Morgunblaðið - 28.01.2015, Síða 20
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Sú staða getur verið uppi að sami
lífeyrissjóður eða lífeyrissjóðahópur
sé eigandi að fleiri en einum keppi-
nauti og sé þar með að keppa við
sjálfan sig. Það er mjög óheppilegt,“
segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, þegar hann
er spurður út í umsvif íslenskra líf-
eyrissjóða á fasteignamarkaði. Sjóð-
irnir eru meðal stærstu eigenda
þriggja umsvifamestu fasteigna-
félaga landsins og þá hafa þeir einn-
ig tekið þátt í fjármögnun fjárfest-
ingasjóða sem einbeita sér að
kaupum á fasteignum og félögum
sem reka bæði atvinnu- og íbúðar-
húsnæði.
Eftir fall bankanna 2008 komust
flest fasteignafélög landsins í hend-
ur banka og slitastjórna. Sam-
keppniseftirlitið lýsti í kjölfarið
áhyggjum af hinu breytta eignar-
haldi og lagði hart að hinum nýju
eigendum að losa eignarhluti sína
sem fyrst. Eftirlitið byggði álit sitt á
því að hinar nýju aðstæður gætu
skapað hættu á samkeppnishindr-
unum sem ekki yrði unað við til
lengdar.
Páll Gunnar segir að fasteigna-
félögin hafi verið þau fyrirtæki sem
hvað erfiðast hafi verið að koma að
nýju út úr bankakerfinu. „Það var
óásættanlegt hversu umsvifamiklir
bankarnir urðu á fasteignamark-
aði,“ segir hann en bendir um leið á
að þær breytingar sem síðan hafi
orðið á eignarhaldinu valdi sömu-
leiðis áhyggjum þegar litið er til
samkeppnissjónarmiða þar sem líf-
eyrissjóðirnir hafi í raun tekið sér
fyrri stöðu bankanna.
Eignarhaldið liggur víða
Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu
eigenda Eikar og Reita og ólíklegt
er talið að sjóðirnir muni minnka við
hluti sína þegar félögin verða skráð
á hlutabréfamarkað. Sjóðirnir eiga
einnig um þriðjung í Regin en fast-
eignasafn fyrirtækisins er metið á
rúma 100 milljarða króna, sem gerir
það að stærsta fasteignafélagi
landsins. Það var skráð á markað í
Kauphöll Íslands árið 2012.
Aðkoma lífeyrissjóðanna að fast-
eignafélögum einskorðast þó ekki
við þau félög sem stefna á skráningu
í Kauphöll eða eru þar nú þegar.
Þannig eiga þrír stærstu lífeyris-
sjóðir landsins, Lífeyrissjóður versl-
unarmanna, Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins og Gildi, um 60% í
félagi sem ber heitið FAST-1. Fé-
lagið rekur fasteignir sem metnar
eru á rúma 20 milljarða og eru um
55 þúsund fermetrar að umfangi.
Þegar FAST-1 festi kaup á hinum
svokallaða Höfðatorgsturni og við-
byggingu honum tengdri í Borgar-
túni heimilaði Samkeppniseftirlitið
samrunann síðastliðið sumar að
uppfylltum ströngum skilyrðum.
Páll Gunnar segir að sérstök
könnun sé ekki hafin á umsvifum líf-
eyrissjóðanna á fasteignamarkaði.
Þrátt fyrir það virðast áhyggjur
vera uppi varðandi eignarhald
þeirra á þessum markaði. „Að okkar
mati liggur vandinn meðal annars í
gríðarlegu vægi lífeyrissjóðanna í
eignarhaldi atvinnufyrirtækja. Það,
ásamt þátttöku banka og ýmissa
framtakssjóða í eignarhaldi, býður
heim hættunni á því að eignarhald
fyrirtækja verið ógagnsætt og ekki
verði ljóst hverjir stýra ferðinni.
Fyrir samkeppni skiptir máli að fyr-
irtæki njóti eigenda sem drífa áfram
heilbrigðan rekstur og gera viðkom-
andi fyrirtæki að virkum keppinaut
á markaði.“
Samkeppniseftirlitið hefur
áhyggjur af fasteignafélögum
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir Íslenskir lífeyrissjóðir eiga stóra hluti í fasteignafélögum.
