Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 74

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 74
74 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 ✝ Sigurður Jóns-son fæddist 24.12. 1919 á Meiðavöllum í Kelduhverfi. Hann lést 28.12. 2014 á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. Foreldrar hans voru Jón Sigur- geirsson, f. 11.12. 1884, d. 19.6. 1954 og Halldóra Jónsdóttir, f. 21.2. 1886, d. 18.4. 1967. Sigurður kvæntist Jóhönnu Ólafsdóttur, f. 4.2. 1927, frá Fjöllum í Kelduhverfi, þann 6.11. 1948. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru Ólafur Brynjar, f. 1.4. 1946, kona hans er Kristbjörg Ágústa Magnúsdóttir og eiga þau tvo syni og sjö barnabörn; Jón, f. 8.3. 1950, kona hans er Þorbjörg Bragadóttir og eiga þau fjögur börn og þrjú barna- börn; Björn Ágúst, f. 4.4. 1955, d. 25.3. 2001, kona hans var Kristín Björnsdóttir og áttu þau fjögur börn og tvö barna- börn; Sigurgeir, f. 18.8. 1956, heima allt til ársins 2000 er þau fluttu til Húsavíkur. Meðan þau hjón bjuggu í Garði sinnti Sigurður ýmsum störfum með- fram búskap, t.d. var hann jarðvinnslumaður fyrir Bún- aðarfélag Keldhverfinga í þrjú ár, ásetningsmaður og bóka- vörður í nokkur ár, gjaldkeri Búnaðarfélags Keldhverfinga í 18 ár og formaður þess í 9 ár. Hann sat í hreppsnefnd Keldu- neshrepps í 8 ár og var for- maður Sauðfjárræktarfélags Keldhverfinga í allmörg ár. Trúnaðarmaður Dýraverndun- arsambands Íslands um 30 ára skeið og meðhjálpari í Garð- skirkju til fjölda ára, auk margra annarra trún- aðarstarfa. Sigurður var mikill fræðimaður og eftir hann liggja þó nokkur rit um þjóðleg efni sem hann ritaði fyrir Þjóð- minjasafn Íslands, greinar í Ár- bók Þingeyinga og fleira. Einn- ig hafði Sigurður gaman af söng og söng sjálfur í kórum um margra áratuga skeið, síð- ast með Sólskinskórnum á Húsavík. Útför Sigurðar fór fram 10. janúar 2015 en vegna mistaka við birtingu eru minning- argreinarnar endurbirtar. kona hans er Að- alheiður Magn- úsdóttir og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn, Halldóra Friðný, f. 19.4. 1962, d. 26.3. 1974. Sigurður var sjöundi í aldursröð systkina sinna, en þau voru Guð- mundur, f. 4.8. 1905, d. 13.3. 1977, Kristbjörg, f. 31.12. 1907, d. 30.10. 1982, Sigríður, f. 26.7. 1909, d. 29.8. 2000, Óskar Jón f. 15.10. 1911, d. 14.7. 1916, Sveinungi, f. 29.1. 1915, d. 4.9. 2003, Jónína, f. 4.4. 1918, d. 16.6. 1998, Adam, f. 14.9. 1921, d. 28.1. 2014, Rósa Elísabet f. 1.1. 1926 og Hólmfríður Valgerður, f. 26.4. 1927, d. 14.9. 1991. Sigurður fór til náms á Hvanneyri og lauk þar bú- fræðinámi vorið 1944. Hann var bóndi og veður- athugunarmaður í Garði II í Kelduhverfi þar sem þau hjón byggðu sér bú og áttu þar Tengdafaðir minn elskulegur, Sigurður Jónsson, er látinn, níu- tíu og fimm ára að aldri. Siggi var dugnaðarforkur allt til enda. Þegar ég kynntist Sigga og Jó- hönnu ráku þau sitt myndarbú í Garði í Kelduhverfi enda var hann búfræðingur frá Hvann- eyri. Hann var veðurathugunar- maður í tæp 40 ár. Það var alltaf gaman að spjalla við Sigga í fjárhúsunum eða bara heima við eldhúsborðið og mér fannst það ekki lítil upphefð að bóndinn treysti mér ásamt Ágústi til að vaka yfir fénu á sauðburði þegar bændur sváfu. Siggi hugsaði mjög vel um sitt fé og ræktun. Hann var alltaf með góða með- alþyngd og mjög fjárglöggur maður. Pínu karlremba var í karli enda voru tímarnir öðru- vísi þegar hann var að alast upp. Þegar við fluttum suður hélt Jón áfram með kindur og þá var alltaf fylgst með af miklum áhuga í gegnum síma. Eftir að Siggi fór á sjúkrahúsið og átti erfitt með að tala í síma