Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 23

Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Vetrargleði Íslenski hesturinn býr yfir þykkum vetrarfeldi sem kemur sér vel á dögum þar sem vetur konungur klórar í allt kvikt með köldum klónum. Hestar sem fá gott atlæti kjósa að vera úti. RAX Ríkið heldur, beint eða óbeint, um marg- víslegar eignir sem litlu skila eða eiga alls ekki að vera í eigu op- inberra aðila. Engin heildstæð yfirsýn er til yfir þessar eignir og raunvirði þeirra – allt frá eignarhlutum í fyr- irtækjum og sjóðum til fasteigna, jarða, land- spildna og lóða. Gróft mat bendir til að verðmæti ríkis- eigna sé ekki undir eitt þúsund millj- örðum króna en áætlað er að nettó- skuldir ríkissjóðs hafi numið um 796 milljörðum í lok síðasta árs. Ríkið á sem sagt eignir umfram skuldir. Eiginfjárstaðan er jákvæð ef raun- virði eigna er það sem flest bendir til. Á sama tíma og eignastaðan er já- kvæð er ríkissjóður yfirskuldsettur og vaxtagreiðslur þungar. Á fimm árum – frá 2009 til 2013 – greiddi ríkissjóður um 411 milljarða króna í vexti miðað við meðalverðlag á liðnu ári. Vaxtagreiðslurnar jafngilda líf- eyrisskuldbindingum ríkissjóðs, sem eru líkt og tifandi tímasprengja í garði skattgreiðenda. Að óbreyttu hefur ríkið takmark- aða möguleika til að ráðast í nauð- synlega fjárfestingu í innviðum sam- félagsins og lækka skatta til að auka ráðstöfunartekjur launafólks og örva atvinnulífið. Á umræddum fimm árum fjárfesti ríkið (viðhald og stofnkostnaður) fyrir alls 149 millj- arða króna á meðalverðlagi síðasta árs. Vaxtagreiðslur voru því tæplega þrisvar sinnum hærri en fjárfest- ingin. Á fimm árum þar á undan nam fjárfestingin 175 milljörðum. Forgangsröðun Á hverju ári takast þingmenn á um hvernig ráðstafa skuli þeim sköttum sem ríkið leggur á fyrirtæki og einstaklinga – hversu miklu skuli verja til heilbrigðismála, mennta- mála, almannatrygginga, samgöngu- mála, löggæslu o.s.frv. Skattaglaðir þingmenn leggja fram tillögur um auknar álögur í þeirri von að meira verði til skiptanna. En jafnvel þeir skattaglöðustu meðal þingmanna gera sér grein fyrir nauðsyn þess að forgangsraða í ríkisút- gjöldum. Það er og verður aldrei hægt að gera allt fyrir alla. Frá falli bankanna hefur áherslan (a.m.k. í orði) verið lögð á for- gangsröðun. Vinstri norrænu velferðar- stjórninni voru mis- lagðar hendur í þeim efnum, svo ekki sé tek- ið dýpra í árinni. Ár- angur sitjandi ríkis- stjórnar er annar og betri. Tekist hefur að stöðva blæðinguna og ríkissjóður er rekinn með afgangi, skattar þokast niður (en of hægt) og fjármunum er beint í auknum mæli í grunnskyldur ríkisins. Umræða og átök um forgangs- röðun ríkisútgjalda er af hinu góða. Aðhald að fjárveitingavaldinu verð- ur meira og almenningur áttar sig betur á því hvernig sameiginlegum fjármunum er varið en því miður á stundum sóað. Umræða um hvernig farið er með eignir ríkisins og hvernig þær nýt- ast landsmönnum er hins vegar hverfandi. Of fáir velta því fyrir sér hvort og þá hvernig við getum nýtt ríkiseignir með öðrum og betri hætti en nú er. Með sama hætti og nauðsynlegt er að forgangsraða rétt í útgjöldum ríkisins og hafa þor til að velja og hafna, er mikilvægt að við tökum um það ákvörðun hvort skynsamlegt sé að nýta hluta ríkis- eigna með öðrum hætti en gert er og þá fyrst og fremst til að greiða skuldir og fjárfesta í innviðum um allt land. Kortlagning eigna Undir lok októbers síðastliðins lagði undirritaður, ásamt sjö öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, fram þingsályktunartillögu um sölu ríkiseigna, lækkun skulda ríkissjóðs og fjárfestingu í innviðum. Með samþykkt ályktunarinnar verður fjármálaráðherra falið að skipa nefnd sérfræðinga til að vinna að langtímaáætlun um sölu ríkiseigna, lækkun skulda ríkissjóðs og fjár- festingu í innviðum. Nefndinni er ætlað að vera úttekt á fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkissjóðs (beint og óbeint), eignarhlutum ríkissjóðs og annarra ríkisaðila í fyrirtækjum og á öðrum eignum ríkisins og ríkis- aðila, svo sem fasteignum og jörð- um. Þá er nefndinni falið að verðmeta eignir ríkisins og ríkisaðila og meta kosti þess og galla að selja einstök fyrirtæki að hluta eða öllu leyti. Jafnframt á nefndin að leggja fram tímasettar tillögur um sölu ríkis- eigna og meta áhrifin á þróun skulda og vaxtagreiðslna ríkissjóðs. Auk þessa skal leggja mat á fjárfesting- arþörf í innviðum samfélagsins, sér- staklega í heilbrigðis-, mennta- og samgöngukerfi, og kortleggja mögu- leika ríkisins til að