Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 89

Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 48 RAMMA STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI! E.F.I -MBL www.laugarasbio.isSími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS - bara lúxus Pörupiltar snúa aftur í Borgarleikhúsið með kynfræðslu sína fyrir 10. bekkinga Grænmeti Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og María Pálsdóttir eru Pörupiltar. Handbragð Nonni Bö hafði m.a. það hlutverk að kveða niður ýmsar lífseigar mýtur. Stuð Elinóra Inga Egilsd., Silja Gunnarsd., Birta Sól Ström og Birgitta Ýr Ríkarðsd. Eftirvænting Jón Kristján Ólafsson, Andri Már Hannesson og Fannar Hlíðdal Þórðarson voru spenntir að sjá sýningu Pörupilta. Pörupiltarnir Hermann Gunnarsson og Dóri Maack. Morgunblaðið/Eggert » Pörupiltar eru mættir aftur til leiks til að fræða 10. bekkingaum kynlíf, en uppistand þeirra er styrkt af Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Með húmor og gleði að vopni ræða Pörupilt- arnir Nonni Bö, Dóri Maack og Hermann Gunnarsson um allt sem viðkemur kynlífi, kveða niður lífseigar mýtur og hvetja ung- lingana til að hlusta á eigið hjarta og tilfinningar. Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen hefur skrifað undir samning við Amazon um að leik- stýra nýrri sjónvarpþáttaröð sem hann skrifar einnig handritið að. Verður þetta í fyrsta skipti sem hann vinnur sjónvarpsefni. Sjónvarpsþáttadeild Amazon hreppi sín fyrstu Golden Globe- verðlaun um helgina, fyrir gam- anþættina Transparent. Hyggja stjórnendur á frekari landvinninga og hafa í því skyni fengið hinn virta og frumlega Allen til liðs við sig. Þá mun fyrirtækið frumsýna fjórar nýjar þáttaraðir á þessu ári. „Ég skil ekki hvernig ég lenti í þessu. Ég er ekki með neinar hug- myndir og veit ekkert hvar ég á að byrja,“ segir Woody Allen í yfirlýs- ingu. Hver þáttur verða hálftími á lengd og verða þeir aðgengilegir áskrifendum Amazon á næsta ári. Þættirnir geta raskað því þekkta markmiði Allens að gera nýja kvik- mynd á hverju ári. Fleiri þekktir kvikmyndaleikstjórar hafa að und- anförnu tekist á við sjónvarpsþátta- formið, þar á meðal Steven Soder- bergh, David Fincher og David Lynch. Varaforstjóri Amazon Studios segir við BBC að það sé heiður að fá að starfa með Allen. „Hann er framsýnn listamaður sem hefur leikstýrt sumum bestu kvikmynd- um allra tíma,“ segir hann. Woody Allen gerir sjónvarpsþætti AFP Leikstjórinn Woody Allen hefur haldið sig við kvikmyndaformið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.