Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
Varúð: Inniheldur smáhluti.
Ekki ætlað börnum 0-3 ára.
Galdraðu fram
gómsæta páska
með Töfrahetju-
egginu frá Góu.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samninganefnd 16 aðildarfélaga
Starfsgreinasambandsins kom sam-
an í gær vegna óvissu um lögmæti
atkvæðagreiðslunnar um boðun
verkfalls í kjölfar dóms Félagsdóms
í fyrradag í máli tæknimanna hjá
Ríkisútvarpinu. Ákveðið var á fund-
inum að afturkalla atkvæðagreiðsl-
una.
Verður kosningin endurtekin hjá
hverju félagi fyrir sig. Þetta gæti
þýtt skv. upplýsingum Björns Snæ-
björnssonar, formanns SGS, að fyr-
irhugaðar verkfallsaðgerðir á vegum
félaganna frestist um tvær til þrjár
vikur og komi til framkvæmda undir
lok aprílmánaðar verði þær sam-
þykktar í félögunum. Hann segir all-
ar líkur á að félagsmenn muni sam-
þykkja boðun verkfalla.
„Þetta mun bara þýða að það
verða ákveðnar nýjar aðgerðir og
þær verða harðari en þær sem við
vorum búin að stilla upp,“ segir
hann.
Baráttuhugurinn meðal
félagsmanna mun ekki dala
Björn segir að mikil baráttuhugur
og stemning sé meðal félagsmanna í
verkalýðsfélögunum og hann muni
ekkert dala þó að næsta atkvæða-
greiðsla fari ekki fram fyrr en eftir
páska. Væntanlegar aðgerðir komi
til síðar en þær færist þá yfir á tíma-
bil sem er enn viðkvæmara í ferða-
þjónustunni og fleiri atvinnugrein-
um en þær aðgerðir sem boðaðar
höfðu verið eftir páska.
Uppfærð áætlun um aðgerðir
verður kynnt fljótlega og í kjölfarið
munu öll félögin 16 sem aðild eiga að
samninganefnd SGS boða til at-
kvæðagreiðslu meðal félagsmanna
sinna. Í yfirlýsingu eftir fundinn í
gær lýsir SGS miklum vonbrigðum
með nýfallinn dóm félagsdóms í máli
Rafiðnaðarsambandsins vegna
tæknimanna hjá RÚV „en Samtök
atvinnulífsins (SA) höfðu efast um
lögmæti verkfallsaðgerða tækni-
mannanna. Dómurinn kemst að
þeirri niðurstöðu að óheimilt hafi
verið að telja atkvæði vegna verk-
fallsboðunar margra stéttarfélaga í
einu lagi, jafnvel þó að um sameig-
inlegar aðgerðir sé að ræða,“ segir
þar.
Í ljósi þess að yfirstandandi at-
kvæðagreiðsla SGS sé einnig vegna
sameiginlegra aðgerða margra stétt-
arfélaga hafi samninganefnd SGS
ákveðið að afturkalla atkvæða-
greiðsluna.
,,Dómurinn sem féll í Félagsdómi
er mjög skýr þannig að við ákváðum
að hætta við þessa atkvæðagreiðslu
og byrja að undirbúa þá næstu, þar
sem hvert félag fyrir sig mun greiða
atkvæði en við vorum í þeirri trú að
það væri allt í lagi að gera þetta með
þessum hætti,“ segir Björn.
Félagsdómur í máli tæknimann-
anna í Rafiðnaðarsambandinu var
kveðinn upp eftir að Samtök at-
vinnulífsins báru verkfallsboðun
þeirra undir dóminn. Var meginnið-
urstaðan sú að verkfallsrétturinn
væri bundinn við stéttarfélag og því
beri að kjósa og telja atkvæði hjá
hverju félagi fyrir sig en ekki sam-
eiginlega.