varð Jó- hanna að bera fréttirnar á milli. Hann hafði áhuga á búskapnum til hinstu stundar. Þegar ekki var verið að sinna búinu fór Siggi um heiðar að kanna og kortleggja eyðibýli, skrifa alls konar frásagnir um ýmsa atburði svo eitthvað sé nefnt. Hann var í hreppsnefnd í mörg ár, einnig í stjórn ýmissa félaga og nefnda. Oftar en ekki stoppaði trak- torinn fyrir utan húsið okkar, krakkahópurinn stökk aftan á og var ýmist farið niður á tún eða að sækja mjólkina á brúsa- pallinn. Eitt af tómstundagamaninu var að syngja í kirkjukór Garð- skirkju og seinna í kór aldraðra á Húsavík. Meira að segja eftir að við fjölskyldan fluttum suður skellti hann sér á æfingu með mér og krökkunum og söng svo jólamessurnar með okkur í Sandgerði og við vorum ekkert smástolt að hafa gamla manninn með okkur í kórnum kominn vel yfir áttrætt og já á 90 ára af- mælinu á aðfangadag söng hann messusvörin og tenórinn eins og ekkert væri. Bragi, barnabarnið hans, byrjaði söngferilinn sinn við hliðina á afa í Garðskirkju. Siggi var afar stundvís maður, þoldi ekki að mæta of seint, sem dæmi var hann yfirleitt kominn yfir til okkar hálftíma áður en kóræfing átti að byrja en það tók okkur þrjár mínútur að komast á æfingu. Þegar Völsungur var að spila var Siggi pottþétt í brekkunni. Fékk hann boðsmiða síðustu ár- in á alla leiki Völsungs. Hann horfði mikið á fót- og handbolta í sjónvarpinu. Afi og amma í Garði fylgdust vel með tónlistarnámi barna- barnanna og öllu öðru námi. Alltaf er spurt um hvern og einn og hvernig þeim gangi. Það var alltaf gott að koma á Húsavík til Jóhönnu og Sigga. Við tjölduðum uppi á tjaldstæði og strax fyrsta morguninn var hann kominn og allir drifnir nið- ur í húsið þeirra í morgunmat, kaffi og kvöldmat. Hann var ekki í rónni nema allir væru út- troðnir af mat og gekk frá því að allir mættu í morgunmat næsta dag. Hlýjan og góðvildin geislaði af þeim. Þau reyndust mér sem foreldrar alla tíð síðan ég kom í fjölskylduna. Það er ekki hægt að hugsa sér betri tengdafor- eldra. Afa Sigga verður sárt saknað. Elsku Jóhanna mín og fjöl- skyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Þorbjörg Bragadóttir. Minningin um afa sitjandi með ennið á krepptum hnefan- um á eldhúsbekknum, augun lokuð og veðurfregnirnar á hæsta styrk í útvarpinu fær mig alltaf til að brosa. Afi var líka eini maðurinn sem ég veit um sem gekk í föðurlandi og ull- arsokkum daglega, sumar jafnt sem vetur. Stór hluti æskuminninga minna er úr sveitinni. Hlaupandi um grænar grundir að elta fiðr- ildi, skoppandi á eftir afa út í fjárhús að gefa kindunum eða líta til með kindum í sauðburði, að fylla marga mjólkurbrúsa af vatni meðan afi fyllir stóran strigapoka af heyi og fá svo að fara með á traktornum upp í heiði og gefa kindunum hey og vatn. Stundum voru líka heim- alningar sem fengu mjólk úr pela. Þegar ég var fimm ára naut ég þeirra forréttinda að fá að vera ein í sveitinni hjá ömmu og afa í rúman mánuð. Næstu sum- ur á eftir fékk ég svo að vera viku eða tvær. Afi sinnti veðurathugunum í áratugi. Það var alltaf jafn- spennandi að sjá hversu mikið regnvatn kæmi úr dunkinum þann daginn. Allt var svo skil- merkilega skráð í bleiku veður- bókina sem send var Veðurstofu Íslands mánaðarlega. Afi fór í Bændaskólann á Hvanneyri sem ungur maður. Mér finnst það mjög merkileg staðreynd, sér í lagi þar sem þetta var á tímum þar sem menntun var síður en svo sjálf- gefin. Ég spurði hann síðastliðið sumar hvernig það hefði komið til að hann, fátækur sveita- drengurinn, hefði komist í skóla. Svarið var einfalt: „Ég bara skrifaði til skólastjórans og spurði hvort ég mætti koma í skólann, og hann sagði já.