Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 32

Morgunblaðið - 28.01.2015, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Atvinnuauglýsingar Sölumaður í fisk- verslun, hlutastarf Vinnutími 15-18.30 alla virka daga. Laugardagar samkomulag. Umsókn ásamt mynd og ferilskrá sendist á kristjan@fiskikongurinn.is merkt ,,hlutastarf 2015” Flakari óskast til starfa í Rvík Mikil vinna, allt árið. Þorskur, ýsa, langa, keila. Greitt pr. kg. Upplýsingar Kristján Berg 896 0602. Sölumaður í fiskverslun óskast 100% starf. Vinnutími 10-18.30. Laugardaga samkvæmt samkomulagi. Umsókn ásamt mynd og ferilskrá sendist á kristjan@fiskikongurinn.is merkt ,,atvinna 2015” Félagslíf  HELGAFELL 6015012819 IV/V  GLITNIR 6015012289 I Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58–60 Samkoma í kvöld kl. 20 í Kristniboðssalnum. Skúli Svavarsson segir frá starfinu í Keníu. Ræðumaður er Ragnar Gunnarsson. Allir velkomnir. Raðauglýsingar Gisting Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Aðalfundur Hollvinasamtaka Reykjalundar verður haldinn laugardaginn 31. janúar kl. 14:00 á Reykjalundi. Dagskrá samkvæmt lögum samtak- anna. Allir velkomnir. Stjórnin. ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Stakar stærðir Teg. MARTINA - á kr. 4.900 Teg. BRILLIANT - á kr. 5.500 Teg. DUELLE - á kr. 5.500. Póstsendum. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Klapparstíg 44 • Sími 562 3614 Bresk gæðavara, handskreyttur borðbúnaður Mikið úrval – margar gerðir 25% afsláttur Pipar og salt krús Kr. 1.000 - Takmarkað magn Emma Bridgewater Feels like home Klassísk hönnun síðan 1985 ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA! 20-70% AFSLÁTTUR TIL DÆMIS ÞESSIR: .....OG MARGIR FLEIRI! Nú er útsala í Misty-búðunum. Fullt að vönduðum skóm á frábæru verði: 3.500 og 5.500. Komið og gerið góð kaup! Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Smáauglýsingar 569 ÚTSALA kristalsljósakrónur, glös, skartgripir Glæsilegar kristalsljósakrónur, vegg- ljós, matarstell og kaffistell, kristals- glös, styttur og skartgripir til sölu. Bohemia kristall, Grensásvegi 8, sími 571 2300. Til sölu Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga ✝ Jónas Jóhanns-son fæddist á Borðeyri 3. ágúst 1938. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 19. jan- úar 2015. Foreldrar hans voru Jóhann Jóns- son, bóndi og tré- smiður, f. 18.6. 1890, d. 20.11. 1966, og Sigríður Guðjónsdóttir, f. 2.7. 1898, d. 24.4. 1965. Þau eignuðust tíu börn. Fjögur þeirra dóu í frumbersku. Þau sem upp komust eru: Ingibjörg, f. 31.7. 1930, d. 11.8. 2001, Kristín, f. 21.2. 1932, Jóna Aðalheiður, f. 19.5. 1933, d. 14.3. 1952, Guð- jón, f. 10.5. 1936, Jónas, og Sigrún Dagmar, f. 15.5. 1942. Jónas ólst upp í Bæ og á Litlu-Hvalsá í Hrútafirði til fjórtán ára aldurs. Fjölskyldan dvaldi eftir það í eitt ár á Borðeyri en flutti síðan til Reykjavíkur. Jónas stundaði nám í Reykjaskóla í einn vetur, tók landspróf frá Reykholti 1956 og lauk prófi frá Samvinnuskól- anum 1958 eftir tveggja ára nám. Að námi loknu vann Jónas við verslunar- og skrifstofustörf á nokkrum stöðum, svo sem KRON, Fálkanum, Kaup- félagi Héraðsbúa og útibúum þess á Seyðisfirði og Reyðar- firði. Þess á milli vann hann við virkjun Búrfells og víðar á Þjórsársvæðinu. Á níunda ára- tugnum aflaði Jónas sér tölvu- þekkingar sem nýttist honum vel til að vinna í bókhaldi og dundurs fyrir sjálfan sig. Síð- ustu 10-15 árin vann Jónas við byggingastarfsemi hjá Ár- mannsfelli og síðar hjá Íslensk- um aðalverktökum. Jónas var ókvæntur og barnlaus. Útför Jónasar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 28. janúar 2015, kl. 13. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum gamals vinar míns og skólafélaga, Jónasar Jóhannssonar. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Héraðsskól- anum í Reykholti í Borgarfirði haustið 1955. Jónas kom í skól- ann nokkru seinna en aðrir nemendur og bjó fyrstu mán- uðina hjá fjölskyldu í nágrenni skólans. Ástæðan var sú að ekki var laust pláss á nem- endavistunum. Hann hafði þá fyrir skömmu flutt með foreldr- um sínum frá æskustöðvunum í Hrútafirði til Reykjavíkur. Sr. Einar Guðnason og kona hans, Anna Bjarnadóttir, voru þá bæði kennarar í Reykholti og munu hafa greitt fyrir því að Jónas kæmist inn í skólann, en bróðir Einars, sr. Jón Guðna- son, hafði verið prestur í Hrútafirðinum. Það var þröngt setinn bekk- urinn í Reykholti á þeim tíma. Við vorum t.d. fimm saman í herbergi. Um áramótin hætti einn herbergisfélaginn námi og Jónas bættist þá í hópinn. Um vorið tókum við saman gagn- fræðapróf og landspróf og um svipað leyti ákváðum við að fara næsta haust í inntökupróf í Samvinnuskólann. Eitthvað undirbjuggum við okkur saman undir prófið. Mér er það minn- isstætt að okkur leist ekkert á blikuna þegar við sáum að að- eins þriðjungur þeirra sem prófið tóku mundi komast í skólann. Þannig var nú sjálfs- traustið hjá okkur sveita- mönnunum á þessum tíma. Við Jónas vorum síðan herbergis- félagar í Bifröst ásamt frænda hans úr Hrútafirði. Jónas var ágætur námsmað- ur og góður skólaþegn. Utan sjálfs námsins var tónlist helsta áhugamálið og hann var t.d. formaður tónlistarklúbbs í skól- anum. Hann var prúðmenni og vinsæll af skólafélögum sínum. Eftir Bifrastardvölina skildi leiðir okkar Jónasar fljótlega. Ég fór að vinna úti á landi, en hann réðst til verslunarstarfa hjá KRON í Reykjavík. Við slík störf vann hann næstu árin á nokkrum stöðum úti á landi. Einnig starfaði hann í versl- unum bæði í Ósló og Kaup- mannahöfn. Hann vann síðan hjá nokkrum verktökum við byggingar og virkjanir þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Síðustu tvo áratugina höfum við Jónas verið í miklu sam- bandi og þá aðallega í gegnum síma. Hann hafði þann hátt á að hringja mikið í gamla vini sína og félaga. Í þessum sam- tölum okkar rifjaði Jónas gjarna upp ýmislegt frá skóla- árunum og virtist hafa alveg ótrúlegt minni á hluti sem ég var löngu búinn að gleyma. Hann var mikill lestrarhestur og vandaði valið á því sem hann las. Hann kunni mikið af vísum og kvæðum. Sérstakt uppáhald hafði hann á kvæðum Einars Benediktssonar. Hann átti mik- ið safn af klassískri tónlist og góð hljómflutningstæki og naut þess greinilega mjög að hlusta á tónlistina. Í einni af seinustu heimsóknum mínum til Jónasar núna milli jóla og nýárs ræddi hann um kvæðið Einræður Starkaðar eftir Einar Bene- diktsson. Hann lagði sérstaka áherslu á síðasta erindið sem er þannig: Dagur míns heims varð helsvört nótt. – Hann hvarf eins og stjarna í morgunbjarma. Guðsdyrnar opnuðust hart og hljótt. Hirðsveinar konungsins réttu út arma. Fjördrykkinn eilífðar fast ég drakk. Þá féll mín ásýnd á jörð eins og gríma. Heiðingjasálin steypti stakk. – Ég steig fyrir dómara allra tíma. Um þetta leyti var Jónas orðinn mjög veikur og gerði sér fulla grein fyrir að hverju dró. Mér virtist hann finna þarna til viss skyldleika við Starkað í kvæðinu og vildi gefa til kynna að hann kviði ekki dómi al- mættisins. Að leiðarlokum þökkum við, bekkjarsystkinin frá Bifröst, Jónasi margra áratuga sam- skipti og vináttu, um leið og við sendum systkinum hans og fjöl- skyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Húnbogi Þorsteinsson. Jónas Jóhannsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.