Morgunblaðið - 15.01.2015, Page 92
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Systkin slógu í gegn á YouTube
2. Frétt Maríu Lilju var stöðvuð
3. Myndbirtingin leiddi til handtöku
4. „Mig langaði að gefast upp“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Björk Guðmundsdóttir greinir frá
því á fésbókarsíðu sinni að ný hljóm-
plata hennar, Vulnicura, komi út í
mars. Þá stendur mikið til hjá tónlist-
arkonunni því sýning um verk hennar
og feril verður opnuð á sama tíma í
Museum of Modern Art í New York.
Meðal listamanna sem tóku þátt í
gerð plötunnar eru upptökustjórarnir
Arca og Haxan Clock.
Morgunblaðið/Kristinn
Ný plata Bjarkar
kemur út í mars
Sönghópurinn
Boudoir, sem er
skipaður tíu söng-
konum, heldur
tónleika í kvöld kl.
22 á Rósenberg
við Klapparstíg
undir yfirskrift-
inni „Rómó á Rós-
enberg“. Hljóm-
sveit Julians Hewletts kemur fram
með þeim og hyggjast þau flytja róm-
antískar dægurperlur úr ýmsum átt-
um.
Rómó hjá söng-
hópnum Boudoir
Þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórð-
arson hjá Kvikmyndafélagi Íslands eru
meðframleiðendur vinsælustu kvik-
myndar liðins árs í Finnlandi.
Kallast hún The Grump
upp á ensku og var leik-
stýrt af Dome Karukoski.
459 þúsund gestir sáu
kvikmyndina en á
hæla hennar komu
annar og lokahluti
þríleiksins um Hob-
bitann.
Voru meðframleið-
endur að The Grump
Á föstudag Norðaustan 10-18 m/s og snjókoma norðvestantil, en
annars 5-10 m/s og víða él. Yfirleitt bjartviðri fyrir sunnan. Frost
yfirleitt 1 til 8 stig, kaldast inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 13-20 m/s og fer að snjóa á
Norður- og Austurlandi, en annars hægari og úrkomulítið. Norð-
vestan og vestan 15-23 m/s norðaustantil í kvöld. Frost 0 til 8 stig.
VEÐUR
„Þetta er kjörið tækifæri
fyrir þessa kynslóð að fá
verkefni. Það er stór kyn-
slóð af efnilegum leik-
mönnum sem hafa ekki
fengið mörg verkefni síðan
í U19 ára landsliðinu og ég
vildi gjarnan fá fleiri leiki
fyrir þennan aldur,“
sagði landsliðsþjálfarinn
Freyr Alexandersson
meðal annars eftir 3:1
sigur U-23 ára liðs
kvenna á Póllandi. »2
Vildi gjarnan fá
fleiri leiki
„Stærstu skilaboðin frá mér til íslensks
íþróttafólks eru þau að það þori að láta
sig dreyma. Hver og einn íþróttamaður
setur sér rétt og raunhæf markmið en
hann verður eftir sem áður að hafa
kjark til þess að láta sig dreyma um að
ná enn lengra,“ segir Colin Jackson,
margfaldur Evrópu- og heimsmeistari í
grindahlaupi, sem heldur fyrirlestur
hér á landi í kvöld. » 4
Colin Jackson með
fyrirlestur í kvöld
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Safnarasýningin „Klukkurnar hans
Dodda“ verður opnuð í Galleríi undir
stiganum í bæjarbókasafni Ölfuss í
Þorlákshöfn í dag. Þar sýnir Þór-
arinn Víkingur Grímsson um 120 úr
og klukkur sem hann hefur safnað
undanfarin ár.
Söfnunarárátta er mörgum í blóð
borin en Þórarinn kannast ekki við
hana í fjölskyldunni. Segist samt
sjálfur snemma hafa leiðst út á þessa
braut. „Gamlir bílar heilluðu mig og
ég hef gert upp nokkra,“ segir hann
og vísar stoltur á bílinn sem notaður
var í kvikmyndinni Mamma Gógó
eftir Friðrik Þór Friðriksson. „Ég á
bílinn ennþá og nota hann á sumrin.
