Morgunblaðið - 28.01.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ríkisskattstjóri hefur lagt til við
fjármálaráðuneytið að notkun skatt-
korta verði hætt um næstu áramót.
Tilgangurinn er að sögn Skúla Egg-
erts Þórðarsonar ríkisskattstjóra að
auka hagkvæmni framkvæmdarinn-
ar og spara notendum skattkorta
umstang og fyrirhöfn og launagreið-
endum óþarfa utanumhald.
Skúli Eggert segir að með aukinni
tölvuvæðingu og sjálfvirkara upplýs-
ingaflæði milli tölvukerfa séu skatt-
kortin í raun orðin óþörf. Um nokk-
urt skeið hafi verið leitað leiða til að
einfalda skattkortakerfið sem notað
hefur verið frá því staðgreiðslan var
tekin upp í árs-
byrjun 1988. Til-
lögur embættis-
ins að nýju
fyrirkomulagi
munu gera skatt-
kortin óþörf.
Skúli Eggert tel-
ur að breyta þurfi
lögum um stað-
greiðslu til þess
að hægt sé að
hrinda þeim í framkvæmd og er mál-
ið til athugunar í fjármálaráðuneyt-
inu. Vonast er til að frumvarp sem
heimilar breytinguna verði lagt fram
innan tíðar, væntanlega á komandi
haustþingi.
Meginbreyting felst í því að launa-
maður þarf ekki lengur skattkort til
að sýna launagreiðanda fram á
hversu mikinn persónuafslátt hann á
eftir. Hann þarf því ekki að sækja
skattkortið og fara með til nýs
launagreiðanda þegar hann skiptir
um vinnu. Sömuleiðis sparast vinna
hjá launagreiðendum við að passa
upp á skattkortin.
Upplýsingar veittar rafrænt
Í staðinn er gert ráð fyrir að rík-
isskattstjóri uppfæri stöðugt stöðu
persónuafsláttar allra launamanna.
Slíku eftirliti er nú þegar sinnt en
það þarf að efla, að sögn Skúla Egg-
erts. Launagreiðendur eiga að geta
fengið upplýsingar um stöðu per-
sónuafsláttar rafrænt hjá rík-
isskattsstjóra, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Launamaður á
sömuleiðis að geta séð stöðuna jafn-
óðum á þjónustusíðu sinni hjá skatt-
inum og um leið heildarlaun það sem
af er ári.
Tillögur kynntar
Ríkisskattstjóri hefur kynnt til-
lögur sínar fyrir stofnunum sem
mikið sýsla með skattkort, svo sem
Tryggingastofnun og Vinnu-
málastofnun, og einnig stórum
launagreiðendum. Breytingin mun
engin áhrif hafa á fólk sem lengi
starfar hjá sama vinnuveitenda en
hjálpar þeim sem skiptir oft um
launagreiðanda, til dæmis á milli
vinnu og bóta og fæðingarorlofs.
Skattkortin tekin úr umferð
Skattkortin eru orðin óþörf Ríkisskattstjóri leggur til nýtt fyrirkomulag
sem byggist á rafrænum upplýsingum til launþega og launagreiðanda
Skúli Eggert
Þórðarson
Enga bráða-
birgðalausn
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra segir að unnið hafi verið að
því frá því í haust að finna lausn á
þeim vanda sem fólginn er í því fyrir
krabbameinsrannsóknir að enginn
jáeindaskanni
(PET-skanni) er
til hér á landi.
Stefán E.
Matthíasson
læknir ritaði
grein sem birt var
hér í Morgun-
blaðinu í fyrra-
dag, undir fyrir-
sögninni
Sjúkrahótel –
skynsamleg for-
gangsröðun? Greinin fjallaði m.a. um
það að nær væri að nýta þá fjármuni
sem fara eiga í nýtt sjúkrahótel, sem
framkvæmdir eiga að hefjast við á
vordögum, til þess að kaupa jáeinda-
skanna, sem Stefán segir að mætti
auðveldlega koma fyrir með húsa-
kosti, við K-byggingu Landspítalans
á skömmum tíma.
Heilbrigðisráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, þegar
hann var spurður hvort Stefán hefði
ekki nokkuð til síns máls: „Þegar
menn ræða um sjúkrahótelið verða
þeir einnig að líta til heildarverkefn-
isins, sem er hinn nýi Landspítali.
Lögin sem ég starfa eftir og gilda um
nýja Landspítalann tiltaka m.a.
starfsemi sjúkrahótels og verkefnið
hefur allt verið við það miðað að það
sé hluti af þeirri uppbyggingu sem
þarna er fyrirhuguð.“
Mikil hagræðing
Kristján Þór segir að samkvæmt
þeim upplýsingum sem hann hafi
fengið sé gert ráð fyrir að mikil hag-
ræðing náist með því að sameina
starfsemi Landspítalans á þessum
stað, ekki síst vegna þeirrar starf-
semi sem verði í sjúkrahótelinu.
„Það er endalaust hægt að deila
um forgangsröðun, ekki bara í heil-
brigðiskerfinu, heldur víða annars
staðar. Það er hins vegar ekki eðli-
legt að gefa það til kynna að jáeinda-
skanninn sé eitthvert smámál. Tæk-
ið sjálft ásamt umbúnaði má gera ráð
fyrir að kosti um 200 mkr. En svo-
kallaður Cyclotron og það sem
byggja þarf utan um hann þarf að
vera geislahelt rými og má gera ráð
fyrir að kosti 1-1,5 milljarða króna.
Loks er ótalinn sá kostnaður sem
fellur til við reksturinn en m.a. þarf
sérhæft starfsfólk til vinnu með þau
geislavirku efni sem þarna yrðu not-
uð,“ segir heilbrigðisráðherra.
Kristján Þór segir að ekki komi til
greina að leysa þann þátt sem snýr
að jáeindaskannanum til bráða-
birgða. Það sé miklu nær að gera ráð
fyrir PET-skanna í meðferðarkjarn-
anum, sem verði í nýju byggingunni,
en fullnaðarhönnun sé nú að hefjast.
agnes@mbl.is
Kristján Þór
Júlíusson
Lausnar leitað fyrir PET-skanna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Félagið Lífdísill hefur tryggt sér
fjármögnun til að sjöfalda fram-
leiðslu á lífdísil úr 100 þúsund lítrum
í 700 þúsund lítra á ári. Á að ná því
markmiði fyrir árslok 2016.
Til að setja framleiðslu á 700 þús-
und lítrum af lífdísil á ári í samhengi
samsvarar það innan við 1% dísil-
notkunar á Íslandi í dag.
Verður hráefnið sótt í um 5.000
tonn af sláturúrgangi sem er urðað-
ur í Álfsnesi árlega. Er þar m.a. um
að ræða innyfli, hausa og bein sem
breytt verður í eldsneyti og moltu.
Um tilraunavinnslu er að ræða.
Framleiðslan fer þannig fram að
sláturúrgangur
er hakkaður og
hitaður. Prótein
er síðan skilið frá
fitunnni með skil-
vindum og það
notað til jarð-
gerðar. Er það
bráðabirgðalausn
þar til gas- og
jarðgerðarstöð
verður komin í
notkun í Álfsnesi á vegum SORPU.
Fitunni verður hins vegar haldið
heitri við 40-60 gráða hita og flutt í
verksmiðju fyrirtækisins að Lyng-
hálsi 12. Þar verður fitunni breytt í
lífdísil í efnahvarfi þar sem metanól
er helsta íblöndunarefnið. Verður
það sótt til metanólverksmiðjunnar
Carbon Recycling International
(CRI) í Svartsengi.
Nota metanól úr Svartsengi
Metanól CRI er unnið úr koldíox-
íði frá jarðvarmavirkjun í Svartsengi
og segir Sigurður Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Lífdísils, að lífdísil-
framleiðslan verði með því afar
umhverfisvæn. „Þetta er því 100%
innlend framleiðsla. Erlendis er
metanól framleitt úr jarðgasi og því
með talsvert sótspor. Með því að
nota metanól sem er unnið úr út-
blæstri með rafmagni og vatni og er
yfir 90% kolefnishlutlaust hverfur
sótspor lífdísilsins nánast að fullu.
