Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 68

Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 ✝ Sævar Hall-dórsson fædd- ist á Patreksfirði 10. september 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 4. janúar 2015. Foreldrar hans voru þau Guðrún Sigríður Hall- grímsdóttir, f. 29.4. 1895, d. 27.1. 1992, sem rak veitingasölu á Siglu- firði og síðar í Reykjavík, og Halldór Guðmundsson, f. 23.5. 1889, d. 28.1. 1975, síld- arútgerðar- og kaupmaður á Siglufirði. Systkini Sævars voru Birna, f. 1918, d. 2008, Gunnar, f. 1921, d. 1973, og hálfsystir, sammæðra, Sigríður Inga Ingv- arsdóttir, f. 1933. Sævar kvæntist árið 1949 fyrri eiginkonu sinni, Helgu Rannveigu Júníusdóttur, f. 27.4. 1925, d. 8.12. 1953. Foreldrar hennar voru Júníus Jónsson, bæjarverkstjóri á Akureyri, og Soffía Jóhannsdóttir, húsfreyja. Barn þeirra er Soffía, f. 27.6. 1950. Eiginmaður Soffíu er Helgi Vilberg, f. 1951. Börn þeirra eru: a) Rannveig, f. 5.9. 1971. b) Ýr, f. 14.7. 1980. Hún á tvö börn. c) Helgi Vilberg, f. ar, f. 15.6. 1986. b) Auður Ýr, f. 27.3. 1991. c) Sigvaldi, f. 7.4. 1993. 4) Jón Alvar, f. 4.9. 1969, eiginkona hans er Steinunn Baldursdóttir, f. 1970. Dóttir þeirra er: a) Katla Björg, f. 5.2. 2000. Sævar hét fullu nafni Hall- grímur Sævar Halldórsson og ólst upp á Siglufirði, í Fróni. Sævar fór til náms í Flensborg- arskólann í Hafnarfirði. Eftir það hóf hann nám í ljós- myndaiðn hjá Jóni Kaldal 1941- 1945, fékk sveinspróf 1946. Sævar starfaði á ljósmyndastofu Jóns og Vigfúsar á Akureyri 1946-1953, sat í prófanefnd í ljósmyndaiðn á Akureyri 1951- 1953 og fékk meistararéttindi sín nokkru síðar. Sævar starfaði sem ljósmyndari í Reykjavík 1953-1983 og stundaði skóla- myndatökur víðs vegar um landið. Hann vann í síld bæði sem forstöðu- og síldarmats- maður á Siglufirði, Hofsósi, Raufarhöfn og Grindavík, sam- hliða ljósmyndun. Sævar rak Ljósmyndastofu Sævars í Reykjavík ásamt Auði eig- inkonu sinni. Frá 1983 vann hann hjá flutningafyrirtæki á Keflavíkurflugvelli og gegndi þar einnig trúnaðarstörfum. Sævar hélt heimili í Barmahlíð 52 til æviloka. Útför Sævars fer fram í Há- teigskirkju í dag, 15. janúar 2015, og hefst athöfnin kl. 13. 17.5. 1984. Hann á einn son. Árið 1955 kvæntist Sævar síð- ari eiginkonu sinni, Auði Jónsdóttur, ljósmyndara, f. 21.10. 1926, d. 9.6. 2011. Foreldrar hennar voru Jón Diðrik Hannesson, múrari í Reykjavík, f. 3.1. 1901, d. 20.9. 1975, og Jónína Margrét Jóns- dóttir, húsfreyja, f. 6.10. 1892, d. 28.10. 1988. Sævar og Auður eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Jónína Margrét, f. 7.8. 1954, fv. eiginmaður hennar er Jón Guðmundsson, f. 1953. Börn þeirra eru: a) Þórleifur, f. 14.11. 1975. Hann á fimm börn. b) Þöll, f. 12.10. 1978. Hún á einn son. 2) Guðrún Sigríður, f. 12.9. 1956, eiginmaður hennar er Kristján Vídalín Jónsson, f. 1944. Börn þeirra eru: a) Sævar Vídalín, f. 6.3. 1983. Hann á einn son. b) Ásdís Vídalín, f. 3.1. 1993. Fyrir átti Kristján tvö börn: a) Bjarna Frey, f. 30.10. 1974. Hann á þrjú börn. b) Karenu, f. 15.1. 