Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 ✝ SvanhildurMarta Björns- dóttir fæddist 10. ágúst 1924 í Haugasundi í Nor- egi. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 17. mars 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Björn Sigurbjörns- son, f. 24. apríl 1876 í Kræklingahlíð við Eyja- fjörð, d. 20. mars 1935, og Mal- ene Johanne Hop, f. 27. júlí 1878 í Hörðalandi í Noregi, d. 8. október 1939. Systkini Svan- hildar voru Björn Malmfred, f. 16. febrúar 1913, d. 18. febrúar 1998, og Anna Guðbjörg, f. 15. desember 1915, d. 25. ágúst 1992. Svanhildur giftist Ólafi Ólafs- syni lögfræðingi 1950 og er Halldórsdóttir tónlistarkennari. Sigríður lést 2. júní 2004. Sonur þeirra er Davíð Freyr, f. 24. september 1992. Dætur Krist- jáns frá fyrra hjónabandi eru Silja, f. 1939, og Ásthildur, f. 1942. Sambýliskona Björns Davíðs er Jórunn Þórey Magnúsdóttir píanókennari. Dætur Jórunnar eru Sædís og Margrét Dúadæt- ur Landmark. Svanhildur og Kristján hófu búskap sinn í Unuhúsi, Garða- stræti 15, og bjuggu þar til 1970 er þau fluttu í Barðavog 13, þar sem þau bjuggu til dauðadags. Svanhildur ólst upp í Noregi til fimm ára aldurs er hún flutti til Íslands ásamt foreldrum og systkinum. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1944 og lærði að því loknu röntgentækni. Hún vann um tíma á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur en síðan um ára- tugaskeið á Röntgendeild Land- spítalans við Hringbraut. Útför Svanhildar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 27. mars 2015, kl. 15. dóttir þeirra Val- gerður, f. 4. októ- ber 1951, sálfræð- ingur. Maður hennar er Kári Stefánsson læknir, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Börn þeirra eru Ari, f. 13. október 1971, kona hans er Kristín B. Jóns- dóttir, Svanhildur, f. 18. desember 1976, maður hennar er David Merriam, og Sólveig, f. 12. maí 1984, maður hennar er Dhani Harrison. Barnabörnin eru sex. Svanhildur og Ólafur skildu. Svanhildur giftist Kristjáni S. Davíðssyni listmálara 1961, f. 28. júlí 1917, d. 27. maí 2013. Sonur þeirra er Björn Davíð flautuleikari, f. 30. mars 1961. Kona hans var Sigríður Kristín Móðir mín elskuleg er fallin frá. Einhverra hluta vegna kom það aftan að mér þótt hún væri orðin fjörgömul. Mér fannst hennar tími ekki vera kominn. Hún var glöð og hafði svo mikinn áhuga á lífinu að unun var að fylgjast með. Fólk á öll- um aldri dróst að henni, hún var skemmtileg heim að sækja og hafði alltaf tíma til að hlusta á gesti sína, með húmorinn að vopni. Þrátt fyrir dapra sjón fór hún á leiksýningar og fylgdist með bókmenntum með því að hlusta á hljóðbækur og það var alltaf gaman að ræða við hana um bókina sem hún var að lesa eða var búin með. Hún fylgdist líka vel með þjóðmálum, hlust- aði af athygli á „gömlu gufuna“ og gat alltaf sagt manni hvað væri um að vera, hvernig dóma nýjasta leikritið á fjölunum fengi eða hvernig veðurspáin væri næstu daga. Hún var margbrotinn persónuleiki hún móðir mín, greind og skemmti- leg. Hún var ekki aðeins móðir mín, hún var líka besti vinur minn. Þeir eru ekki margir dagarnir sem við töluðum ekki saman síðustu áratugina, ég á eftir að sakna hennar mikið. En fyrst og fremst er ég þakk- lát fyrir hvað við fengum lang- an tíma saman. Tíma til að þroskast í gegn- um alls konar misfellur sem verða á vegi móður og dóttur og standa eftir og vita að mað- ur á ekki betri bandamann en hvor aðra. Hvíldu