Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2015, Page 56
Þ
egar gengið er inn á sýninguna
Stund milli stríða með málverkum
systranna Söru og Svanhildar Vil-
bergsdætra, sem opnuð verður í
menningarhúsinu Gerðubergi í
Breiðholti í dag, laugardag, klukkan 15 tekur
sjávarniður á móti gestum; það má heyra
hvernig öldur skella á strönd. Við blasa litrík
og fjörleg verk sem sýna mörg hver systurnar
sjálfar á sælustundum í orlofi á Tenerife, við
strönd sem öldurnar klappa. Verkin eru hlað-
in listsögulegum tilvísunum – sjá má mjólkur-
stúlku málarans Vermeer og hann sjálfan tvö-
faldaðan að mála þær, í einu verkinu er
sundlaug Davids Hockney og berrassaður
ungur maður sem kemur úr frægu málverki
hans; elskendur úr verki eftir Chagall svífa
um loftið í öðru verki og í enn einu eru þær
systur úti í laug ásamt Jesú Kristi, Línu
Langsokk, Marilyn Monroe og Fridu Kahlo.
Þrátt fyrir galgopaskapinn eru sum verkin
líka mjög dramatísk. Hvaða er að gerast hér?
„Við endann á salnum eru þessi verk þarna
sem sýna stríðin sem titill sýningarinnar vísar
í, en það er löng saga sem borgar sig líklega
ekkert að fara út í,“ segir Sara.
Þegar hváð er segir Svanhildur að mál-
verkið til vinstri sýni hana og vísi í það þegar
hún greindist með krabbamein árið 2009 og
var í kjölfarið skorin upp. Þar má sjá hana
liggjandi á bekk í geislameðferð á sjúkrahúsi.
Súperman er fljúgandi á myndinni og leik-
arinn George Clooney er þar líka.
„Við byrjuðum fyrir tilviljun að mála saman
á menningarnótt árið 2010, héldum okkar
fyrstu einkasýningu í Listasafni ASÍ 2012, en
í maí sama ár vorum við í Danmörku, í
vinnustofudvöl á Fjóni,“ segir Svanhildur.
„Þar unnum við að fjölskyldumálverki sem við
sýndum seinna í Mosfellsbæ og hangir nú í
Hörpu. Þetta verk hér sýnir okkur þar,“ segir
Svanhildur og við stöndum frammi fyrir afar
gulu verki þar sem sjá má systurnar dúðaðar,
H.C. Andersen les bók í öðru horninu en þar
eru líka van Gogh og litla stúlkan með eld-
spýturnar, auki fleira fólks.
„Þarna var þessi yndislegi guli repjuakur,
þaðan kemur guli grunnurinn, og fallegt
kirsuberjatré í garðinum en það var bruna-
gaddur og við bjuggum í húsnæði sem var
rakt og kalt. Við kvefuðumst báðar hast-
arlega, ég fékk nú bara lungnabólgu en
flensuvírusinn hljóp í hjartað á Söru, gerði
þar mikinn usla og stoppaði það mánuði síð-
ar.“
„Ég fékk hjartastopp og hreinlega and-
aðist,“ segir Sara þegar hún er spurð nánar
út í forsögu málverksins sem sýnir hana í
sjúkrarúmi á sjúkrahúsi, með hjartað liggj-
andi á sænginni. Uppi í vinstra horninu eru
sjúkraflutningamenn, þar er Súperman líka
mættur og við rúmið eru systur hennar,
Bryndís og Svanhildur. Dauðinn er mættur
með ljáinn við höfðagaflinn.
„Þetta gerðist 8. júlí 2012 og það tókst að
endurlífga mig,“ segir Sara.
„Það var á afmælisdegi systur okkar og ég
var skorin upp á afmælisdegi bróður okkar!“
skýtur Svanhildur inn í.
„Þarna er ég á gjörgæslunni.“ segir Sara
um verkið. Og hjartað á sænginni?
„Það kemur frá Fridu Kahlo.“ Hún hlær.
„Við höldum mikið upp á hana. Bjargvætt-
urinn Súperman er að störfum á báðum spít-
alamálverkunum.“
– En Clooney?
