Morgunblaðið - 28.01.2015, Blaðsíða 35
tókum síðan við sauðfjárbúinu á
Höfða 2005 og höfum starfrækt það
síðan.“
Ásta lauk námi til kennsluréttinda
í grunnskóla og framhaldsskóla, frá
Háskólanum á Akureyri 2001. Síðan
þá hefur hún sótt fjölda námskeiða
m.a. tölvunámskeið, námskeið sem
lúta að ýmsum þáttum stjórnunar og
mannaforráða og námskeið tengd
kennslu á einn eða annan hátt.
Ásta var í sumarvinna í frystihúsi
Kaldbaks á Grenivík 1992, sinnti bú-
störfum í sveitinni sumrin 1993-99,
var kennari við MA 1999-2008 þar
sem hún kenndi einkum líffræði og
stærðfræði, var stundakennsla við
VMA 2000 og 2007, var námsbraut-
arstjóri náttúrufræðibrautar MA
2003-2008 og hefur verið skólastjóri
Grenivíkurskóla frá 2008.
Sveitarstjórn og sauðfjárrækt
Ásta hefur setið í sveitarstjórn
Grýtubakkahrepps frá 2006 og sinnt
ýmsum trúnaðarstörfum í nefndum á
vegum sveitarfélagsins. Hún er
stjórnarmaður í félagi sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð og situr í stjórn
Æðarræktarfélags Íslands.
Áhugamál Ástu eru fjölmörg. Þar
ber þó hæst lestur góðra bóka, mál-
efni landbúnaðarins, uppeldis- og
skólamál og brennandi áhugi á nátt-
úrunni og náttúruvísindum, einkum
á öllu sem tengist líffræði.
Fjölskylda
Eiginmaður Ástu er Þorkell M.
Pálsson, f. 11.3. 1971, sauðfjárbóndi.
Foreldrar hans eru Páll Eggert Þor-
kelsson, f. 29.11. 1951, lögreglumað-
ur á Akureyri, og Sigurlaug Anna
Tobíasdóttir, f. 23.8. 1952, matráður
á Akureyri.
Sonur Þorkels frá fyrra sambandi
er Jóhann Páll Þorkelsson, f. 30.8.
1990, sauðfjárbóndi á Snartarstöðum
í Lundarreykjadal en kona hans er
Guðrún María Björnsdóttir, sauð-
fjárbóndi á Snartarstöðum og eru
börn þeirra Heiðdís Guðrún Jó-
hannsdóttir, f. 19.5. 2012, og stúlka
Jóhannsdóttir, f. 7.1. 2015.
Börn Ástu og Þorkels eru Sigrún
Þóra Þorkelsdóttir, f. 11.5. 1998,
nemi; Sigurður Einar Þorkelsson, f.
8.8. 2006; Páll Þórir Þorkelsson, f.
17.10. 2014.
Systir Ástu er Inga Hrönn Flosa-
dóttir, f. 2.10. 1976, búsett á Akur-
eyri.
Foreldrar Ástu eru Flosi Krist-
insson, f. 10.3. 1929, og Þórdís G.
Þórhallsdóttir, f. 5.8. 1950, bændur á
Höfða I í Grýtubakkahreppi.
Úr frændgarði Ástu Fannar Flosadóttur
Ásta Fönn
Flosadóttir
Indriði Ásmundsson
b. í Miðvík
Ragnheiður
Kristjánsd.
húsfr. í Miðvík í
Grýtubakka-
hreppi
Kristinn Indriðason
b. á Höfða
Sigrún Jóhannesdóttir
húsfr. á Höfða
Flosi Kristinsson
b. á Höfða I JóhannesSigurðsson
b. á Ytra-Hóli
Sigríður Rósa Sigurðardóttir
húsfr. á Ytra-Hóli í Fnjóskadal
Jónína Þorsteinsdóttir
fyrrv. röntgentæknir á Akureyri
Lára Þorsteinsdóttir
húsfreyja
Kristján
skáld frá Djúpalæk
Sigríður Rósa Kristinsdóttir verkakona á Eskifirði
Ásmundur Hreiðar
Kristinsson b. á Höfða II
María Soffía Kristinsd.
ljósmóðir í Rvík
Haraldur Kristófer
Kristinsson bílstj. í
Keflavík
Valdemar Gestur
Kristinsson leigubílstj. í
Þorlákshöfn
Ragheiður
Kristinsd.