1965. Hún á tvö börn. 3) Hrönn, f. 5.12. 1958, eiginmaður hennar er Sigurður Sigurðarson, f. 1956. Börn þeirra eru: a) Brynj- Í dag kveð ég elskulegan tengdaföður minn, Sævar Hall- dórsson, hinstu kveðju. Ég átti því láni að fagna að búa í sama húsi og þau hjónin Sævar og Auður í 26 ár. Á vinskap okkar bar aldrei skugga öll þau ár. Börnin mín nutu þess einnig að hafa afa og ömmu í húsinu og var mikill samgangur á milli hæða. Ég minnist ógleyman- legra samverustunda fjölskyld- unnar í sumarbústaðnum sem Sævar byggði í Ölfusi. Hann hafði mikinn áhuga á að fylgjast með því hvernig gróðurinn dafnaði á milli ára og hafði þar alltaf eitthvað fyrir stafni enda að nógu að dytta. Eftir að Auð- ur veiktist sá Sævar um heim- ilið þeirra af alúð. Hann eldaði á hverjum degi fjölbreyttan mat og lagði alltaf fallega á borð fyrir þau tvö andspænis hvort öðru. Við Sævar gátum setið löngum stundum og rætt um ljósmyndun. Hann var hafsjór af fróðleik á því sviði enda lærð- ur ljósmyndari frá Jóni Kaldal ljósmyndara. Ljósmyndabúnað- ur Sævars var frábær en lengstan hluta ævi sinnar vann hann sem ljósmyndari. Hann sérhæfði sig í að taka portrait- myndir og fór hann í flesta skóla landsins og tók myndir af nemendum sem hann útbjó svo bekkjar- og skólaspjöld af. Sævar sagði svo skemmtilega frá reynslusögum sínum. Hann sagði frá ljósmyndaferðum sín- um um landið og oft á tíðum voru aðstæður til myndatöku erfiðar. Hann sagði mér frá ungum skólastúlkum sem voru búnar að gera sig voða fínar fyrir myndatöku hjá honum en guggnuðu svo alveg þegar að myndatökunni kom. Þá kom í ljós að þær höfðu aldrei áður farið í myndatöku og voru laf- hræddar. Sævar þurfti þá að byrja á því að róa þær aðeins. Með góðu hugmyndarflugi og þekkingu á faginu tókst honum alltaf að skila verki sínu vel frá sér. Sævar hafði sérstaka ánægju af að fylgjast með garð- inum sínum í Barmahlíðinni, hvernig hann færðist í blóma á vorin og fram eftir sumri og hvernig hann haustaði. Hann sá fallega mynd í hverju tré og blómi og benti manni oft á skemmtileg sjónahorn sem maður annars veitti ekki eft- irtekt. Sævar var mikill fjöl- skyldumaður og var oft kátt á hjalla hjá þeim hjónum þegar haldin voru jólaboð, afmæli og þorrablót. Hann fylgdist vel með hvað barnabörnin höfðust að. Elsku tengdapabbi, ég þakka þér fyrir góða vináttu og ómet- anlega samfylgd. Kristján Vídalín. Elsku besti Sævar tengda- pabbi hefur kvatt okkur. Jólin þetta árið voru ansi óvenjuleg. Síðastliðin jól hafa Sævar tengdapabbi og Auður tengdamamma, meðan hún var á lífi, ávallt verið með okkur á aðfangadag. Á aðfangadags- kvöld lagði ég á borð fyrir fjóra, en þetta árið var eitt sæti laust, því Sævar treysti sér ekki í mat til okkar. Það var þá lítið annað að gera en drífa sig strax eftir matinn til hans í Barmahlíðina og áttum við ánægjulega kvöld- stund með honum þar. Ekki grunaði mig að þetta ætti eftir að vera síðasta kvöld- ið hans heima við, en sú varð raunin. Um tíma bjuggum við hjónin hjá Sævari og Auði í Barma- hlíðinni. Sérhvern