„Hann á bara að vera sætur,“ svarar Svan-
hildur. „Hann horfir bara beint í myndavél-
ina.“
„Hérna er dauðinn yfir mér en Hannibal
Lechter er á málverkinu af Svanhildi,“ segir
Sara.
„Krabbinn étur mann en þessi er sneggri,“
bætir Svanhildur við og bendir á manninn
með ljáinn.
– Þið sluppuð. Súperman kom til bjargar.
„Já, þetta slapp fyrir horn. Samt tók endur-
lífgunin á mér 45 mínútur,“ svarar Sara. „Hér
var örugglega um kraftaverk að ræða. Ég er
síðan með bjargráð og búin að ná mér vel á
strik. Allir geta fengið svona vírus og stund-
um skýst hann í hjartað. Ég var bráðfrísk
fram að því. Ég var á leið í sumarfrí með
manninum mínum, við vorum á bensínstöð í
Hveragerði og þá leið ég út af í bílnum. Hann
dró mig út og fyrir tilviljun átti lögreglumað-
ur á frívakt leið hjá, hann sá þetta, stoppaði
og byrjaði strax að hnoða mig í gang. Sjúkra-
bíllinn frá Selfossi kom ekki fyrr en ellefu
mínútum seinna. Hefði lögreglumaðurinn ekki
verið þarna þá væri ég ekki hér til frásagnar
…Við systur urðum þannig báðar fyrir sjokki
vegna heilsunnar en mitt á milli þessara at-
vika þá fórum við saman til Tenerife, árið
2011.“
Veltum ferðakúltúr fyrir okkur
Sara og Svanhildur eru fæddar á Ísafirði árin
1956 og 1964, dætur hins kunna tónlistar-
manns og hárskera, Villa Valla, Vilbergs Vil-
bergssonar. Þær námu báðar við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands og unnu lengi að list
sinni hvor í sínu lagi en eins og þær sögðu
ákváðu þær fyrir um fimm árum að prófa að
vinna saman, með litum og striga. Viðtök-
urnar voru góðar, þær nutu sín í samstarfinu
og hafa síðan kannað í sameiningu bæði
hvunndags- og ævintýralönd. Og eins og þær
sögðu líka fóru þær til Tenerife árið 2011, í frí
með eiginmönnum sínum, en líka til að safna
efni fyrir flest þessara verka.
„Sýningin endurspeglar að það skiptast á
skin og skúrir í lífinu,“ segir Sara. „Við heyr-
um sjávarnið hér og hafið er eins og lífið, það
er aðfall og útfall.“
„Eftir að hafa lent í hremmingum með
heilsuna kann maður betur að meta lífið og
veit hvað það skiptir miklu máli að geta bæði
andað inn og út,“ bætir Svanhildur við.
Þær hafa greinilega notið lífsins í ferðalag-
inu sem mörg málverkanna fjalla um.
„Við litum í og með á þetta ferðalag sem
vinnuferð. Við vorum með góða myndavél og
tókum mjög mikið af ljósmyndum til að vinna
úr. Við vorum líka að velta ferðakúltúrnum
fyrir okkur, þessum plebbakúltúr sem við vor-
um hluti af,“ segir Sara og systurnar flissa.
„Við mynduðum allskyns hluti og aðstæður en
síðan grisjuðum við, völdum myndir að skoða
betur og röðuðum þeim saman. Út úr því
komu nokkrar stemningar.“
– En hver er ástæðan fyrir því að elsk-
endur Chagalls svífa yfir ykkur í sólbaði
þarna og að mjólkurstúlka Vermeers er að
þjóna ykkur á annarri mynd?
