heldur
hafa þess í stað almennilegt pláss,
tvö góð svefnherbergi og tvö góð
baðherbergi, eða þrjú af hvoru ef
vill. Það er bara svakalega þægilegt
og þannig vill maður hafa það í frí-
inu.“ Guðrún bætir því við að innan
seilingar á þessum stöðum í Portú-
gal sé að finna þrjá stóra vatns-
rennibrautagarða, þar sem öll fjöl-
skyldan getur gleymt stað og stund
við ómengaða skemmtun. „Þeir
heita The Big One, Aqualand og Zo-
omarine og þangað fer maður bara í
ógleymanlega dagsferð. Síðast en
ekki síst bjóðum við upp á ferðir til
hins ástsæla áfangastaðar Alicante.
Það er ekkert lát á vinsældunum
þar enda fara þangað sex eða sjö
vélar í hverri viku og ekki að
ósekju.“
Heillandi heimsborgir
Styttri ferðir til fallegra borga
njóta mikilla vinsælda og að sögn
Guðrúnar eiga slíkar ferðir frekar
upp á pallborðið hjá fólki á vorin og
haustin, en síður yfir hásumarið.
„Þá er fólk oft að fara í árshátíð-
arferðir, nokkuð sem var geysi-
vinsælt fyrir nokkrum árum, datt
niður í kjölfar hrunsins en er orðið
afar vinsælt á ný. Það hefur orðið
sprenging í þess konar ferðum upp
á síðkastið. Róm hefur verið gríð-
arlega vinsæl í þessu sambandi,
enda þægilegt loftslag þar á vorin
og haustin. Lissabon er þá alger dá-
semd og sú borg nýtur sífellt meiri
vinsælda. Einnig má nefna aðventu-
ferðir sem við höfum verið að fara
til Vínar og hafa fallið ljómandi vel í
kramið.“
6Að endingu nefnir Guðrún
páskaferð til Írlands, undir leiðsögn
Jóns Baldvins Halldórssonar. „Þar
verður meðal annars farið í gegnum
söguslóðir víkinganna og annað
áhugavert. Jón Baldvin lærði á sín-
um tíma á Írlandi, er hafsjór fróð-
leiks og þarna verður um spennandi
sérferð að ræða.“
Hin magnaða Mallorca
og heillandi heimsborgir
Nýir áfangastaðir ryðja sér til rúms í bland við vinsæla góðkunningja í sumar hjá ferðaskrifstofunni Vita.
Guðrún
Sigurgeirsdóttir
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
–– Meira fyrir lesendur
Þorrinn
SÉRBLAÐ
Eitt og annað sem tengist þorranum verður
til umfjöllunar í blaðinu s.s:
Matur, menning,
hefðir, söngur,
bjór, sögur
og viðtöl.
Þann 23. janúar gefur
Morgunblaðið út sérblað
tileinkað þorranum
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 19. janúar.
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SUMARIÐ 2015