morgun, áður en Sævar fór í vinnuna, lagði hann á borð fyrir okkur og gerði kaffi klárt. Hann var mik- ill gestgjafi og vildi ávallt gera vel við alla. Ég á endalaust margar og góðar minningar um hann. Við fjölskyldan áttum góðar stundir með honum og var hann alltaf mjög áhugasamur og fylgdist vel með öllu sem var að gerast hjá okkur og dóttur okkar, Kötlu Björgu. Hann var dríf- andi og vildi ávallt hafa allt í góðu standi. Hann hvatti okkur áfram í öllu því sem bæði við og Katla Björg vorum að gera. Hann tók alltaf vel á móti okkur þegar við komum i heim- sókn og vildi tryggja að allir fengju eitthvað gott í gogginn. Hann fylgdi okkur alltaf til dyra til að kveðja og beið í dyragættinni þar til við vorum komin úr augsýn. Síðustu árin leið vart sá dag- ur að við heyrðum ekki í eða lit- um inn hjá Sævari. Tómarúmið við að missa hann og söknuður- inn er mikill að heyra ekki í honum, hans jákvæðu rödd sem veitti okkur öllum öryggi í dagsins önn. Elsku Sævar, ég kveð þig með miklum söknuði. Þín verð- ur sárt saknað af okkur í Ljós- uvíkinni. Hvíldu í friði. Þín tengdadóttir, Steinunn. Sævar, afi okkar, var ein- stakur maður. Þó að við lifðum bara síðasta fjórðung af lífi afa vorum við svo heppin að fá að upplifa fyrri ár hans í gegnum sögur sem hann sagði okkur, bæði frá síldar- og ljósmynda- ævintýrum hans. Eltingaleikur við sólarljósið upp og niður fjöll til þess að ná góðum ljósmynd- um og sögur af því þegar skíðin brotnuðu í skíðastökki á Siglu- firði og gripið var til þess að renna sér á spýtum síldartunna. Það var ekki einungis innihald sagnanna sem vakti áhuga manns heldur líka hversu flink- ur sögumaður afi var, honum tókst að gæða sögurnar lífi á skemmtilegan og fyndinn hátt. Afi var mikill húmoristi og alltaf stutt í grínið. Því var gaman að vera í kringum hann og heimsóknir í Barmahlíðina ávallt skemmtilegar, oft á tíðum flaug tíminn. Afi sá alltaf til þess að við færum ekki tómhent heim. Meðal annars gerði hann það að skemmtilegri hefð þegar við vorum yngri að taka fram vigtina þegar klinkkrukka ömmu og afa var orðin full. Þá var klinkinu skipt niður á okkur frændsystkinin þar sem hvert okkar fékk hálft kíló af klinki í plastpoka. Þetta þótti okkur ótrúlega spennandi. Auk þess sendi hann okkur heim með poka fullan af epla- bitum, rúsínum og suðusúkku- laði í nesti. Þegar við lítum til baka var það umhyggjan sem einkenndi afa. Hann hafði einlægan áhuga á því sem við vorum að bralla og samgladdist okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Eftir að amma veiktist hugsaði hann alltaf svo vel um hana. Afi var ekki bara fær ljós- myndari heldur var hann lista- kokkur. Hann tók við eplaköku- bakstri ömmu og eldaði sína víðfrægu kjötsúpu. Afi var alltaf samkvæmur sjálfum sér og meira að segja á sínum allra síðustu metrum var ennþá stutt í grínið. Við erum mjög þakklát fyrir að hafa feng- ið tækifæri til að kveðja elsku afa okkar svona vel en þessi síð- asta vika þar sem afi og við vissum í hvað stefndi var okkur ómetanleg. Við fundum fyrir ást og