í friði, mamma mín. Valgerður Ólafsdóttir. Elskuleg föðursystir mín, Svanhildur Marta, er látin. Það eru hrein forréttindi að hafa fengið að kynnast henni í gegnum árin og átt hluta í lífi hennar með henni og að hún hafi átt hluta í okkar lífi. Á gömlum ljósmyndum sjáum við fallega, unga konu í faðmi stór- fjölskyldunnar, með Önnu systur sinni og Birni bróður sínum og þeirra fjölskyldum. Á gömlum kvikmyndabrotum er hlegið og leikið við börnin í fjölskyldunni. Tískuklæddar með fallegar hárgreiðslur, gengu þær stöllur um götur Reykjavíkur, þessar fallegu konur og brostu við lífinu. Eru það góðar minningar að eiga, fyrir okkur sem eftir lifum. Lífið var fallegt. Og lífið er ennþá fallegt. Svanhildur á stóran afkomendahóp sem ber henni fagurt vitni og vil ég votta þeim öllum einlæga sam- úð á sorgarstundu. Minningarbrot skjóta upp kollinum við fráfall ættmóður- innar Svanhildar Mörtu og unga fólkið í fjölskyldu systk- ina hennar mun sakna hennar og þakka henni elsku hennar í sinn garð, sem alltaf var mjög sýnileg. Nú vonum við að hún sé komin til þeirra allra, sem hún unni og undan eru gengn- ir. Meðan ég skrifa þessar lín- ur eru undur og stórmerki að gerast, sólmyrkvi á himni. En ef ég finn andstætt orð við það orð, þá er það sólarlýsing og á það vel við um daginn sem Svanhildur hélt á braut. Það varð sólarlýsing, þegar hún tók flug til æðri heima. Í ást og blíðu. Anna Svanhildur Björnsdóttir. Svanhildur Marta Björns- dóttir er látin. Ég minnist þess sem barn að hafa fundist það vera óvenjulegt að það áttu allir afa og ömmur en ég átti föður- og móðursystur. Svanhildur föðursystir mín var yngst af frænkum mínum sem voru hver annarri fallegri og skemmtilegri. Bernsku- heimili mitt í austurbæ Reykjavíkur bar vitni örlæti þeirra hjóna Svanhildar og Kristjáns. Litadýrð málverka Kristjáns sem prýddu veggina mótaði snemma fegurðarskyn mitt og jafnvel skoðanir á öðr- um sviðum. Svanhildur var yngst þriggja systkina. Þau voru hálfnorsk, fæddust á vestur- strönd Noregs og voru norskir ríkisborgarar, faðir minn til ársins 1947. Vestlendingar eru skörpustu og best gefnu manneskjur í Skandinaviu seg- ir rithöfundurinn Björnstjerne Björnson í einni af sögum sín- um. Fólkið sem fæddist og óx upp í skjóli háu fjallanna á vesturströnd Noregs. Systkin- in Björn, Anna og Svanhildur voru stór eins og norsku fjöllin sem mótuðu forfeður þeirra. Svanhildur var einnig lík föður sínum Birni Sigurbjörnssyni. Um hann var sagt í minning- arorðum að hann hafi verið fríður og tilkomumikill, glað- vær og hlýr í kynningu og manna kurteisastur í allri framkomu, sjálfstæður og list- rænn. Svanhildur flutti til Íslands með fjölskyldu sinni 1928 –1929 og höfðu þau systkinin ávallt mjög náið og gott sam- band. Hún lifði bæði systkini sín og fylgdist vel með fjöl- skyldum þeirra allt fram á síð- asta dag. Minningarnar um föðursyst- ur mína eru margar og þær gleðja. Frá síðustu árum ber hæst ættarmótið í Noregi árið 2004 þegar við ættingjar frá Íslandi fórum til Stanghelle í Noregi á ættarmót Hop fjöl- skyldunnar. Skömmu síðar eða árið 2006 hlupu tvær frænkur og önnur í hjólastól eftir flugvellinum í Oslo í næturlestina til Bergen. Við vorum rétt komnar inn í lestina og höfðum sett tösk- urnar okkar í klefann þegar hún rann af stað. Þetta var skemmtileg ferð okkar tveggja til frændfólks á Dale og Stang- helle og einnig dvöldum við í Oslo í tvo daga. Á síðasta ári var