Um 15% af lífdísilnum eiga uppruna
sinn í metanóli og 85% í úrgangi og
verður eldsneytið því meðal þess
umhverfisvænasta sem völ er á.“
Að sögn Sigurðar gerir félagið
tímabundinn samning við SORPU,
en urðun lífræns úrgangs verður
bönnuð frá og með 2020 vegna til-
skipunar frá Evrópusambandinu.
Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri SORPU, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið fyrr í þessum
mánuði að til hefði staðið að gas- og
jarðgerðarstöðin í Álfsnesi yrði
tilbúin sumarið 2016. Verkið hefði
hins vegar tafist og óvíst um verklok.
Sigurður segir að búnaðurinn til
að sækja fituna og próteinið í slátur-
úrganginn sé forvinnslueining sem
verði í gámum og megi því flytja frá
Álfsnesi, ef ekki verður framhald á
samstarfinu við SORPU eftir að gas-
og jarðgerðarstöðin verður opnuð.
Sækja hráefni í heimilissorp
Sigurður telur þessa vinnslu geta
hentað vel við hlið stöðvarinnar. Ef
vel gangi verði leitast við að sækja
meira hráefni til efnaiðnaðar og
heimilissorps og það nýtt til að auka
framleiðsluna. Til þess þarf að
stækka forvinnslueiningar og aðlaga
þær nýju hráefni. Með því mætti á
nokkrum árum auka framleiðsluna í
3-5 milljónir lítra á ári. Bræðurnir
Sigurður og Oddur Ingólfssynir
stofnuðu Lífdísil árið 2009. Ásgeir
Matthíasson verkfræðingur gekk
síðan til liðs við bræðurna.
Sláturúrgangi breytt í eldsneyti
Félagið Lífdísill hyggst vinna lífdísil úr 5.000 tonnum af sláturúrgangi sem er urðaður í Álfsnesi á ári
Forvinnslueiningum verður komið fyrir þar sem gas- og jarðgerðarstöð SORPU mun rísa í Álfsnesi
Sigurður
Ingólfsson
Á Siglufirði hefur ekki sést til sólar í rúmar 10 vikur
eða nánar tiltekið í 74 daga. Samkvæmt almanakinu
á hún að birtast yfir fjöllunum í dag, 28. janúar, en
verði ekki svo er þó ljóst að ekki verður aftur snúið í
bráð og að nú er stefnan í átt til vors og sumars.
Þessu fagna að sjálfsögðu vinkonurnar á meðfylgj-
andi ljósmynd, Isabella Ósk og Margrét, enda allt
annað en gaman að sjá ekki þá gulu brosa á himni í
þetta langan tíma. Leikskóla- og grunnaskólabörn
munu fagna með viðeigandi hætti, syngja í kirkju-
tröppunum og víðar, og Sjálfsbjargarkonur voru að í
allan gærdag við pönnukökubakstur og aukinheldur
komnar á fætur eldsnemma í morgun til að hafa und-
an pöntunum, enda þessi kringlótta og táknræna,
sykri og rjóma prýdda afurð þeirra með eindæmum
gómsæt.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Siglfirðingar fagna sólinni í dag
Búist er við hvassri norðaustanátt
með snjókomu á landinu fyrir norð-
an og austan síðdegis í dag og í
kvöld, fyrst Norðvestanlands.
Framan af degi verður veður
hins vegar hægara. Snjókoma eða
él verður á Norðurlandi og Vest-
fjörðum í dag, annars hægur vind-
ur og úrkomulítið. Suðvestantil
mun hvessa síðdegis en svo mun
lægja aftur með kvöldinu. Frost
verður 0-10 stig á landinu.
Búist við hvassri
norðaustanátt
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hvassviðri Búist er við hvassviðri á Norð-
urlandi, fyrst norðvestantil en svo austar.