umhyggju allt til leiðarloka. Elsku afi, það er okkur dýr- mætt hversu mörg ár við áttum með þér, við munum aldrei gleyma öllum góðu stundunum. Brynjar, Auður Ýr og Sigvaldi. Elsku afi. Manstu þegar þú kenndir mér „Allt í grænum sjó“ á píanóið. Þegar þú gafst okkur frændsystkinunum hálft kíló af klinki þegar hvíta krukk- an inni í eldhúsi varð full. Þegar þú eldaðir bestu hakkbollur í heimi. Þegar þú sást til þess að ég væri aldrei svöng. Þegar þú kenndir mér að teikna kisu og leggja spilagaldur. Þegar þú kenndir okkur frændsystkinun- um að kreista sykurmolaappels- ínur. Þegar ég hélt að þú hefðir búið í Flensborg (ekki verið í skólanum). Þegar við sátum inni í eldhúsi og spjölluðum um gang líðandi stundar. Þegar ég fór að hoppa út í garð af svöl- unum þínum. Afi, mér mun alltaf finnast ég vera svo lánsöm að hafa fengið að búa 15 tröppum fyrir ofan þig. Það að geta „skroppið nið- ur til afa“ var svo þægilegt. Þegar ég fann lokkandi ilminn af hakkbollunum þínum var ég ekki lengi að stökkva niður til að fá að snæða með ykkur ömmu. Ef ég var heppin fylgdi sögustund með afa með eftir- réttinum, sem ýmist var ís, ís- blóm eða appelsína með mola í. Þetta voru ekki uppspunnar sögur um dreka og prinsessur heldur reynslusögur þínar. Þú sagðir frá ýmsum grallarastrik- um frá æskuárum þínum á Siglufirði og kisunum þínum. Þegar þú lærðir ljósmyndun hjá Jóni Kaldal. Þegar þú keyrðir hringinn í kringum landið til að taka portrettmyndir af nemend- um skólanna, þegar þú vannst í síldinni á Siglufirði. Þegar þú fórst í hættulega siglingu í kjöl- far stríðsins. Þegar þú hljópst upp á Heklu til að ná góðri mynd af Heklugosi og margar fleiri sögur svo uppfullar af æv- intýrum. Takk fyrir allar frábæru ferðirnar upp í sumarbústað, sem er svo huggulegur á fal- legum stað umvafinn gróðri, og takk fyrir að sýna áhuga á öllu því sem ég tók mér fyrir hend- ur. Takk fyrir þolinmæðina við að hlusta á mig æfa á fiðluna öll þessi ár. Ég vil einnig segja takk fyrir öll frábæru fjöl- skylduboðin. Ég sé þig svo glöggt fyrir mér eins og þú varst alltaf. Nýrakaður í vel pressuðum buxum með axla- böndin, í skyrtu með bindis- hnútinn á réttum stað, hárið vel klippt og greitt og ávallt með brandara til reiðu. Takk fyrir mig elsku afi, ég á eftir að sakna þess að hlusta á sögurnar þínar og horfa á sjónvarpið með þér og heyra dillandi hláturinn þinn og fyndnu brandarana þína. Vona að þú sért búinn að finna elsku ömmu. Þitt barna- barn, Ásdís Vídalín. Þegar við systkinin minn- umst fyrstu kynna okkar af Sævari móðurbróður okkar sjáum við fyrir okkur ungan, hýreygan, brosandi mann, með einkennandi skarð á milli fram- tanna, meðalmann á hæð sem samsvaraði sér vel. Var hann unglegur í fasi og léttur í lund alla sína lífstíð. Sævar hafði þann góða eiginleika að segja vel frá og hafði ávallt gaman af að rifja upp síldarævintýrið á Siglufirði þar sem hann ólst upp og vann mörg sumur þegar það stóð sem hæst. Fáir kunnu þá sögu betur en hann en faðir hans, Halldór Guðmundsson í Frón, hóf síldarsöltun á „An- legginu“ svonefnda á Siglufirði, einn fyrstur manna. Sævar fæddist á sjó, við Pat- reksfjörð, og var skírður Hall- grímur Sævar. Nafnið Sævar fór honum vel og hann var aldr- ei kallaður annað. Hann lærði ljósmyndun hjá Jóni Kaldal í Reykjavík og vann við ljós- myndun mest allan sinn starfs- aldur. Hann átti merkilegt safn ljósmynda af mörgum Íslend- ingum því að hann ferðaðist á milli landshluta og tók myndir af skólafólki í tugi ára. Við í fjölskyldunni eigum honum að þakka margar skemmtilegar myndir bæði af eldri og yngri kynslóðinni og voru sumar handlitaðar áður en litfilmur komu á markaðinn. Stór hand- lituð ljósmynd af hraunkletti úr Mývatnssveit sem Sævar gerði og gaf móður okkar prýddi stof- una heima á Siglufirði. Sævar var tvíkvæntur, en hann missti fyrri konu sina, Helgu Rannveigu Júníusdóttur, tæplega þrítuga að aldri. Þau bjuggu á Akureyri og eignuðust eina dóttur, Soffíu. Seinni kona Sævars var Auður Jónsdóttir ljósmyndari, sem er látin fyrir nokkrum árum, en þau eign- uðust fjögur börn, Jónínu Mar- gréti, Guðrúnu Sigríði, Hrönn og Jón Alvar. Sævar og Auður bjuggu í Barmahlíð 52 í Reykja- vík allan sinn búskap utan þess tíma sem þau dvöldu sumar- langt á Siglufirði á síldarárun- um í kringum 1960. Sævar var söltunarstjóri hjá Gunnari bróður sínum sem var síldar- saltandi, tekinn við af tengda- föður sínum, Óskari Halldórs- syni. Minnist eitt okkar þess, að stundum þegar dagur var lagð- ur við nótt við söltunina átti Sævar til að halla sér upp að tunnustafla og fá sér blund standandi í nokkrar mínútur og vakna eldhress á eftir. Við feng- um hvert um sig að spreyta okkur á ýmsum verkefnum hjá frænda, svo sem salta síld, pækla og ræsa starfsfólkið þeg- ar von var á síld. Sævar var einstaklega ljúfur og góður frændi og minnumst við með hlýhug hve kært var með honum og móður okkar alla tíð. Höfðu þau mikið sam- band sín á milli og nutu sam- verunnar hvert sinn sem fund- um þeirra bar saman. Þegar aldurinn færðist yfir hjá frænda var gott að eiga góða að og naut hann einstakr- ar umhyggju barna sinna og fjölskyldna þeirra. Við sendum einlægar samúð- arkveðjur til frændsystkina og Ingu móðursystur okkar. Bless- uð sé minning Sævars frænda. Laufey, Halldór og Sigríður. Í dag verður elskulegur frændi minn og föðurbróðir kvaddur. Hans lífsgleði verður erfitt að lýsa, en ég mun sakna allrar þeirra gleði og virðingar sem hann sýndi mér. Alveg frá æsku minni var hann mér alltaf svo kær. Alltaf gaf hann sér tíma til að svara undarlegum spurningum mínum þegar ég var yngri. En seinna meir urð- um við meira vinir og það góðir. Hlógum mikið að þeim tímum sem síldarævintýrið var í blóma á Sigló. Þar vorum við á heima- slóð. Enda sáum við um að salta síld og frysta fyrir föður minn. Sævar var matsmaður og ég verkstjóri, en okkur kom svo vel samann að aldrei voru nein vandamál hjá okkur. Yfirleitt borðuðum við hjá afa, Halldóri í Fróni. Sævar gisti í norðurend- anum á Fróni og Auður seinna þegar allt var komið í gang. En þegar allt var komið í gang þá kom Auður heitin