níræðisafmæli Svanhildar Mörtu fagnað og bauð hún frændfólki sínu einu sinni sem oftar í Barðavoginn í hvítvín og danskt smörrebröd. Síðasti norsarinn og ég vorum í Þjóð- leikhúsinu og sáum Karítas viku áður en hann kvaddi á fal- legum vordegi í miðri vetrar- hörkunni. Elsku frænka mín, höfðingi og vinur, þakka þér fyrir samfylgdina. Birna Salóme Björnsdóttir. Svanhildur frænka eins og stórfjölskyldan kallar hana jafnan var bæði vel gefin og skemmtileg kona, gædd mörg- um góðum kostum. Hún fylgd- ist vel með og hafði skoðanir á flestum hlutum. Hún var ein þriggja systkina sem voru ein- staklega samrýnd og nánast er hægt að fullyrða að þau höfðu samband sín á milli daglega á meðan þau voru öll á lífi. Sam- skipti þeirra báru alla tíð vott um mikla væntumþykju og um- hyggju hvers fyrir öðru. Ófáir afkomendur þeirra bera nöfn systkinanna: Björn, Anna og Svanhildur. Hún sýndi okkur ættingjun- um alltaf áhuga og spurði frétta af öllum ættboganum þegar við hittumst. Unga fólk- ið í fjölskyldunni hefur skynjað þennan áhuga því við vitum að þeim þykir öllum mjög vænt um hana. Svanhildur var glæsileg kona sem meðfram fullri vinnu átti fallegt heimili, tók virkan þátt í menningarlífi, ferðaðist mikið og stundaði sundlaug- arnar reglulega áratugum saman og því má segja að hún hafi verið góð fyrirmynd. Í dag þegar við minnumst hennar reikar hugurinn til baka og upp í hugann koma góðar minningar um heimsókn- ir í Barðavoginn með mömmu, fjölskylduboð, ferðalög innan- lands og utan sem voru ávallt mjög ánægjuleg. Nú er komið að leiðarlokum, kveðjustund eftir viðburðaríka og langa ævi. Við vitum að það verður tekið vel á móti henni á næsta áfangastað. Blessuð sé minning hennar. Bragi S. Baldursson, Málfríður Ásgeirsdóttir. Svanhildur Marta Björnsdóttir✝ Snæbjörn Páls-son fæddist á Böðvarshólum í V- Húnavatnssýslu 12. ágúst 1924. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 18. mars 2015. Foreldrar Snæ- björns voru Páll Guðmundsson, f. 29. mars 1885, d. 25. maí 1979, og Anna Hall- dórsdóttir, f. 21. október 1886, d. 18. september 1987. Systkini Snæbjörns: 1) Björn Jónas Pálsson, f. 2. september 1917, d. 7. júlí 1921, 2) Ingibjörg Soffía Pálsdóttir Hjaltalín, f. 20. ágúst 1918, d. 25. sept- ember 1999, 3) Guðmundur Pálsson, f. 8. júlí 1919, d. 17. janúar 2007, 4) Sigurbjörg Pálsdóttir, f. 22. júlí 1920, d. 1. janúar 2011, 5) Elínborg Sædís Pálsdóttir, f. 3. september 1923, 6) Kolfinna Gerður Páls- dóttir, f. 12. ágúst 1924, 7) 2008. 2) Páll, f. 25. mars 1962, maki Guðrún Dóra Gísladóttir, f. 9. september 1963. Börn þeirra eru Daði Snær, f. 3. febrúar 1988, og Arna, f. 19. nóvember 1989. Snæbjörn lauk fullnaðaprófi árið 1938. Hann byrjaði í Bretavinnu á Reykjavíkurflug- velli upp úr 1940 og svo í fram- haldi af því í flughöfninni. Hann hóf svo síðar störf á tré- smíðaverkstæði Flugmála- stjórnar ásamt ýmsum öðrum störfum tengdum þeim rekstri. Síðar færir hann sig um set innan vallar og fær skipunar- bréf sem slökkviliðsmaður á Reykjarvíkurflugvelli og starf- ar sem slíkur á árunum 1965- 1992 þegar hann hættir vegna aldurs. Snæbjörn vann í rúma hálfa öld eða allan sinn starfsferil á Reykjavíkurflugvelli og var mjög fróður um sögu vallarins, byggingar, búnað, flugvélar, starfsmenn og fleira sem til- heyrði honum. Snæbjörn kom að stofnun Loftleiða árið 1944. Útför Snæbjörns fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 27. mars 2015, kl. 15. Halla