Morgunblaðið - 28.01.2015, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Tjáningarfrelsi og
aftur tjáningarfrelsi,
um allan heim heyrist
hrópað tjáningafrelsi.
Vissulega gott að hafa
tjáningarfrelsi í
heiðri.
Getur það nokkurn
tíma staðið undir
nafni með því að fót-
um troða það sem
manninum í næsta
húsi er heilagt? Þetta er alveg sama
og með lýðræðið, það má ekki mis-
nota það af ruddum sem einskis sví-
fast í mannlegum samskiptum.
Við vitum að trúin er eitthvað
það helgasta sem býr í brjóstum
okkar hjá stórum hluta mannkyns,
sama hvaða trúarbrögð við aðhyll-
umst.
Það er vel þekktur mannlegur
eiginleiki að sárna þegar ráðist er á
okkar helgustu vé. Það að fjöl-
miðlar leyfi sér að skopast að helg-
um véum hjá fjölmennum þjóð-
félagshópum , er í raun að sá
fræjum ósamlyndis og
haturs sem leitt getur
til hræðilegra voða-
verka sem kannski
snerta mest samfélag
þeirra sem þau fremja,
mikil er ábyrgð þeirra
manna sem leyfa sér
slíkt.
Góðir Íslendingar,
við skulum aldrei falla
í þá forarvilpu að sá
fræjum haturs og
ósamlyndis í okkar
litla og góða samfélagi.
Leitum heldur uppi þá gróðursælu
staði sem við getum sáð fræjum
kærleika og góðra samskipta
manna á milli í okkar friðsæla sam-
félagi.
Tjáningarfrelsi
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Við vitum að trúin er
eitthvað það helg-
asta sem býr í brjósti
okkar.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
RV skrifstofuvörutilboð
Janúar - febrúar 2015
Ljósritunarpappír 5 x 500 bl.
Frá 2.999 kr
Bréfabindi 5cm eða 8 cm
398 kr
Trélitir vatnslita, 24 stk.
698 kr
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Þúsundir fermetra af flísum með
20%-70% afslætti
og nú eru öll gólfefni án vörugjalda
Verðdæmi: Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2
Filtteppi kr. 598.- m2
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
Gegnheilir Tarkett vinyldúkar frá kr. 2675.- m2
Ég rita þetta vegna
greinar Jóhannesar
Karls Sveinssonar og
Þorsteins Þorsteins-
sonar í gær. Þar eru
þeir sammála mínum
lögskýringum um
heimildir neyðarlaga
og stjórnvaldsákvarð-
anir FME á grundvelli
þeirra.
Þar sem skilur á
milli í okkar skýringum er fram-
haldið eftir að Deloitte LLP skilaði
mati í apríl 2009. Rifjum upp fer-
ilinn.
Ríkið stofnaði nýja banka. FME
nýtti heimildir neyðarlaga og flutti
skuldir og tilteknar eignir í hina
nýju banka. FME lét meta eignir
sem voru fluttar með aðstoð starfs-
fólks bankanna.
Allt kemur þetta fram í þeim nýju
gögnum sem ég birti á fimmtudag-
inn og eru þar tíundaðar forsendur í
hverjum banka.
Eignirnar þannig metnar voru
fluttar í nýja banka á grundvelli for-
senda FME fyrir skiptingu efnahags
bankanna, sem gefnar voru út 14.10
sbr. 19.10. 2008.
Þessar forsendur birti ég með
gögnunum í síðustu viku og þær má
finna þar og á vef FME. Á fyrstu bls.
neðst í forsendunum og efst á bls. 2
má lesa nákvæmlega um það að ein-
stök útlán voru afskrifuð og færð á
nettóvirði í nýja banka. Í þeirri
málsgrein kemur fram að eignir, það
er „útlán séu flutt í hina nýju banka
að frádregnum áætluðum afskriftum
einstakra útlána“, í framhaldinu út-
listað hvernig skuli metið. Sjá nánar
heimildir.
Í lögskýringu skipta öllu orðin
„einstakra útlána“, ekki fer á milli
mála að lánin voru lækkuð og færð
þannig í nýja banka.
Það er því röng lögskýring grein-
arhöfunda að halda því fram að af-
skriftirnar hafi verið einhvers konar
viðskiptaafsláttur og myndað al-
mennan afskriftasjóð, fenginn með
samningum.
Verkefni Deloitte LLP var að yfir-
fara og greina mat og matsforsendur
FME. Þeir skiluðu niðurstöðum sem
voru lægri en mat FME á bili sem
nam 1800-2200 milljörðum.
Þá var komin staðfesting á að mat
FME var ekki að hlunnfara kröfu-
hafa þrotabúanna og stofnúrskurð-
irnir frá október 2008 héldu velli.