“ Afa var ýmislegt fleira til lista lagt en bústörfin. Hann söng t.d. í kór fram yfir nírætt. Ég geymi vel geisladiskinn sem hann færði mér með upptökum af kórnum hans, Sólseturskórnum, árið sem hann varð níræður. Eitt sumarið man ég að hann smíðaði áningarborð í Þjóðgarð- inn í Jökulsárgljúfrum. Og þeg- ar riðuveiki kom upp í sveitinni fór hann á milli bæja að hjálpa til við að sótthreinsa eftir að fé var skorið. Hann var líka hag- yrtur og samdi þónokkrar vís- urnar um ævina. Um sjötugt eignaðist afi ritvél og hóf þá skrif fyrir alvöru. Eftir hann liggja skrár um hreppsnefndar- menn í Kelduneshreppi í 200 ár á bókarformi, sem og eyðibýla- skrá. Afi var óþrjótandi brunnur ættfræði, og gat rakið ættir sín- ar og annarra saman marga liði aftur. Afi kenndi mér að leggja kap- al. Þrjá mismunandi! Og svindla smá svo þeir gengju upp. Hann lék líka við mig og fann kubba, eða pappír og liti og blýant til að hafa ofan af fyrir mér. Það sama gerði hann svo fyrir stelpurnar mínar þegar við komum til Húsavíkur, fann til dót og lék við þær. Og fyllti á skálina með súkkulaðirúsínunum, sem litlir fingur tæmdu hratt. Afi var hlýr og glaðlyndur maður, fróðleiksfús, réttsýnn og mikill viskubrunnur sem gott var að leita til með hvað sem var. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hann sem afa, þakklát fyrir allar stundirnar okkar saman, allt sem hann kenndi mér, beint og sem fyrirmynd. Minninguna um merkan mann mun ég geyma í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Þín Halldóra Friðný. Foreldrar mínir fluttu í Garð fáum árum á eftir Sigga og Jó- hönnu, þá var ég á öðru ári. Fyrstu minningarnar um Sigga snúast um kindur, heyskap, dís- ilmótorinn og „að taka veðrið“. Við krakkarnir á bæjunum vor- um á svipuðu reki og samgang- urinn var mikill. Af engu öðru óvandabundnu fólki hef ég haft eins mikil og góð kynni um æv- ina. Pabbi og Siggi stóðu saman að borun eftir vatni fyrir bæina og keyptur var dísilmótor til að knýja vatnsdæluna. Með honum kom rafmagnið á bæina tvo. Mótorinn var staðsettur „suð- urfrá“, það nefndum við heimili Sigga og Jóhönnu. Okkar heim- ili var nefnt „vesturfrá“. Ekki var ástæða til að mótorinn gengi allan sólarhringinn og sam- komulag var um að slökkt væri á honum kl. 11 á kvöldin. Siggi stjórnaði mótornum og fórst það vel úr hendi, eins og hans var von og vísa. Samkomulagið um vatnsöflunina og mótorinn er gott dæmi um hið góða samstarf sem var á milli heimilanna alla tíð. Þó verður að fylgja með að sumum hundunum á hvorum bæ fyrir sig kom afar illa saman. Þegar þeir hittust með hús- bændum sínum ruku þeir sam- an, svo að bændurnir urðu að skilja þá að. Samviskusemi Sigga gagn- vart því sem hann tók sér fyrir hendur var við brugðið, svo að það kom ekki á óvart að Veð- urstofan fól honum og Jóhönnu að annast veðurathuganir fyrir sveitina. Þeim sinntu þau með mikilli prýði. En ævistarf Sigga snerist fyrst og síðast um fjárbúskap- inn. Maður skynjaði snemma áhugann og ákefðina hjá Sigga um allt sem snerti sauðfé. Hann lagði allt í að heyskapurinn gengi vel, vakti yfir ánum á sauðburðinum og í göngunum gætti hann þess vel að heimtur yrðu sem allra bestar. Svona mætti áfram telja, því að margt er góðbóndans starf. Á yngri árum var Siggi góður langhlaupari og lengi liðtækur skákmaður. Hjörtur hefur sagt mér hvað það hafi verið honum mikils virði að Siggi gaf sér allt- af tíma til að tefla við sig þegar hann bað um það. Þegar létta tók búskaparönn- um hjá Sigga sneri hann sér að fræðagrúski og ritstörfum. Þar, eins og í öðrum viðfangsefnum, kom nákvæmni