Valgerður Pálsdóttir, f. 2. febrúar 1929, d. 5. mars 2004. Snæ- björn kvæntist 20. september 1957 Baldvinu Magnús- dóttur, f. 21. apríl 1925, d. 8. apríl 2000, frá Siglunesi við Siglufjörð. For- eldrar Baldvinu voru Magnús Bald- vinsson, f. 5. nóvember 1895, d. 15. september 1956, og Antonía Vilhelmína Guðbrandína Er- lendsdóttir, f. 5. maí 1901, d. 22. júlí 1987. Snæbjörn og Baldvina eign- uðust tvo syni: 1) Magnús, f. 31. mars 1958, maki Ingibjörg Sig- urðardóttir, f. 12. júní 1958. Dóttir þeirra er Sigrún Birna, f. 22. maí 1979, maki Hörður J. Halldórsson, f. 29. september 1974. Börn þeirra eru Halldór Máni, f. 29. júlí 2004, Magnús Ingi, f. 29. september 2006, og Jóhann Darri, f. 3. desember Elsku afi. Elsku hvíthærði afi. Það er erfitt að koma orðum að því hvað ég mun sakna þín mikið. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Við Daði eyddum lungan- um úr deginum hjá þér og ömmu Baldvinu í góðu yfirlæti stóran hluta barnæsku okkar. Amma Baldvina sá um matargerðina, við fengum pönnsur, ástarpunga, klatta og kleinur, en afi skemmti okkur með því að spila á spil og gera listaverk. Daði átti alltaf auð- veldara með listina en ég einbeitti mér að spilunum. Stundum spilaði amma líka en þá fékk ég ekki alltaf að vinna eins og þegar við spiluðum bara tvö. Seinna áttum við þroskaðra samband. Ég mun sakna þess hvað það var auðvelt að spjalla við þig um allt og ekkert, um lífið og tilveruna. Ég mun sakna þess hvað þú borðaðir alltaf lítið þegar þú komst í mat og hvað þú hafðir gaman af því að klappa kisu. Ég mun sakna þess hvað þú varst já- kvæður og opinn fyrir nýjum hlut- um þrátt fyrir að vera kominn á tí- ræðisaldur. En mest mun ég sakna afa sem leyfði mér að kúra í hálsakotinu sínu þegar ég var lítil og hlusta á hjartsláttinn sinn. Elsku afi, ég vona að þú hvílir í friði með ömmu Baldvinu. Þín Arna. Það er með sorg í hjarta sem ég sest niður og minnist hins silfur- hærða, smávaxna, flotta kalls sem var hvers manns hugljúfi og gull af manni. Ég kynntist Snæbirni fyrir um 16 árum þá komnum á eftirlaun, við áttum það sameig- inlegt að vera báðir slökkviliðs- menn sem tengdi okkur ennþá meira saman en fjölskylduböndin ein og sér. Við vissum báðir út á hvað þetta gekk en ég átti síðar eftir að starfa á sömu slökkvistöð og setjast undir stýri á sömu bíl- um og hann hafði stjórnað með röggsemi og keyrt með stolti. Ég átti hauk í horni með vinnu- mann þegar ég byggði mitt fyrsta hús og svo seinna núverandi hús- næði frá grunni. Það þurfti ekki nema eitt símtal og Snæbjörn var mættur undir eins tilbúinn í vinnu. Við unnum ófá verkin saman í þessum húsum og alltaf sá maður vinnugleðina og áhugann skína í gegn hvort sem það var við upp- slátt, steypuvinnu, að sópa eða við önnur sérverkefni sem hann fékk í sínar hendur. Hann var fulltrúi gömlu kynslóðarinnar en af og til mætti hann með sín eigin verkfæri sem hann þekkti og var vanur að nota. Mér er það minnisstætt þeg- ar ég bað hann einn dag að brjóta steypu með brothamri, hann gaf ekki mikið fyrir þessa græju og fannst þetta verkfæri ekki henta sér og sinni verkkunnáttu, hann tók því næst upp hamar og meitil og hófst handa við verkið. Eftir að við fluttum í núverandi hús var Snæbjörn fastagestur hjá okkur á aðfangadag og átti hann sitt sæti við hátíðarborðið. Hann hafði gaman af því að fylgjast með langafastrákunum sínum taka upp pakkana úr sófanum þar sem hann var búinn að koma sér vel fyrir