Morgunblaðið - 15.01.2015, Qupperneq 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus
Pörupiltar snúa aftur í Borgarleikhúsið með kynfræðslu sína fyrir 10. bekkinga
Grænmeti Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og María Pálsdóttir eru Pörupiltar.
Handbragð Nonni Bö hafði m.a. það hlutverk að kveða niður ýmsar lífseigar mýtur. Stuð Elinóra Inga Egilsd., Silja Gunnarsd., Birta Sól Ström og Birgitta Ýr Ríkarðsd.
Eftirvænting Jón Kristján Ólafsson, Andri Már Hannesson og Fannar
Hlíðdal Þórðarson voru spenntir að sjá sýningu Pörupilta.
Pörupiltarnir Hermann Gunnarsson og Dóri Maack.
Morgunblaðið/Eggert
» Pörupiltar eru mættir aftur til leiks til að fræða 10. bekkingaum kynlíf, en uppistand þeirra er styrkt af Mannréttindaráði
Reykjavíkurborgar. Með húmor og gleði að vopni ræða Pörupilt-
arnir Nonni Bö, Dóri Maack og Hermann Gunnarsson um allt
sem viðkemur kynlífi, kveða niður lífseigar mýtur og hvetja ung-
lingana til að hlusta á eigið hjarta og tilfinningar.
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn
Woody Allen hefur skrifað undir
samning við Amazon um að leik-
stýra nýrri sjónvarpþáttaröð sem
hann skrifar einnig handritið að.
Verður þetta í fyrsta skipti sem
hann vinnur sjónvarpsefni.
Sjónvarpsþáttadeild Amazon
hreppi sín fyrstu Golden Globe-
verðlaun um helgina, fyrir gam-
anþættina Transparent. Hyggja
stjórnendur á frekari landvinninga
og hafa í því skyni fengið hinn virta
og frumlega Allen til liðs við sig. Þá
mun fyrirtækið frumsýna fjórar
nýjar þáttaraðir á þessu ári.
„Ég skil ekki hvernig ég lenti í
þessu. Ég er ekki með neinar hug-
myndir og veit ekkert hvar ég á að
byrja,“ segir Woody Allen í yfirlýs-
ingu. Hver þáttur verða hálftími á
lengd og verða þeir aðgengilegir
áskrifendum Amazon á næsta ári.
Þættirnir geta raskað því þekkta
markmiði Allens að gera nýja kvik-
mynd á hverju ári. Fleiri þekktir
kvikmyndaleikstjórar hafa að und-
anförnu tekist á við sjónvarpsþátta-
formið, þar á meðal Steven Soder-
bergh, David Fincher og David
Lynch.
Varaforstjóri Amazon Studios
segir við BBC að það sé heiður að fá
að starfa með Allen. „Hann er
framsýnn listamaður sem hefur
leikstýrt sumum bestu kvikmynd-
um allra tíma,“ segir hann.
Woody Allen gerir
sjónvarpsþætti
AFP
Leikstjórinn Woody Allen hefur
haldið sig við kvikmyndaformið.