Björn segir afstöðu Samtaka at-
vinnulífsins mjög einkennilega. SA
kvarti iðulega undan því að laun-
þegahreyfingin komi að samninga-
borðinu í mörgum hlutum en ekki
sameiginlega sem ein fylking. „Þeir
kvarta undan því núna að við séum í
mörgum hópum en svo þegar við
komum okkur saman um samræmd-
ar aðgerðir, þá vilja þeir slíta okkur í
sundur. Mér finnst nær að þeir setj-
ist niður og reyni að semja um kjara-
samning heldur en að vera að standa
í einhverjum svona tækniatriðum.“
Björn segist ekki geta sagt fyrir
um hvaða áhrif afturköllun atkvæða-
greiðslunnar og undirbúningur að
nýrri kosningu í hverju félagi muni
hafa á kjaraviðræðurnar á komandi
vikum en boðað er til næsta sátta-
fundar 7. apríl.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Meta stöðuna Forystumenn Starfsgreinasambandsins ráða ráðum sínum á fundi í gær vegna óvissu um lögmæti
atkvæðagreiðslunnar um verkfall. Farið var yfir þýðingu nýfallins dóms Félagsdóms með lögfræðingi.
Boðar harðari að-
gerðir í lok apríl
SGS ákveður að afturkalla atkvæðagreiðsluna um verkföll
10 þúsund félagar
» Kosningar um verkföll verða
endurteknar hjá hverju aðild-
arfélagi SGS fyrir sig.
» Félagsmennirnir í stétt-
arfélögunum 16 eru ríflega
10.000 talsins og starfa á mat-
vælasviði, s.s í fiskvinnslu,
kjötvinnslu og sláturhúsum og
í þjónustugreinum, s.s. ferða-
þjónustu og ræstingum og í
byggingarstarfsemi, mann-
virkjagerð, iðnaði og flutnings-
greinum.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti tel-
ur að verkfallsboðanir fimm aðild-
arfélaga BHM séu ólögmætar og
hafa félögunum verið sendar til-
kynningar þess efnis þar sem þau
eru hvött til að afturkalla þær. Skv.
upplýsingum blaðsins má búast við
að ríkið fari með málið fyrir Fé-
lagsdóm ef félögin fimm afturkalla
ekki verkfallsboðanirnar.
Alls hafa 18 stéttarfélög innan
BHM samþykkt verkfallsboðanir
eftir páska og halda forsvarsmenn
bandalagsins því fram að allar at-
kvæðagreiðslurnar hafi verið að lög-
um. Ætla félögin því ekki að verða
við áskorun ríkisins um afturköllun
þeirra, heldur halda verkfallsboð-
unum til streitu skv. upplýsingum
Morgunblaðsins.
Þau fimm félög sem fjármálaráðu-
neytið telur að hafi ekki staðið með
lögmætum hætti að verkfallsboð-
unum eru: Félag háskólamenntaðra
starfsmanna stjórnarráðsins, Stétt-
arfélag lögfræðinga, Ljósmæðra-
félag Íslands, Stéttarfélag háskóla-
menntaðra starfsmanna á matvæla-
og næringarsviði og Félag íslenskra
náttúrufræðinga.
Í bréfi ráðuneytisins kemur fram
að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir
annarra 13 félaga innan BHM hafi
verið löglega boðaðar.
Í svari Páls Halldórssonar, for-
manns BHM, til kjara- og mann-
auðssýslu ríkisins í gær segir að
sjálfstæð atkvæðagreiðsla hafi farið
fram um verkfallsboðanir í hverju
félagi. ,,Þannig voru greidd atkvæði
fyrir hvert og eitt verkfall sjálfstætt
og sérstaklega.
Greidd voru atkvæði í hverju fé-
lagi um þær aðgerðir sem fé-
lagsmenn þess skyldu taka þátt í,“
segir m.a. í svari BHM, sem lítur svo
á að kosningarnar hafi verið að lög-
um.
Ása Sigríður Þórisdóttir, upplýs-
ingafulltrúi BHM, segir að umbeðn-
ar upplýsingar um framkvæmd at-
kvæðagreiðslunnar, atkvæðaseðla
o.fl. hafi verið sendar eftir hádegi í
gær Því sé sérkennilegt að ráðu-
neytið komist að þessari niðurstöðu
áður en það hefur fengið þessar upp-
lýsingar um atkvæðagreiðsluna í
hendur.
,,Við lítum svo á að rétt hafi verið
að þessu staðið og að niðurstaðan
standi og höldum okkar striki,“ segir
hún.
