Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 78
78 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Ingibjörg Þórðardóttir og eiginmaður hennar, Júlíus FreyrTheodórsson, fluttu til Hríseyjar af höfuðborgarsvæðinu fyrirfimm árum og líkar vel. „Við vildum prófa þetta, ég er alin upp
í Aðaldal og vissi því alveg að hverju ég gekk.“ Þau reka Júllabúð
sem er verslunin á staðnum og í september síðastliðnum tóku þau
við rekstri veitingastaðarins Brekku. „Það er rólegt hér á veturna
en margir koma hingað í helgarferðir og aðrir eiga hér sum-
arbústað og nýta hann um helgar. Við rekum einnig gistihús á
Brekku og sjáum tækifæri til að fjölga hér gestum á veturna. Hér
búa um 120 manns en íbúatalan a.m.k. tvöfaldast á sumrin.“
Ingibjörg er félagsráðgjafi að mennt og stofnaði ráðgjafarstofuna
Hugrekki fyrir tæpum tveimur árum. Hún býður upp á almenna
ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldur en einnig námskeið og fyr-
irlestra fyrir ýmiss konar hópa. Sérsviðið er samt ráðgjöf fyrir þol-
endur ofbeldis og aðstandendur þeirra. „Þetta gengur vel og fólk er
að átta sig á að þessi þjónusta er í boði og hvernig hún virkar.“
Spurð um áhugamál svarar Ingibjörg heilsa almennt. „Það tónar
vel við það sem ég vinn. Ég er að hefja störf sem pistlahöfundur um
fjölskylduna, samskipti fólks og andlega velferð á síðunni menning-
arvitinn.is. Ég er að vinna í fyrsta pistlinum sem mun birtast á
næstu dögum.“ Börn Ingibjargar og Júlíusar eru Rúnar Freyr 15
ára, Jóhanna Kristín 5 ára og Stella Kristín 4 ára. „Á afmælinu ætla
ég að eiga góða stund með fjölskyldunni og nánum vinum.“
Ingibjörg Þórðardóttir er fertug í dag
Félagsráðgjafinn Ingibjörg rekur ráðgjöfina Hugrekki.is.
Hefur í nægu að
snúast í Hrísey
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Englandi William Óskar Maskell fæddist 29. júlí 2014 kl. 12.58. Hann vó 4.156 g
og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir og Ryan
Christopher Maskell.
Nýir borgarar
A
nton Helgi Jónsson
fæddist á Sólvangi í
Hafnarfirði 15.1. 1955.
Fyrstu æviárin bjó
hann í Hraunkoti við
Hellisgerði en seinna í Sjálfstæð-
ishúsinu við Strandgötu, þar sem
móðir hans var húsvörður. Hann
flutti síðan 12 ára með móður
sinni til Reykjavíkur.
Anton var eina barn foreldra
sinna en þau bjuggu ekki saman
og áttu bæði börn fyrir. Hann var
í vorskóla hjá nunnunum í Hafn-
arfirði en gekk síðan í Lækjar-
skóla og var í bekk hjá Herði Jaf-
etssyni.
„Ég var svo við sveitastörf á
Bala í Garðahreppi þar sem aust-
urrísk kona, Heidi Guðmundsson,
leirkerasmiður og reiðkennari, bjó.
Þar lærði ég að umgangast hross,
hugsa um hænsni og matjurtarækt
og kynntist störfum listakonu.“
Anton var í Miðbæjarskóla og
Austurbæjarskóla. Menntaskóla-
árunum eyddi hann í aðfararnámi
KÍ en var þó einn vetur við tamn-
ingar og kúaumhirðu í Vestra-
Geldingaholti hjá Rosemarie Þor-
leifsdóttur og Sigfúsi Guðmunds-
syni. Seinna lagði hann stund á
heimspeki og bókmenntafræði við
Stokkhólmsháskóla.
Anton gaf út ljóðabók 19 ára og
síðan hafa skáldskapur og ritstörf
verið meginþátturinn í lífi hans.
Anton Helgi Jónsson, rithöfundur og skáld – 60 ára
Við Hrafnabjargafoss Anton Helgi og Margrét hafa farið í lengri og styttri göngur um árabil, allan ársins hring.
Strákur úr Firðinum
Efnilegur knapi Anton Helgi og Blesi í hindrunarstökki á Bala árið 1969.
Seinni árin hefur pilturinn einkum æft hindrunarstökk á skáldfáknum.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is