húsfr. í
Kópavogi
Ragnheiður Haraldsd.
aðstoðarleik-
skólastjóri í Kópavogi
Þór Pálsson
skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
Sigrún Ásmundsdóttir
kennari á Akureyri
Kristján Kristjánsson
heimspekingur
Arna H. Jónsdóttir
lektor við HÍ
Hrafn Kristjánsson
körfuboltaþjálfari
Gunnþórunn Jónasdóttir
húsfr. á Djúpalæk
Einar V. Eiríksson
b. á Djúpalæk
Þórhallur Einarsson
vörubílstj. á Akureyri
Þóra Þorsteinsdóttir
húsfr. á Akureyri
Þórdís Guðrún Þórhallsdóttir
b. á Höfða I
Þorsteinn Benediktsson
múrari á Akureyri
Friðfinna Guðrún Jóhannsdóttir
húsfr. á Akureyri
Hafsteinn Jóhannes-
son fyrrv. sveitar-
stjóri í Vík í Mýrdal
Sigurður H.
Jóhannesson
Jóhanna Friðrika
Sæmundsd.
leikkona
Guðjón Valur
Sigurðsson
handboltakappi
Héðinn Valdemarsson
skemmtikraftur
Bríet Sunna Valdemarsd.
söngkona
Sverrir Agnarsson formaður
Félags múslima á Íslandi
Lára Guðrún Agnarsd.
kennari
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Björn fæddist á Akureyri 25.1. 1915.
Foreldrar hans voru Jón Eyjólfur
Bergsveinsson, skipstjóri og erind-
reki SVFÍ, og k.h., Ástríður María
Eggertsdóttir húsfreyja.
Þau eignuðust 10 börn.
Björn kvæntist Maríu Hafliða-
dóttur, f. í Flatey á Breiðafirði
6.1.1925. Börn þeirra eru Hafliði
Örn flugmaður, Hilmar Þór arki-
tekt, Steinunn Ásta ritari og Sigríð-
ur Birna innanhússarkitekt.
Björn lauk prófi frá VÍ 1933 og
námi í svifflugi og flugkennslu í
Þýskalandi 1937, ásamt Kjartani
Guðbrandssyni. Björn lærði auk
þess flugumferðarstjórn hjá RAF
(Royal Air Force) 1945-46, vél-
flugnám 1946-47 og nám í flug-
umsjón í New York árið 1950.
Björn var öryggisvörður loftvarna
í Reykjavík 1941-43, vann hjá Flug-
félagi Íslands 1944-45, var yfirflug-
umferðarstjóri 1946-55, fram-
kvæmdastjóri flugöryggisþjónust-
unnar og oft staðgengill flugmála-
stjóra 1955-63, vann að skipulagi
flugrekstrar og flugumferðastjórnar
í Evrópu og Afríku hjá Alþjóða-flug-
málastofnuninni, ICAO, í París
1961-66, var varaflugrekstrarstjóri
Loftleiða 1966-72 og síðan fram-
kvæmdastjóri alþjóðadeildar Flug-
málastjórnar. Björn var virkur í al-
þjóðlegu flugsamstarfi og tók m.a.
þátt í skipulagi loftbrúarinnar til
Berlínar 1948-49.
Björn var meðal stofnenda Svif-
flugsfélags Íslands og Flugmála-
félags Íslands 1936, var varafor-
maður fyrstu stjórnar Félags
flugmálastarfsmanna ríkisins og
síðar formaður og var forseti Flug-
málafélagsins um árabil.
Björn var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu, riddara-
krossi hinnar konunglegu sænsku
norðurstjörnu frá konungi Svíþjóðar
og heiðurspeningi úr gulli 1. fl. frá
Danmörku og heiðurspeningi með
kórónu úr silfri frá Svíþjóð, sæmdur
„Diplome Tissandier“ frá Federa-
tion Aéronautique Internationale,
gullmerki Flugmálafélags Íslands
og var heiðursfélagi Íslenskra einka-
flugmanna.