Ísland búið að uppfylla loforð frá
nóvember 2008 til AGS um réttláta
meðferð kröfuhafa. Þarna gat lokið
formlega því ferli sem FME setti í
gang með heimild í neyðarlögunum
ef allir hefðu haldið haus.
Eftir að mat Deloitte var fengið í
apríl 2009 gat FME að lögum kveðið
upp viðbótarúrskurð. Þar hefði mátt
annað tveggja lækka enn frekar ein-
stök lán frá því sem áð-
ur hafði verið gert eða
að nýta mismuninn til
að mynda almennan af-
skriftasjóð.
Það var hins vegar
ekki gert heldur fór í
gang allt annað ferli
eins og kemur fram í
fundargerðum stýri-
nefndarinnar. Til-
gangur stýrinefnd-
arinnar var strax að
losna við nýju rík-
isbankana í hendur
kröfuhafa. Fyrst bauð hún Bretum
og Hollendingum Landsbankann
nýja upp í ICESAVE sem þeir höfn-
uðu.
Framhaldið varð samningar við
kröfuhafa um bankana nýju þar sem
tveir voru afhentir og Landbankinn
settur undir gjörgæslu skilanefndar
þess gamla. voru líklega framin lög-
brot, það þyngsta að opna kröfuhöf-
unum aðgang að nýju bönkunum til
að rífa upp og ónýta stofnúrskurði
FME.
Störf stýrinefndarinnar voru mis-
tök og sýnist mér sem taugaveiklun
hafi ráðið þar ríkjum og þau fyrir-
heit á fyrsta fundi að ríkisstjórnin
vildi allt til vinna til að friðþægja
kröfuhafana.
Í störfum nefndarinnar var mönn-
um ljóst að þeir væru á mörkum
ólögmætis. Var fyrirtækið Landslög
hf. fengið til að skrifa greinargerð
eina og ef til vill fleiri um þær hætt-
ur.
Það kom fram hjá Jóhannesi Karli
í Kastljósi á þriðjudagskvöld að ef
svo væri að þetta hefði verið á gráu
svæði hefðu verið sóttar heimildir
eftir á til Alþingis og þar með væri
allt í lagi. Lítum nánar á þá rök-
semd.
Alþingi veitti heimild til sölu
tveggja banka í bandormi á Þorláks-
messu 2009. Alþingi fékk engar upp-
lýsingar um innihald samninganna.
Samþykktin var engin syndaaf-
lausn til verkmanna samningsgerð-
arinnar.
Þá voru flest hin meintu brot sem
ég tala um fullframin. Það sem á eft-
ir fór er líkleg fullframning brota á
248. gr. og 264. gr. almennra hegn-
ingarlaga frá og með árinu 2010.
Heimildir til sölu breyttu ekki
stjórnvaldsúrskurðum FME. Það
voru kvaðir á nýju bönkunum sem
öllum aðilum voru kunnar og hvíldu
á við þessa svokölluðu sölur.
Þeir stjórnvaldsúrskurðir höfðu
verið áréttaðir með lagasetningu á
Alþingi í október 2009. Lögum nr.
107/2009 um endurreisn fjárhags
heimila og fyrirtækja.
Kröfuhafarnir voru því í vondri
trú um málið. Sama gilti um starfs-
menn nýju bankanna sem síðar unnu
innheimtuverkin.
Fjármálaráðherrann þáverandi
hafði engar heimildir til að breyta
þessum úrskurðum FME og sam-
þykkt Alþingis á sölunni aflétti ekki
kvöðunum.
Nú er reynt að láta líta út sem
þessi mál hvíli á samningum við-
skiptalegs eðlis. Að kröfurnar hafi
verið keyptar af búum gömlu bank-
anna. Sú skýring er rakalaus. Neyð-
arlögin og stjórnvaldsúrskurðir
FME réðu í þessum efnum.
Þótt neyðarlögin hafi undanþegið
FME reglum stjórnsýslulaga um
form er ótvírætt að reglur um jafn-
ræði og meðalhóf giltu hvort heldur í
hlut áttu lög- eða einkaaðilar.
Sú niðurstaða er ótvíræð. Nú þarf
Alþingi að klára sitt og sækja gögnin
í skúffur stjórnarráðsins.
Um undirmál og lögbrot
Eftir Víglund
Þorsteinsson
Víglundur Þorsteinsson
» Í lögskýringu skipta
öllu orðin „einstakra
útlána“, ekki fer á milli
mála að lánin voru
lækkuð og færð þannig í
nýja banka.
Höfundur er lögfræðingur og fyrr-
verandi stjórnformaður BM Vallár.