og glöggskyggni Sigga vel fram. Greinar hans í Árbók Þingeyinga og rit hans um hreppsstjórnarmenn í Kelduhverfi eru mikilvægt framlag til sögu sveitarinnar. Hann safnaði talsverðu af sagn- fræðilegum gögnum sem bíða úrvinnslu. Siggi veitti mér þann heiður að afhenda mér megnið af þeim í þeirri von að úrvinnsla úr þeim haldi áfram. Meðal þessara gagna eru sálnaregistur og manntöl sveitarinnar allt frá 18. öld, lýsingar og teikningar af öllum fjárréttum í sveitinni, veð- urfarslýsingar frá síðustu öldum og margt fleira. Það er mikil eftirsjá að Sigga í Garði og ég sakna þess að geta ekki lengur spjallað við hann um liðna atburði og líðandi stund. Við Torfhildur þökkum honum og Jóhönnu gestrisni þeirra og velvild í okkar garð. Við sem áttum heima „vesturfrá“ á sín- um tíma þökkum fyrir sam- fylgdina um áratugaskeið og vottum Jóhönnu og fjölskyld- unni allri okkar dýpstu samúð. Guðmundur Sigvaldason. Sigurður Jónsson Kæri Binni. Í upphafi jólaundir- búningsins er dauð- inn svo fjarri og því kemur fréttin af fráfalli þínu, okk- ar gamla skólafélaga og vinar, eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hugurinn fer á fullt, minningar streyma og vanmátturinn er al- gjör. Hvernig má það vera að svo ungur maður í blóma lífsins sé ekki lengur á meðal okkar? Þú varst litríkur og sterkur karakter með sterka siðferðis- kennd. Þú stefndir alltaf hátt og sást það best á þeim störfum sem þú gegndir á síðustu árum. Þér var annt um fólkið í kringum þig og þú varst góður í að sniðganga leiðindi ef þú fannst möguleikann á því. Rökræður um allt milli him- ins og jarðar voru aldrei langt undan og hafðir þú mjög gaman af því að velta fyrir þér hinum ótrú- legustu staðreyndum um menn og Brynjar Þór Sigmundsson ✝ Brynjar ÞórSigmundsson fæddist 9. ágúst 1978. Hann lést 3. desember 2014. Brynjar Þór var jarðsunginn 16. desember 2014. málefni líðandi stundar. Við sitjum eftir dofin og stóra spurn- ingin sem kemur upp við skyndilegt fráfall þitt, skilur okkur eft- ir án svara. Við sitj- um eftir með sorg í hjarta. En það er sama hvernig við spyrjum, við fáum engin svör og við get- um engu breytt. Það eina sem við getum gert núna er að ylja okkur við minningarnar, hvert með sínu ívafi. Við erum stór hópur, sem vorum með þér í grunnskóla, öll eigum við mismunandi minningar og áttum mismikinn tíma með þér en það sem hvert og eitt okkar á getum við nú yljað okkur við á þessum erfiðu tímum. En önnur spurning hefur einn- ig vaknað, aftur og aftur, hvers vegna náðum við ekki að láta verða af því að halda 20 ára bekkj- armótið okkar eins og til stóð núna í ár? Á næsta bekkjarmóti munum við kveikja á kerti og hafa minningarstund þér til heiðurs, kæri skólafélagi og vinur. Við sendum fjölskyldu og ætt- ingjum hans Binna okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum Kæri bekkjarbróðir og vinur hvíldu í friði. Fyrir hönd árgangs 1978 í Síðuskóla, Monika Margrét og Þóra Kristín. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) „Jæja Binni minn, hvernig er staðan?“ „Þokkaleg“ svaraði hann „en hvernig er í sandinum, rjóma- blíða treysti ég, sæmilegt hérna megin en aðeins byrjað að kólna“. Svona byrjuðu flest samtöl okkar Brynjars hvort sem það var í gegnum Skype eða augliti til aug- litis. Veturinn 2010 réði ég mig í vinnu hjá Atlantshafsbandalaginu í Kabúl í Afganistan og snemma vors var ég kominn út. Við fórum tveir slökkviliðsmenn og síðar um sumarið bættust fleiri Íslending- ar í hópinn í önnur störf. Þeirra á meðal var Brynjar Sigmundsson. Ekki var hann hávaxinn en glett- inn húmor og endalausar skoðan- ir á öllu milli