norður með dætur þeirra. Lenti þá oft á mér að passa dætur hans og Auðar, þær Jónínu og Siggu. Átti frændi á þeim tíma bíl, sem var einn af þeim fyrstu. Trab- ant hét hann. Fórum við víða á þessum bíl og fannst okkur hann tilkomumikill og undruð- umst hversu mikið plast var í honum. Á Trabantinum fór frændi um land allt til að taka myndir af skólabörnum til að setja upp bekkjarmyndir. En frændi var hér fyrir minn tíma, með ljósmyndastofu í Frón í litlu herbergi og seinna í kjall- ara í Mávahlíð. Einnig sá hann um allar myndatökur hjá fjöl- skyldum okkar. Margar eru til myndir af síldarsöltun og fagr- ar myndir héðan frá Sigló. Minnist ég margra mynda þess tíma, héðan frá Sigló. Minnast eldri Siglfirðingar hans. Eins og einn sagði við mig: Var hann ekki sonur Sigríðar í Gullfossi og Halldórs í Fróni? Aldrei varð ég var við að frændi erfði eða talaði illa um nokkurn mann. Mun minnast frænda um ókomna tíð. Elsku hjartans frændi minn, nú kveð ég þig með söknuði, minnist áfram allra ánægju- stunda okkar og þakka þér fyr- ir allar stundir okkar. Hvíldu í friði elsku frændi. Sendi ástvinum þínum sam- úðarkveðju. Frændi, Óskar Gunnarsson. Nú kveð ég Sævar tengda- föður minn og góðan vin til margra ára. Sævar lifði langa ævi og mundi tímana tvenna. Hann hafði gaman af því að segja frá liðnum tíma og sagði skemmti- lega og líflega frá. Í stríðinu sigldi hann með fisk til Eng- lands og sagði okkur sögur af bátum sem týndust í þeim flutningum og komu aldrei fram. Hann tók þátt í síldaræv- intýrinu um miðja síðustu öld og stjórnaði síldarplönum á Siglufirði og fleiri stöðum. Þá sigldi hann með síld til Norður- landanna, varð strandaglópur og réð sig sem kolamokara til að komast heim. Sem ljósmynd- ari ferðaðist hann um allt land en bæði voru bílarnir og veg- irnir frumstæðari en nú gerist og kom því ýmislegt upp á í þeim ferðalögum, dekk og vara- dekk sprungu, hjól fóru undan og öxlar skekktust. En Sævar var úrræðagóður og ávallt var hjálp að fá og hægt að halda áfram. Sævar og Auður heimsóttu okkur Hrönn til Kaupmanna- hafnar og ferðuðust með okkur og fjölskyldu Jónínu Margrétar suður um Evrópu. Margar góð- ar minningar tengjast þessum heimsóknum, sem oft voru rifj- aðar upp og haft gaman af. Þegar heim var komið og við Hrönn eignuðumst börn komu Sævar og Auður títt í heimsókn til okkar og ávallt með eitthvað gott með sér á kaffiborðið. Sæv- ar hafði áhuga á framkvæmdum og þegar við Hrönn byggðum yfir okkur var hann ávallt tilbú- inn að hjálpa til, tók til hendinni og málaði m.a. mikið innandyra. Í mörg ár stóð Sævar fyrir að haldin væru þorrablót í Barma- hlíðinni þar sem stórfjölskyldan kom saman og skemmti sér. Sævar sýndi hvernig maður hann var þegar Auður veiktist. Þar sýndi hann sinn innri mann, annaðist Auði af alúð, sinnti heimilinu af kostgæfni og gerði allt til þess að hún gæti verið heima. Þar kom sér vel að Sævar Halldórsson Samúðarskreytingar • Útfaraskreytingar | Blómasmiðjan Grímsbæ | S. 588 1230 |
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.