saddur og sæll og þegar myndavél sást á lofti var hann allt- af klár í slaginn, vel til hafður eins og alltaf. Hann var mikil matmað- ur og sagðist borða allt enda alinn upp á þeim árum þar sem að mat- ur var af skornum skammti og matvendi ekki á matseðlinum. Þá var sætabrauð í miklu uppáhaldi hjá honum og jólakaka var eitt- hvað sem hann passaði vel upp á að eiga alltaf til í skápnum. Nú undir það síðasta þar sem Snæbjörn stóð í flutningum frá Hraunbænum komu í ljós uniform og aðrir smáhlutir sem tilheyrðu honum og störfum hans sem slökkviliðsmaður á Reykjarvíkur- flugvelli. Til stóð að við færum saman á slökkviliðssafnið í Reykjanesbæ þar sem hann ætl- aði að afhenda í eigin persónu þessa muni til varðveislu og sýnis. Það kemur nú í minn hlut að koma þessum hlutum á leiðarenda sem þá vonandi öðlast framhaldslíf fyr- ir gesti og gangandi. Ó heyr mig Guð, mitt ákall er ef eldur verður laus. Að megi bæn mín þóknast þér og þjónsstarf er ég kaus. Ó, mætti ég lífi blessaðs barns til bjargar finna ráð, og einnig sérhvers eldri manns frá eldsins voða bráð. Og ger mér kleift að komast skjótt að kveikineistans stað, svo geti ég bálsins bugað þrótt og bælt og stöðvað það. Að vernda þannig bróðurbú frá bráðri hættu og neyð, skal ætíð vera skylda mín á skammri ævileið. En sé þinn vilji góði Guð að gisti ég brátt þinn fund. Ég bið konu og börnin mín að blessa alla stund. (Daníel Kristinsson.) Hörður J. Halldórsson. Snæbjörn Pálsson Sigurbjörn, eða Diddi eins og við kölluðum hann, byrjaði ungur rekstur eigin skóvinnustofu, fyrst á Vesturgötu 24, síðan á Tómasar- haga 46 og loks á Háaleitisbraut 58-60. Þar rak hann fjölskyldufyr- irtæki með konu sinni Þórunni Pálsdóttur og Jónínu dóttur sinni. Sigurbjörn Þorgeirsson ✝ Sigurbjörn JónÞórarinn Þor- geirsson fæddist í Reykjavík 27. ágúst 1931. Hann lést 18. febrúar 2015 á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Útför Sig- urbjörns fór fram í kyrrþey 26. febr- úar 2015 að hans ósk. Ég man þegar við vinnufélagarnir fór- um í heimsókn til að skoða nýjustu græj- urnar því Sigurbjörn var alltaf með flott- ustu vélarnar og nýj- ustu tæknina í skó- viðgerðum. Hann var frumkvöðull á því sviði og verk- stæðið var alltaf hreint og fínt og bókaplast á vélum. Við hinir vor- um ekki vanir svona mikilli snyrti- mennsku. Hann átti líka mjög fallega dóttur og þótti okkur ekki síður varið í að skoða hana. Sigurbjörn hafði gaman af athyglinni og skaut á okkur úr stórri heftibyssu. Sigurbjörn var formaður Land- sambands skósmiða um margra ára skeið og og sinnti því starfi af natni. Hann var einnig mörg ár í prófnefnd og var sæmdur gull- merki Landsambands skósmiða fyrir störf sín. Hann flutti skóvinnustofuna upp á Háaleitisbraut 68 árið 1976 og er Skóvinnustofa Sigurbjörns þar í fullum gangi og er rekin af þeim heiðurshjónum Jónínu, dótt- ur Sigurbjörns, og manni hennar Gunnari Rúnari Magnússyni. Sig- urbjörn fór að auglýsa í sjónvarpi þegar hann flutti á Háaleitisbraut- ina og var það nýjung, enginn skóari hafði áður notað leiknar auglýsingar. Þar sýndi Sigurbjörn okkur hinum hvernig ætti að standa að málum. Á síðari árum hef ég átt gott samstarf við Nínu dóttur hans og hefur hún reynst mér vel sem góð- ur vinur og er ekki síðri frum- kvöðull en faðir hennar. Þau voru mjög náin og sendi ég henni og fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Kolbeinn Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.