„Þetta kemur bara svona til okkar,“ svarar
Svanhildur og ypptir öxlum. „Við veltum hug-
myndum á milli okkar og munum ekkert endi-
lega hver kom með fyrstu hugmynd eða hver
þá næstu, svona er þetta bara.“
„Við áttum okkur á sumu eftirá,“ bætir
Sara við. „Sjáðu, hér er maðurinn minn að
lesa bók í sólbaði. Hann er þessi þögla týpa
og það er gaman að láta ástfangna parið hans
Chagalls koma fljúgandi upp úr bókinni hans
– er hann að lesa ástarsögu? Það er ekki
séns,“ segir hún og hlær. „Kannski fáum við
SARA OG SVANHILDUR VILBERGSDÆTUR SÝNA Í GERÐUBERGI
„Eigum í raun alls
ekki skap saman“
SYSTURNAR SARA OG SVANHILDUR VILBERGSDÆTUR MÁLA SAMAN MYNDIR SEM ERU FYNDNAR, LITRÍKAR OG
HLAÐNAR LISTSÖGULEGUM TILVÍSUNUM. UM LEIÐ FJALLA ÞÆR UM VEIKINDI SEM ÓGNUÐU LÍFI ÞEIRRA.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Vitnað er í hollenska málarann Vermeer í verkinu Homage með fromage. Hann sést hér tvöfald-
aður mála systurnar en mjólkurstúlka hans, úr samnefndu málverki, gengur um beina.
* Hérna er dauðinnyfir mér en Hanni-bal Lechter er á málverk-
inu af Svanhildi.
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.1. 2015
Elektra Ensemble býður upp á sína árlegu ný-
árstónleika á Kjarvalsstöðum á morgun,
sunnudag, klukkan 20. Þar hyggjast flytjendur
slá á létta strengi og flytja efnisskrá sem
höfðar til breiðs hóps áheyrenda. Á tónleik-
unum mun Hallveig Rúnarsdóttir sópran-
söngkona flytja ásamt Elektra Ensemble vin-
sæl lög og aríur úr óperettum og
söngleikjum eftir Johann Strauss, Luigi Arditi,
George Gershwin, Kurt Weill og Leonard
Bernstein. Flytjendur á tónleikunum ásamt
Hallveigu eru Ástríður Alda Sigurðardóttir
píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautu-
leikari, Rúnar Óskarsson klarínettuleikari,
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og
Margrét Árnadóttir sellóleikari.
ELEKTRA ENSEMBLE LEIKUR
NÝÁRSTÓNAR
Elektra Ensemble hefur staðið fyrir vinsælli tón-
leikaröð á Kjarvalsstöðum síðustu ár.
Ljósmynd/Steve Lorenz
Hin árlega sýning Þetta vilja börnin sjá! vekur
ætíð áhuga ungra lesenda í Gerðubergi.
Hin árlega sýning „Þetta vilja börnin sjá!“
verður opnuð í Borgarbókasafninu, Menn-
ingarhúsi Gerðubergi, á sunnudag klukkan
14. Sýndar verða afar fjölbreytilegar mynd-
skreytingar 28 myndskreyta í íslenskum
barnabókum sem gefnar voru út í fyrra. Er
þetta í þrettánda skiptið sem sýningin er
haldin með þessum hætti, þar sem gestir
geta í senn skoðað bækurnar og úrval mynd-
anna á veggjum.
Samhliða opnun sýningarinnar hafa ís-
lensku myndskreytiverðlaunin sem kennd
eru við Dimmalimm verið afhent en breyting
verður á því að þessu sinni. Verður nýtt fyr-
irkomulag kynnt síðar.
ÞETTA VILJA BÖRNIN SJÁ
BÓKAMYNDIR
Sýningin „Til sjávar og
sveita“ verður opnuð í sal
Listasafns Reykjanesbæjar
í Duushúsum í dag, laugar-
dag, klukkan 14. Á sýning-
unni eru verk eftir Gunn-
laug Scheving listmálara,
einn af stórmennum ís-
lenskrar listasögu.
Sýningin var upphaflega
unnin sem samstarfsverk-
efni Listasafns Árnesinga, Listasafns Horna-
fjarðar og Listasafns Íslands og eru verkin öll
úr safneign þess síðastnefnda. Sýningarstjóri
er Björg Erlingsdóttir.
Við sama tækifæri verða opnaðar tvær
aðrar sýningar í Duushúsum. Sýningin „Sjálf-
sagðir hlutir“ fjallar um þekkta hluti úr hönn-
unarsögunni og kemur frá Hönnunarsafni Ís-
lands. „15/15 – Konur og myndlist“ er sýning
á verkum 15 íslenskra kvenna úr safneign
Listasafns Reykjanesbæjar.
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
VERK SCHEVINGS
Gunnlaugur
Scheving
Menning