Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 8

Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015 www.sgs.is SAMEINUÐ BERJUMST VIÐ! KJÓSTU JÁ Þær ráða ekki við sig slagsíð-urnar og verður stundum illa á í messunni þrátt fyrir góða viðleitni, eins og Andríki bendir á:    Vinstri vefsíð-urnar lepja nú hver upp eftir ann- arri að svonefnd þingveisla hafi verið endurvakin í tíð núverandi ríkisstjórnar.    Þannig segir vinstri slagsíðanKjarninn.is svo frá 17. mars síðastliðinn:    Sitjandi ríkisstjórn ákvað aðendurvekja þingveisluna, nokkurs konar árshátíð þingsins, eftir að hún tók við stjórnar- taumunum, en það er forseti Al- þingis sem býður til veislunnar.    Síðasta ríkisstjórn hafði ákveð-ið að sleppa viðburðinum, sem þykir frekar formlegur og yfirstéttarlegur, þar sem henni þótti hann ekki viðeigandi í eftir- hruns-ástandinu.“    En Andríki spyr: „Hver boðaðiþá til hinnar yfirstéttarlegu og óviðeigandi þingveislu sem fram fór á Súlnasal Hótels Sögu 2. mars 2013, rúmum mánuði fyr- ir síðustu þingkosningar?“    Kjarnanum hafði yfirsést þessikjarni málsins, en hafði eft- ir heimild að forseti Íslands hefði leikið á als oddi í veislunni og einkum rætt um skilningsleysi þingmanna stjórnarandstöðu á stjórnskipan og þingræði.    Hann talaði við þingmenn einsog þeir væru hálfvitar,“ sagði heimildarmaður Kjarnans. Ólafur Ragnar Grímsson Gefið tilefni STAKSTEINAR Veður víða um heim 24.3., kl. 18.00 Reykjavík 3 alskýjað Bolungarvík 0 alskýjað Akureyri 0 skýjað Nuuk -1 léttskýjað Þórshöfn 3 skýjað Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 6 léttskýjað Lúxemborg 11 skýjað Brussel 10 skúrir Dublin 7 skýjað Glasgow 6 skúrir London 10 skúrir París 5 skúrir Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 8 léttskýjað Berlín 12 skýjað Vín 16 léttskýjað Moskva 7 alskýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 12 léttskýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 15 skúrir Róm 16 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg 0 súld Montreal -5 léttskýjað New York 1 heiðskírt Chicago 0 skýjað Orlando 20 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:11 19:57 ÍSAFJÖRÐUR 7:14 20:04 SIGLUFJÖRÐUR 6:57 19:47 DJÚPIVOGUR 6:40 19:27 Malín Brand malin@mbl.is Á morgun, fimmtudaginn 26. mars, er síðasti dagur rafrænna íbúakosn- inga í Sveitarfélaginu Ölfusi. Mark- mið kosninganna er að kanna áhuga íbúa á því að bæjarstjórn ræði við önnur sveitarfélög um sameiningu. Frá því að rafrænu kosningarnar hófust, hinn 17. mars, þar til síðdegis í gær höfðu tæp 26% íbúa kosið, eða 365 af þeim 1.432 íbúum sem eru á kjörskrá. Rafræna kosningin er að hluta til tilraunaverkefni Þjóðskrár Íslands með rafrænt kosningakerfi í samvinnu við Sveitarfélagið Ölfus. Ódýrari kosningar Bragi Leifur Hauksson er einn þeirra sem halda utan um rafrænu kosninguna en hann er verk- efnastjóri hjá Þjóðskrá Íslands. Seg- ir hann rafræna kosningu hafa ýmsa kosti og að tilraunin sé áhugaverð. „Þetta eru fyrstu íbúakosningarnar sem í raun eru framkvæmdar á grundvelli þessara laga og reglu- gerðar sem heimila svona kosningar. Ölfus sótti um til innanríkisráðu- neytisins að fá að hafa kosningarnar eingöngu rafrænar,“ segir Bragi. Samkvæmt 2. mgr. 108 gr. sveitarstjórnarlaga geta íbúar, náist ákveðinn hluti kosningabærra íbúa, óskað eftir íbúakosningu um ákveðin mál en sá möguleiki hefur sjaldan verið nýttur hér á landi. „Það er dýrt að halda venjulegar kosningar og ef menn hefðu nýtt þennan möguleika ótt og títt er næsta víst að kostnaður gæti verið mikill fyrir sveitarfélögin. Þess vegna var opnað fyrir það að svona kosningar gætu hugsanlega verið rafrænar en það yrði þó gert þannig að öllum yrði gert kleift að kjósa,“ segir Bragi og hver veit nema lýðræðið verði virkara með þessum hætti þegar meiri reynsla er komin á rafrænt kosningakerfi. Í þessum tilteknu kosningum get- ur fólk fengið aðstoð og aðgang að tölvu á bókasafni í Þorlákshöfn en annars kýs fólk í rólegheitum heima eða þar sem hentar. Segir Bragi kosti þess ótvíræða þó að gagnrýnin hafi til dæmis beinst að því að á stærri heimilum gæti einhver haft eða reynt að hafa áhrif á kosningu annarra. „Séð hefur verið við þessu því að fólki er leyft að kjósa eins oft og það vill en aðeins síðasta kosn- ingin gildir.“ Fyrir vikið er seljan- leiki atkvæða enginn því hver og einn getur breytt vali sínu áður en kosningu lýkur. Nánari upplýsingar má nálgast á avefnum www.olfus.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ölfus Íbúakosningarnar eru rafrænar og hægt verður að kjósa um samein- ingarviðræður við önnur sveitarfélög til klukkan 2, aðfaranótt föstudags. Rafræn kosning hefur ýmsa kosti Um 160.000 manns eru með Íslykil Þjóðskrár Íslands og um 75.000 nýta sér rafræn skilríki í snjallsíma. Í gegnum þessa innskráningarþjónustu eru á bilinu 10.000 og 20.000 innskráningar á dag, að sögn Braga Haukssonar. Á vefsíðunni www.island.is má rýna betur í þessar tölur og skoða hverjir þjónustuveitendur þessara innskráningarleiða eru en sam- tals eru þeir um 150. Einnig má fræðast enn frekar um rafræn skilríki og þann mun sem á þeim er. En til glöggvunar eru hér fáein orð um Íslykil og rafræn skilríki: Íslykill er í raun og veru lykilorð sem tengt er kennitölu einstaklings eða lögaðila. Hann má nota á vefjum ýmissa stofnana, sveitarfélaga, fé- lagasamtaka og fyrirtækja. Rafræn skilríki bjóða auðkenningu og undir- skriftir, sem jafngilda því að framvísa persónuskilríkjum og eiginhandar- undirritun. Ört vaxandi notendahópur RAFRÆN BYLTING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.