ráðast í fjárfest- ingar án skuldsetningar, svo sem með skatttekjum, vaxtasparnaði rík- issjóðs með lækkun skulda og/eða tekjum af sölu eigna hverju sinni. Þegar þetta er skrifað hefur þingsályktunartillagan ekki komist á dagskrá þingsins sem er miður því ein forsenda þess að umræða um skuldastöðu og eignir ríkisins verði málefnaleg og án upphrópana er að allar upplýsingar liggi fyrir. Slíkar upplýsingar eru jafnframt forsenda þess að hægt sé að bera saman þá kosti sem Íslendingar standa frammi fyrir á komandi árum og hvort skynsamlegt sé að nýta eignir ríkisins með öðrum hætti en gert er. Í greinargerð með tillögunni segir að með nokkurri einföldun sé hægt að halda því fram að Íslendingar standi frammi fyrir tveimur kostum: „Það er hægt að selja ákveðinn hluta eigna ríkisins og greiða niður skuldir, lækka þar með vaxta- greiðslur og nýta fjármunina sem sparast til að byggja upp heil- brigðis-, mennta- og samgöngukerfi og lækka skatta. Eða: Taka ákvörðun um að eiga áfram fyrirtæki, fasteignir, jarðir og fleira, reyna að tryggja hallalausan rekstur ríkissjóðs en sætta sig um leið við þungar vaxtagreiðslur á komandi árum, lakari þjónustu og hærri skatta.“ Hvort er nú betra? Stjórnmálamenn jafnt sem al- menningur verða að svara spurn- ingum um hvernig best sé að nýta eigur ríkisins. Oft er svarið auðvelt en á stundum erfitt og umdeilt. Er það skynsamlegt og í þágu al- mennings að ríkið eigi hluti í fjár- málastofnunum á sama tíma og ríkissjóður skuldar um 213 milljarða króna vegna þeirra? Frá falli fjár- málakerfisins hafa skattgreiðendur þurft að standa undir 73 milljörðum króna í vexti vegna þessara skulda. Þetta er hærri fjárhæð en kostnaður við alla uppbyggingu þjóðarsjúkra- hússins – Landspítalans. Sala ríkisins á öllum eignarhlutum í viðskiptabönkunum og sparisjóðum og uppgreiðsla skulda vegna þeirra getur með öðrum orðum staðið undir uppbyggingu Landspítalans í formi lægri vaxtagreiðsla á næstu árum. Hér skal fullyrt að með því að um- breyta eignarhlutum ríkisins í fjár- málafyrirtækjum í innviði heilbrigð- iskerfisins aukist lífsgæði allra landsmanna. Þegar haft er í huga að fjárfesting í heilbrigðisþjónustu er ein besta og arðbærasta fjárfesting sem hægt er að ráðast í, er merki- legt að þingmenn sameinist ekki um að selja eignir ríkisins í bönkum og sparisjóðum. Fjárfesting í innviðum heilbrigðis- kerfisins er aðeins hluti af þeim miklu verkefnum sem bíða. Ekki þarf að ferðast lengi um þjóðvegi landsins til að sannfærast um nauð- syn gríðarlegar uppbyggingar í sam- göngum. Með sama hætti eru alvar- legar brotalamir í fjarskiptakerfi og þá sérstaklega háhraðatengingum. Uppbygging atvinnulífsins um allt land er háð góðum samgöngum en ekki síður öflugum og öruggum fjar- skiptum. Þess vegna hlýtur sú spurning að vera áleitin hvort nýta eigi eignarhlut ríkisins í RARIK til að ráðast í fjárfestingu í innviðum á sviði samgangna og fjarskipta. Sterk rök hníga að því að arðsemi eigna ríkisins aukist verulega við slíka til- færslu. Bókfært eigið fé RARIK í lok árs 2013 var liðlega 27 milljarðar króna og líklegt verðmæti því tölu- vert hærra. Með svipuðum hætti er eðlilegt að hugleiða hvort ríkið eigi að standa í rekstri flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar. Getur ekki verið að hags- munum skattgreiðenda væri betur borgið með því að selja flugstöðina (t.d. til lífeyrissjóða) og nýta fjár- munina til greiðslu skulda og/eða fjárfestingar í menntun, sem er ein- faldlega fjárfesting í framtíðinni. Þannig þarf að fara yfir hverja einustu eign ríkisins, allt frá fyrir- tækjum til fasteigna, jarða og lóða og spyrja: Af hverju er þetta í eigu ríkisins? Getum við ekki nýtt þá fjár- muni sem eru bundnir í þessari eign betur og með öðrum hætti? Betri og hagkvæmari nýting eigna ríkisins er eitt stærsta hagsmuna- mál Íslendinga. Það þarf að velja og hafna. En til að slíkt sé hægt af ein- hverri skynsemi er nauðsynlegt að allar upplýsingar liggi fyrir. Eftir Óla Björn Kárason » Við þurfum að spyrja: Af hverju er þetta í eigu ríkisins? Getum við ekki nýtt þá fjármuni sem eru bundnir í þessari eign betur og með öðrum hætti? Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Nýtum ríkiseignir betur og með hagkvæmari hætti Vaxtakostnaður og fjárfesting ríkissjóðs í milljörðum króna á meðalverðlagi 2014 Vaxtakostnaður 2009-2013 Fjárfesting* 2004-2008 Fjárfesting* 2009-2013 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 * Viðhald og stofnkostnaður 411 175 149

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.