Já, já. Það held ég nú.“
Bíladellan kviknaði þegar Þór-
arinn bjó í Þingvallasveitinni. „Ég
átti heima þar í tíu ár og þá langaði
mig til þess að eignast bíl eins og
pabbi átti, Dodge Weapon, og síðan
hef ég átt nokkra slíka og farið á
þeim víða um land.“
Fermingarúrið kveikjan
Þórarinn hóf að safna úrum og
klukkum fyrir nokkrum árum. Hann
segist einkum hafa keypt klukkur á
nytjamörkuðum í Reykjavík og auk
þess fengið margar gefins. „Svona
söfnun er bara geðveiki,“ segir hann.
„Hún byrjaði þegar ég fann arm-
bandsúrið sem afi og alnafni minn
gaf mér í fermingargjöf,“ rifjar hann
upp. Segir að úrið sé rússneskt og
sérstakt, því aðeins hafi um tylft ver-
ið flutt inn til reynslu á sínum tíma.
„Ég hélt að ég hefði týnt úrinu, en
svo kom í ljós að það hafði lent ofan í
kassa með öðru dóti fyrir mörgum
árum. Í kjölfarið datt mér í hug að
fara að safna klukkum og svo rammt
kvað að þessu að þegar ég sá klukku
langaði mig í hana.“
Úrin og klukkurnar eru af ýmsum
stærðum og gerðum. Þórarinn segir
að ekki hafi verið hægt að þverfóta
fyrir þeim í húsinu. „Það voru marg-
ar klukkur í hverju herbergi,“ segir
hann og bætir við að úrið frá afanum,
sem er af svonefndri Sport-gerð, sé í
mestu uppáhaldi hjá sér. „Það er því
miður hætt að ganga. Fjöðrin er
ekki slitin og ég veit ekki af hverju
það gengur ekki en mér hefur dottið
í hug að fara með það í viðgerð.“
Þórarinn segir að eiginkonunni og
uppkomnu börnunum hafi ekki litist
á nýja áhugamálið, en áréttar að
konan hafi samt staðið þétt við bakið
á sér við söfnunina og tekið þátt í
henni. „Þetta er eitt af því örfáa sem
við erum sammála um,“ segir hann.
„En þeim fannst þetta algjör vit-
leysa og spurðu hvað ég hefði eig-
inlega að gera við allar þessar klukk-
ur. Þetta er samt ekkert verra en
hvað annað. Sumir safna pennum,
aðrir hestum, enn aðrir bílum og
húsum. En konunni fannst þetta orð-
ið fullmikið og ég ætla ekki að setja
þær aftur upp í húsinu. Helst vil ég
selja safnið eins og það leggur sig.
Það væri best að losna við það þann-
ig, en ég læt aldrei úrið frá afa frá
mér, því það er sérstakt.“
Sýnir um 120 úr og klukkur
Safnaði fyrst
gömlum bílum og
svo klukkum
Klukkukarl Þórarinn Víkingur Grímsson innan um úr og klukkur með úrið frá afa sínum og alnafna.
Tegundir Klukkurnar eru af ýmsum stærðum og gerðum.
Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Sigurmundsson
Fyrsta markmið íslenska landsliðsins
er helst að ná öðru sæti í sínum riðli
og mæta þá liðinu sem hafnar í þriðja
sæti D-riðils. Ómögulegt er að spá í
hvaða andstæðingur það verður en
sennilegast er að það verði Pólverjar,
Rússar eða Þjóðverjar. Danir eru
sigurstranglegastir í D-riðli. Í 16
liða úrslitum tekur við hreinn
úrslitaleikur. Sjá ítarlega
fréttaskýringu um HM í
Katar. »2-3
Fyrsta markmið að ná
öðru sæti í riðlinum