Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 84

Morgunblaðið - 15.01.2015, Síða 84
84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 7990.- m Vegna afnáms Vörugjalda nú kr. 6.990 m2 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Torstein Björklund, ungur leikari af íslenskum og norskum ættum, fer með hlutverk í einni viðamestu sjónvarpsþáttaröð sem framleidd hefur verið í heimalandi hans Nor- egi, Kampen om tungtvannet, eða Baráttan um þungavatnið sem sýningar hófust á í norska ríkis- sjónvarpinu, NRK 1, í byrjun árs. Í þáttunum segir af kjarnorku- áætlunum nasista í seinni heims- styrjöldinni, framleiðslu þeirra á þungavatni í Noregi og einni þekktustu aðgerð norskra and- spyrnuhreyfingarmanna sem tókst af miklu hugrekki að sprengja í loft upp birgðir nasista af þunga- vatni. Thorstein fer með hlutverk einnar af þessum hetjum í þátt- unum. Torstein talar ágæta íslensku þótt hann hafi ekki alist upp hér á landi, segist tala „mömmu- íslensku“ þar sem móðir hans er íslensk. Hann segist í æsku hafa svarað mömmu sinni á norsku þótt hún hafi talað við hann íslensku. Torstein var síðast á Íslandi í fyrra, lék í norsku kvikmyndinni Morgenröde, eða Morgunroða, sem var tekin upp á Mýrdalssandi. „Það átti að vera stuttmynd en varð að kvikmynd í fullri lengd,“ segir hann. Morgunroði er dy- stópía, gerist í framtíðinni og seg- ir af tveimur mönnum sem vafra um eyðilega jörð í leit að drykkjarvatni eftir að gríðarleg mengun hefur útrýmt nær öllu lífi á plánetunni. Leikarar eru aðeins tveir í myndinni, Ingar Helge Gimle og Torstein. Með þeim allra dýrustu Torstein nam leiklist í Liverpool Institute for performing Arts, LIPA, á Englandi á árunum 2008- 11 og Khio, leiklistarskóla í Ósló í Noregi, veturinn 2012-13. Þótt stutt sé síðan Torstein lauk námi, eitt og hálft ár, hefur hann fengið bitastæð verkefni, eins og sjá má af fyrrnefndum hlutverkum. „Ég er bara ofsalega heppinn,“ segir hann hógvær og hlær. Og berst þá talið að Kampen om tungtvannet. „Ég er skemmd- arverkamaður, ég er nýbúinn að læra þetta orð,“ segir Torstein um hlutverk sitt í þáttunum og hlær að orðaforðanum. En er hlutverkið stórt? Torstein líkir því við hlutverk hermannanna í þáttunum Band of Brothers. „Við erum tíu strákar sem fylgt er eft- ir í þáttunum. Við erum mikið með en þó ekki aðalpersónurnar,“ segir hann. – Eru þetta með dýrari þáttum sem Norðmenn hafa framleitt? „Ég held að þetta séu þeir dýr- ustu. Það er alltaf sagt að þeir séu með þeim dýrustu en ég hef ekki heyrt af öðrum dýrari,“ svarar Torstein. Spurður hvort norskar stjörnur séu meðal leikara segir Torstein að þær séu margar. Fjöldi ungra og upprennandi leik- ara t.d. í hlutverkum ungu and- spyrnumannanna. – Var lærdómsríkt fyrir þig að leika í þáttunum? „Alveg ofsalega. Þetta er nátt- úrlega fyrsta stóra hlutverkið mitt í sjónvarpi og gaman að vera með í einhverju sem er svona mik- ilvægt í sögu Noregs. Á hverjum tökudegi var eitthvað ofsalega stórt, spennandi og merkilegt á ferðinni,“ segir Torstein. – Á síðu NRK kemur fram að um 1.259.000 Norðmenn hafi horft á fyrsta þáttinn. Er það ekki mjög mikið áhorf? „Jú, við vorum alveg viss um að margir myndu horfa á hann en alls ekki svona margir. Þannig að það var rosalega skemmtilegt.“ „Viss um að þetta verður frábær mynd“ Hvað önnur verkefni varðar þá fer Torstein með hlutverk í dönsku kvikmyndinni Tordenski- old sem gerist áður 1720 og fjallar um Peter Wessel Tordenskiold, stríðshetju og sjóliðsforingja í konunglega danska og norska sjó- hernum. Torstein leikur Ole nokk- urn Jacobsen. „Þetta er dönsk mynd og það eru tvö norsk hlutverk í henni. Tordenskiold var náttúrlega dansk-norskur og hann hitti norskan mann í Kaupmannahöfn. Ég leik hann. Myndin gerist í Kaupmannahöfn en var tekin í Prag,“ segir Torstein. Tökur á myndinni fóru fram í október í fyrra og verður hún frumsýnd á næsta ári, skv. vefnum IMDb. Torstein segir handrit myndarinnar fyrirtak og Jacob Of- tebro, sem leikur Tordenskiold, gríðarlega færan leikara. „Þannig að ég er viss um að þetta verður frábær mynd. Þótt mitt hlutverk sé lítið er alltaf skemmtilegt að vera með í einhverju svona flottu,“ segir Torstein. Torstein er þessa dagana að leika á sviði í Ósló, í Fjandmanni fólksins eftir Ibsen, og hann segir fleiri kvikmyndaverkefni í píp- unum þótt ekkert sé fast í hendi. Enn vanti fjármagn til framleiðsl- unnar, eins og gengur. „Ég er bara ofsalega heppinn“  Íslensk-norski leikarinn Torstein Björklund fer með hlutverk í einni dýrustu sjónvarpsþáttaröð Norðmanna, Kampen om tungtvannet  Einnig með hlutverk í mynd um stríðshetjuna Tordenskiold Ljósmynd/Lasse Fløde Mikilvægt „Þetta er náttúrlega fyrsta stóra hlutverkið mitt í sjónvarpi og gaman að vera með í einhverju sem er svona mikilvægt í sögu Noregs,“ segir Torstein um þátttöku sína í umtöluðum sjónvarpsþáttum. Ljósmynd/Robert Holand Dreier/Filmkameratene Andspyrnumaður Torstein Bjørklund í hlutverki sínu í sjónvarpsþáttunum Kampen om tungtvannet sem hlotið hafa góðar viðtökur og áhorf í Noregi. » Á hverjum tökudegivar eitthvað ofsalega stórt, spennandi og merkilegt á ferðinni… við vorum alveg viss um að margir myndu horfa á hann en alls ekki svona margir. Heimildarmynd leikhópsins Krið- pleirs um Jón Hreggviðsson sem hefur verið sýnd í Bíó Paradís fær- ist nú yfir í Tjarnarbíó. Heimild- armyndin ber yfirskriftina Síðbúin rannsókn: Drap hann mann eða drap hann ekki mann? en Jón var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Síðbúin rannsókn verður sýnd í Tjarnarbíói í kvöld, fimmtu- dag, klukkan 20 og oftar á næst- unni. Hópurinn á ýmiskonar efni sem hann hlakkar til að kynna. Gaman Kriðpleir á efni í handraðanum sem félagarnir hlakka til að sýna. Rannsaka 330 ára gamalt morðmál
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.