himins og jarðar urðu til þess að hann passaði full- komlega í hópinn. Binni og Steini Páls bjuggu á Hrútastöðum, beint á móti Sammaling og Hilla hillu- smið, ská á móti Óskari og Ásgeiri og nokkrum gámum frá okkur Steina Stebb. Fyrst í stað var Brynjar þögull svona rétt eins og hann væri að taka okkur út og reyna að átta sig á því hvaða menn við hefðum að geyma. Fljótt myndaðist mikill vin- skapur á milli okkar allra og átt- um við góðar stundir saman. Við tókumst á við ýmislegt og veltum fyrir okkur allskonar hlutum og málefnum. Ekkert var heilagt og þegar umræðurnar voru sem há- værastar var það vanalega Binni sem átti lokaorðið en hann var mun meira lesinn en við hinir. Í Kabúl var lífið dálítið sér- stakt. Þar áttu menn engan annan kost en að halda vinskap, jafnvel þótt við værum ekki alltaf sam- mála. Við áttum hver annan að og þó svo að fjölskyldur okkar væru einungis símtal í burtu þá var það stundum eins og órafjarlægð. Á milli vakta heimsótti ég Binna iðulega í vinnuna og alltaf tók hann vel á móti mér svona rétt eins og þegar við vinirnir heim- sóttum hann í nýja húsið fyrir skömmu. Hann sagði okkur frá því hvernig hann ætlaði að inn- rétta húsið og auðvitað höfðum við okkar skoðanir á því en urðum svo eins og ávallt sammála á end- anum. Brynjar var maður sem vann sér inn virðingu og vinskap hjá öllum sem hann hitti. Hann var þannig af Guði gerður að fólk hafði gaman að að vera í kringum hann. Oft stóð ég mig að því að við vorum í hrókasamræðum og ég vissi að ég hefði rangt fyrir mér og lék mér að því að láta hann sannfæra mig um rétt mál og allt- af tókst honum það. Brynjar hafði gríðarlegan áhuga á bílum og vitnaði oft í Sigmund pabba sinn í þeim efnum. Mér varð fljótt ljóst að þeir feðgar væru miklir vinir og bæru ómælda virðingu hvor fyrir öðrum. Það kom svo ber- sýnilega í ljós þegar Brynjar bað pabba sinn að fara og skoða Benz- ann sem hann hafði augastað á sem hann svo á endanum keypti. Alls staðar þar sem Brynjar fór var hann hrókur alls fagnaðar og bera honum allir vel söguna. Ég kveð þig með vinsemd, virðingu og söknuði, elsku vinur, og þakka fyrir þær stundir sem við áttum saman. Fjölskyldu þinni votta ég mína dýpstu samúð og segi, eins og svo oft áður sjáumst síðar, bróðir. Björn Halldórsson stríðsbróðir. Þeir sem þekkja mig vita það um mig að ég er ekki mikið fyrir að tala um tilfinningar mínar þó svo að ég eigi ekki í neinum vand- ræðum með að tjá skoðun mína á hlutum, minningargreinar eru mér mjög erfiðar því að alltaf finnst mér eins og ég geti ekki komið því sem ég vil segja nógu vel frá mér á pappír. En þannig er nú mál með vexti að ég bar vin minn til hans hinstu hvílu í gær með mikilli sorg í mínu hjarta. Þessi félagi hafði mikil áhrif á mig einfaldlega vegna þess hvernig maður hann var og yfirgaf hann þennan heim löngu áður en ég nokkurn tíma hafði átt von á. Binni minn, þú varst gull af manni og það hryggir mig meira en þú getur ímyndað þér að kveðja þig. Þú hafðir áhrif á mitt líf á góðan hátt og án efa allra sem þér fengu að kynnast. Hve miklir dellukarl- ar við vorum og alltaf að metast og rökræða hvað væri best, stundum sammála en ekki alltaf en það var svo gaman hjá okkur þegar við vorum ósammála því rökin sem við færðum voru svo vitlaus og fyndin. Ég vildi að við hefðum fengið að njóta þín lengur en raun varð en með þessu ljóði vil ég kveðja þig, kæri vinur: Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma Gæta að sorgmæddum, græða djúp sár Þó kominn sért yfir í aðra heima Mun minning þín lifa um ókomin ár. Þorsteinn Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.