Björn lést 21.3.1995
Merkir Íslendingar
Björn
Jónsson
95 ára
Guðrún Finnbogadóttir
90 ára
Vilborg Friðjónsdóttir
Zophanía G. Briem
85 ára
Guðlaug Kristófersdóttir
Hafliði Kristbjörnsson
Óskar Jónsson
Sigurjón Hreiðar Gestsson
Steinar Júlíusson
Þóra Hallgrímsson
80 ára
Guðbjörn Ingvarsson
Sigfús G. Emil Skúlason
Sigurður H. Þorsteinsson
Þórunn Jónsdóttir
75 ára
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Amalía Jónsdóttir
Gunnar Óskarsson
Stefanía R. Sigurjónsdóttir
Una Olga Ragnarsdóttir
Lövdal
70 ára
Ástríður Johnsen
Daníel Aðalsteinn Jónsson
Esther Ólafsdóttir
Hjörtur Hjartarson
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir
Margrét J. Guðjónsdóttir
Oddrún Kristófersdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Sigrún Gústafsdóttir
Sigurður Ingi Ingólfsson
Þuríður Guðmundsdóttir
60 ára
Aðalsteinn Guðmundsson
Fríður Leósdóttir
Grazyna K. Wolczynska
Guðlaug Jörgína Ólafsdóttir
Guðmundur Guðmundsson
Guðrún Ísfold Johansen
Heiðrún Aðalsteinsdóttir
Karólína Guðmundsdóttir
Kolbrún Árnadóttir
Richard M.F. Ólafsson
Sigríður Sveina Helgadóttir
Sigurður Jón Arnbjörnsson
Trausti Bragason
50 ára
Alexandr Nazarov
Anna Sigríður Ólafsdóttir
Guðni Ársæll Indriðason
Hrönn Harðardóttir
Karl Jóhann Ásmundsson
Lenka Lipková
Trausti Guðjónsson
40 ára
Arlene Almario Abunda
Bergný Jóna Sævarsdóttir
Birgit Þórðardóttir
Bryndís Hilmarsdóttir
Ómar Már Birgisson
Ómar Örn Hauksson
Pétur Bragason
Ragnheiður E. Rúnarsdóttir
Rósa Hlín Sigfúsdóttir
Stephen Arthur Christian
Sævar Þór Ægisson
Tuyet Thi Vu
Una Hlín Guðmundsdóttir
Vilborg Ólöf Sigurðardóttir
30 ára
Auður Arna Guðfinnsdóttir
Björn Jónsson
César A.S. De S. Afonso
Dagný Kristín Jakobsdóttir
Emilia Tomalak
Haraldur Fossan Arnarsson
Jón A. Guðmundsson
Justyna Emilia Ruszel
Kristján Rafn Guðnason
María Ósk Einarsdóttir
Sólveig Ingólfsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Valgerður býr í
Grindavík, vinnur á leik-
skóla og er formaður fim-
leikadeildar Grindavíkur.
Maki: Sigurður Magnús
Árnason, f. 1989, kokkur.
Dætur: Emma Lív, f.
2004, og Matthildur Yrsa,
f. 2012.
Foreldrar: Guðmunda
Jenný Hermannsdóttir, f.
1962, og Þorsteinn Rúnar
Guðjónsson, f. 1960.
Stjúpfaðir: Þröstur Magn-
ússon, f. 1965.
Valgerður
Jennýjardóttir
30 ára Elín ólst upp í
Reykjavík, býr í Kópavogi
og starfar við LSH í Foss-
vogi.
Börn: Áslaug María, f.
2003, og Anton Páll, f.
2008.
Systkini: Inga, f. 1971;
Gísli, f. 1975, Páll, f. 1979,
og Hrólfur, f. 1979.
Foreldrar: Lúther Páls-
son, f. 1953, leigubílstjóri,
og Áslaug Hrólfsdóttir, f.
1952, húsfreyja. Þau búa í
Kópavogi.
Elín Bára
Lúthersdóttir
30 ára Magni ólst upp á
Breiðdalsvík, býr í Reykja-
vík og er byggingatækni-
fræðingur hjá Ístaki í Nor-
egi.
Maki: Málfríður Sandra
Guðmundsdóttir, f. 1985,
hjúkrunarfræðingur.
Dóttir: Ásta Vordís, f.
2011.
Foreldrar: Grétar Björg-
ólfsson, f. 1951, vöru-
bifreiðarstjóri, og Svandís
Ingólfsdóttir, f. 1959,
bankastarfsmaður.
Magni
Grétarsson
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.