Forstjóri stofnunarinnar lýsir áhyggjum af umsvifum lífeyrissjóða á fasteignamarkaði
Umsvif í
fasteignafélögum
» Lífeyrissjóðirnir eiga að
minnsta kosti 47% í Eik
fasteignafélagi.
» Hlutur lífeyrissjóðanna er að
lágmarki 43% í fasteignafélag-
inu Regin.
» Fasteignafélagið Reitir er
stærsta fyrirtæki sinnar teg-
undar á Íslandi og lífeyrissjóð-
irnir eiga rúmlega 30% hlut í
því.
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
vinnutími frá klukkan 9 til 17. Í sam-
tali við Morgunblaðið bendir Frið-
bert meðal annars á að margt ungt
fólk, með heimili og börn, starfi nú
hjá bönkum landsins og því sé rétt
að aðlaga vinnutímann að heimilislíf-
inu. Einnig hafi sprottið upp mikil
umræða á fjölmennum fundi trún-
aðarmanna og forsvarsmanna aðild-
arfélaga SSF fyrir áramót um þessi
mál. Voru fundarmenn almennt
sammála um mikilvægi þess að
stytta vinnuvikuna.
Hann nefnir jafnframt að brýnt sé
að setja ákveðinn ramma utan um
fastlaunasamninga, svo sem með því
að setja ákveðið hámark á tíma unna
í yfirvinnu og láta þá eiga við um
virka daga „þannig að ekki sé verið
að þvinga fólk til að vinna um helgar
eða á kvöldin og um nætur“.
Kröfugerð hefur ekki verið mótuð
fyrir viðræðurnar en Friðbert segir
að helst hafi verið rætt um að fara
svokallaða blandaða leið í launa-
hækkunum, þ.e. bæði krónutölu- og
prósentuhækkanir. Ekki sé tíma-
bært að nefna neinar tölur í því sam-
bandi.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Friðbert Traustason, framkvæmda-
stjóri Samtaka starfsmanna fjár-
málafyrirtækja (SSF), segir að
áhugi sé á því að semja um styttri
vinnuviku í komandi kjarasamninga-
viðræðum við Samtök atvinnulífsins.
Vel komi til greina að krefjast þess
að hver vinnudagur verði styttur um
hálftíma. Samkvæmt núverandi
kjarasamningi er hinn almenni dag-
Bankamenn vilja stytta vinnudaginn
Verið er að móta kröfugerð SSF
Morgunblaðið/Golli
Bankamenn Vilja styttri vinnutíma.
● Í lok seinasta árs voru 5,49%
þeirra heimila sem eru með fast-
eignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með
lán sín í vanskilum. Sambærilegt hlut-
fall í lok desembermánaðar árið 2013
var 7,23%. Fækkaði því heimilum í
vanskilum um 24% á árinu, eftir því
sem fram kemur í nýrri mán-
aðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.
Heimilum í vanskilum
fækkaði um 24% í fyrra
● Flugverð hækkaði um rúmlega
fimmtán prósent í janúarmánuði frá
seinasta mánuði, samkvæmt nýrri verð-
könnun Dohop. Svo virðist sem sú
mikla lækkun sem hefur verið á olíu-
verði sé ekki farin að skila sér í lægra
verði á flugi.
Mestar hækkanir voru á flugi til Hels-
inki, München, Edinborgar og Amster-
dam, en eina lækkunin á milli mánaða
var á flugi til Kaupmannahafnar.
Verð á flugi hækkar
þrátt fyrir lægra olíuverð
! "
!##
!$
# #
#
"!!
$
$%
"#%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#
!"
!#
!
##
#%
%
#
$$!%
"!%"
!
! !
!#
! "
#
%
"
$$"
"#
!$ $!
● Icelandair hefur
bætt við flug-
framboð félagsins
á þessu ári frá því
sem áður hefur
verið kynnt. Næsta
sumar hefur verið
bætt við sex viku-
legum ferðum og
þannig aukið fram-
boð á áfangastað-
ina Seattle, Van-
couver, New York Newark, London
Gatwick, Amsterdam og Zürich.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
gera megi ráð fyrir að farþegar Ice-
landair verði um þrjár milljónir á árinu.
Icelandair eykur flug-
framboð í sumar
Farþegar verða um
þrjár milljónir.
STUTTAR FRÉTTIR ...
TILBOÐ
TILBOÐTILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
T ILBOÐ
Hátúni 6a | 105 Reykjavík | Sími 552 4420 | www.fonix.is