Samninganefndir ríkisins og
BHM komu saman hjá rík-
issáttasemjara í gær og ákvað ríkið í
framhaldi af þeim fundi að vísa
kjaradeilunni við BHM-félögin til
sáttameðferðar.
omfr@mbl.is
Telur verkföll 5
félaga ólögmæt
BHM-félögin halda sínu striki Rík-
ið vísar deilu við BHM til sáttasemjara
Morgunblaðið/Ómar
Baráttufundur 18 félög í BHM hafa
boðað verkfallsaðgerðir í apríl.
Skrifað hefur verið
undir nýjan kjara-
samning milli Fé-
lags íslenskra leik-
ara og Leikfélags
Reykjavíkur
vegna leikara í
Borgarleikhúsinu
með fyrirvara um
samþykki leikara
og stjórnar LR.
Skv. upplýs-
ingum frá Félagi íslenskra leikara
hafa viðræður viðsemjenda staðið yfir
nánast óslitið síðan í apríl í fyrra og
var eldri samningur tvívegis fram-
lengdur. Samningstími nýja samn-
ingsins er frá 1. febrúar sl. til 30.
september 2016. Verður samning-
urinn borinn undir leikara til sam-
þykktar síðdegis í dag. Ósamið er í
deilu leikara og ríkisins og hafa leik-
arar boðað til verkfalls 9. apríl.
Leikarar ná
samningum
Sýning á sviði
Borgarleikhússins
Sameiginleg kröfugerð SFR stéttar-
félags í almannaþjónustu, Sjúkraliða-
félags Íslands og Landssambands
lögreglumanna, fyrir komandi kjara-
viðræður var lögð fyrir samninga-
nefnd ríkisins í gær. Félögin gera ráð
fyrir að samið verði til eins árs en loka
þó ekki á möguleikann á lengri samn-
ingi að sögn Árna Stefáns Jónssonar,
formanns SFR.
Ekki eru settar fram kröfur um
ákveðna prósentu- eða krónutölu-
hækkun launa en áhersla lögð á að
horft verði til samninga sem ríkið hef-
ur gert að undanförnu að sögn hans.
Meta má launakröfur félaganna upp á
17 til 25% launahækkanir eftir því til
hversu langs tíma verður samið. Árni
Stefán segir að félögin hafi fengið þau
svör á fundinum í gær að það væri
stefna ríkisins að bjóða 3,5% launa-
hækkanir.
Kröfugerð félaganna skiptist í tvo
hluta, annars vegar sameiginlegar
kröfur þeirra og hins vegar sérkröfur
hvers félags fyrir sig. Eru meginkröf-
urnar auk launakrafna m.a. þær að
vinnuvikan verði stytt, kynbundnum
launamun verði útrýmt, að laun verði
jöfnuð eða leiðrétt á milli opinberra
starfsmanna og starfsmanna á al-
mennum markaði og að tekin verði
upp launaþróunartrygging. Kjara-
samningar félaganna renna út í lok
apríl. Boðað er til næsta fundar um
miðjan apríl. omfr@mbl.is
Vilja 17 til 25%
hækkanir og
styttri vinnuviku
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari
hefur sagt upp störfum. Staðfesti
hann þetta í samtali við mbl.is í gær.
„Ég sagði upp í lok febrúar og upp-
sagnarfresturinn er þrír mánuðir,
þannig að samningnum mun ljúka í
maí,“ sagði Magnús. Aðspurður
sagðist hann þó hafa ákveðinn
sveigjanleika varðandi eiginleg
starfslok, enda margar kjaraviðræð-
ur í gangi sem embættið þyrfti að
sinna. Hann sagði það skipta miklu
máli að fulltrúar vinnumarkaðarins
kæmu að vali nýs sáttasemjara en
félagsmálaráð-
herra skipar rík-
issáttasemjara til
fimm ára í senn.
Magnús hefur
gegnt starfi ríkis-
sáttasemjara frá
árinu 2008. Áður
starfaði hann
sem forstjóri
Landspítalans og
þar áður var
hann ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu.
Ríkissáttasemjari
segir starfi sínu lausu
Magnús
Pétursson